Morgunblaðið - 22.11.2004, Page 24
24 MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RAÐ-
AUGLÝSINGAR
Fundir/Mannfagnaður
Félag
sjálfstæðismanna í
Nes- og Melahverfi
Aðalfundur verður haldinn í Valhöll mánudag-
inn 29. nóvember nk. kl. 17.30.
Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Stjórnin.
Fundarboð
Aðalfundur Hollvinafélags lagadeildar
Háskóla Íslands
Aðalfundur Hollvinafélags lagadeildar Háskóla
Íslands verður haldinn í Lögbergi, byggingu
lagadeildar Háskóla Íslands, þriðjudaginn
30. nóvember 2004 kl. 17.15.
Dagskrá aðalfundar samkvæmt félagslögum,
það er:
1) Skýrsla og reikningar stjórnar fyrir liðið
starfsár.
2) Umræður um skýrslu og reikninga.
3) Lagabreytingar.
4) Kosning stjórnar fyrir komandi starfsár.
5) Kosning tveggja skoðunarmanna.
6) Önnur mál.
Tillaga um lagabreytingar hefur ekki komið
fram.
Stjórn Hollvinafélags
lagadeildar Háskóla Íslands.
Tilkynningar
Landbúnaðarráðuneytið
Tollkvótar vegna
innflutnings á blómum
Með vísan til 65. gr. laga nr. 99/1993 um fram-
leiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með
síðari breytingum og með vísan til reglugerðar
dags. 19. nóvember 2004, er hér með auglýst
eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi
innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í
stykkjatölu:
Vara Tímabil Vörum. Verðtollur Magnt.
stk. % kr./stk.Tollnr.
0602.9095 Aðrar pottaplöntur
t.o.m. 1 m á hæð
01.01.-
30.06.'05 3.400 30 0
0603.1009 Annars
(afskorin blóm)
01.01.-
30.06.'05 175.000 30 0
Skriflegar umsóknir skulu berast til landbúnað-
arráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík,
fyrir kl. 15.00 þriðjudaginn 30. nóvember 2004.
Landbúnaðarráðuneytinu,
22. nóvember 2004.
Félagslíf
MÍMIR 6004112219 III
HEKLA 6004112219 VI
GIMLI 6004112219 I
I.O.O.F. 19 18511228
I.O.O.F. 10 18511228 Fr.
FIMMTUDAGINN 25. nóvember
verður kvöldstund í Fella- og
Hólakirkju og hefst hún kl. 20.
Njörður P. Njarðvík flytur er-
indi, Úr fjötrum fíknarinnar.
Njörður deilir eigin reynslu af
hörðum heimi og leið fíkilsins til
baka. – Sorginni sem verður
förunautur aðstandenda og mik-
ilvægi þess að vera til staðar og
tapa ekki voninni. Tónlistarmað-
urinn KK flytur hugljúfa tónlist
eins og honum einum er lagið.
Kaffiveitingar í boði sókn-
arnefnda. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Kvöldstund í Fella- og Hólakirkju
ÞÆR aðstæður sem nú eru í Mið-
Austurlöndum eftir fráfall Yasser
Arafats og bandarísku forsetakosn-
ingarnar, sem og sá ásetningur Shar-
ons forsætisráðherra Ísrael að leggja
niður landnemabyggðir á Gaza, skapa
að mati John Edwin Mroz betri að-
stæður en oft áður til að finna var-
anlega lausn á deilum Ísraelsmanna
og Palestínumanna. Á fundi í Háskóla
Íslands nk. þriðjudag mun hann,
ásamt þremur öðrum forystumönn-
um EastWest Institute, þeim Math-
ias Mossberg sendiherra, dr. Vasil
Hudak og Sasha Havlicek, ræða þess-
ar aðstæður og þær aðgerðir sem þeir
telja að ríki Evrópu og Bandaríkja-
menn þurfi að grípa til svo unnt verði
að hefja friðarumleitanir að nýju.
EastWest-stofnuninni var komið á
fót árið 1980 og hún hefur getið sér
orð á alþjóðavettvangi fyrir starf að
friðar- og þróunarmálun víða um
heim, ekki síst að lýðræðisþróun í
Austur-Evrópu. Hún er ein stærsta
sjálfstæða stofnunin af þessum toga í
veröldinni og rekur skrifstofur m.a. í
Moskvu, Brussel, Prag, Istanbúl,
Bretlandi og New York og er fast
starfslið um 80 manns. Jafnframt hef-
ur EastWest-stofnunin ýtt úr vör
sjálfseignarstofnunum sem vinna að
sömu markmiðum í New York og víða
í Austur-Evrópu.
John Edwin Mroz er stjórnar-
formaður og stofnandi EastWest
Institute. Hann hefur verið ráðgjafi
fjölmargra ríkisstjóra og alþjóðasam-
taka og þegið viðurkenningar fyrir
störf sín, m.a. í Þýskalandi fyrir að-
stoð við sameiningu þýsku ríkjanna.
Það er Stofnun stjórnsýslufræða
og stjórnmála við HÍsem stendur fyr-
ir fundinum. Hann verður haldinn á
þriðjudag kl. 12.05–13.05 í Lögbergi,
stofu 101.
Fundur í HÍ um Atlantshafstengslin
og friðarhorfur í Mið-Austurlöndum
Nýir möguleikar
á friði að skapast
ÁÆTLAÐ er að um 1.500 manns
hafi heimsótt sýninguna Hvutta-
daga í Reiðhöll Gusts í Kópavogi
um helgina, en þar voru til sýnis um
þrjátíu tegundir hunda.
„Þetta gekk ágætlega hjá okkur,
við vorum með um þrjátíu tegundir
og fimmtán til tuttugu þjónustuað-
ila sem voru að kynna sínar vörur
og þjónustu. Þarna voru dýralækn-
ar, hundaþjálfarar, tryggingafélög
og dýrabúðir og fleira af þeim
toga,“ segir Jón Ísleifsson, einn að-
standenda sýningarinnar. Hann
segir hingað til hafa vantað svona
alhliða sýningu þar sem fólk gæti
komið saman og skoðað hundateg-
undir og þjónustu. „Þetta er gott
fyrir fjölskyldur sem eru að leita að
hundum og einnig fyrir hundaeig-
endur til að kynnast þjónustuað-
ilunum,“ segir Jón. „Þarna var líka
mikið af sýningaratriðum. Meðal
annars var hundafimi að sýna sína
starfsemi, það var gaman að sjá
hundana hlaupa upp tröppur og yf-
ir borð og svoleiðis. Svo sýndi hjálp-
arhundurinn hann Tryggur hvern-
ig hann hjálpar fólki sem er
kannski hreyfihamlað, tínir upp
hluti sem það missir á gólfið, opnar
dyr, klæðir eigandann úr sokk-
unum og styður við hann þegar
hann fer upp tröppur. Þá er hann
líka þjálfaður til að gelta ef eigand-
inn dettur, þar til hann fær athygli
einhvers sem kemur og hjálpar.
Hann getur líka aðstoðað fólk í
hjólastól, dregið það áfram og svo-
leiðis.“
Konu tengdri
Dalsmynni vísað burt
Sesselju Tómasdóttur, dóttur
Ástu Sigurðardóttur, eiganda Dals-
mynnis, var vísað á dyr þegar hún
vann að uppsetningu sýningarbáss
vegna langhunda. Þá fóru þrjár
aðrar konur burt með henni, en
meðal þeirra var Ósk Guðvarð-
ardóttir, sem hugðist sýna pomer-
anian-hunda sína á Hvuttadögum.
„Við vorum með tvo bása, bæði
pomerania-hunda og langhunda.
Þegar við komum á laugardags-
morgninum og vorum að setja upp
kom einn stjórnenda Hvuttadaga
og sagði að Sesselja þyrfti vinsam-
legast að yfirgefa svæðið að ósk
nokkurra hundaeigenda þarna
inni,“ segir Ósk. „Okkur fannst
þetta fullfáránlegt og vildum fá
skýringu á þessu, bara af því að hún
væri dóttir móður sinnar að hún
mætti ekki vera á svæðinu. Hvutta-
dagar voru búnir að auglýsa sig
sem óháða sýningu, þar sem hver
væri að kynna sitt.“
Ósk segir sölumanneskju hjá VÍS
hafa hótað að taka styrkinn af sýn-
ingunni ef Sesselju yrði ekki vísað
burt. „Mér finnst það svolítið hart
fyrir þá sem eru að halda utan um
Hvuttadaga að þurfa að sitja undir
svona hótunum. Þetta er orðið
hreinasta einelti. Við fáum ekki
einu sinni að taka þátt í sýningum á
hlutlausu sviði. Við erum engan
veginn tengd Dalsmynni. Ég á
hunda sem eru þaðan, en Sesselja
var bara þarna með nýinnfluttan
langhund, sem aldrei hefur komið
nálægt Dalsmynni,“ segir Ósk. „Við
hjá Íshundum verðum að fá að eiga
hunda í friði og mega taka þátt í
svona hlutlausum sýningum. Við
vorum búin að borga fyrir básinn
og þetta var bæði niðurlægjandi og
særandi bæði fyrir okkur og
Hvuttadaga.“
Aðrir sýnendur hótuðu brottför
Jón Ísleifsson segir málið þannig
vaxið að Sesselja, dóttir Ástu í Dals-
mynni, hafi fyrir tveim mánuðum
sóst eftir að hafa bás í sýningunni
til að kynna starfsemi félagsins Ís-
hunda, en henni hafi verið neitað
um það, þar sem tengsl Íshunda og
Dalsmynnis séu of sterk „Við vær-
um þá að gefa í skyn að Hvuttadag-
ar væru að leggja blessun yfir þá
starfsemi sem fram fer í Dals-
mynni, en þar er einungis um að
ræða hvolpaframleiðslu,“ segir Jón.
„Síðan leigði önnur kona bás hjá
okkur með langhund og við sáum
ekkert athugavert við það, svo við
leigðum henni básinn. Á föstudags-
kvöldið kom síðan Sesselja og fór
að setja upp á þeim bás ásamt hinni
konunni. Þá fór að gæta óánægju
meðal annarra þátttakenda og fjöl-
margir töldu sig ekki getað tekið
þátt ef hún væri hér inni. Á laug-
ardag varð ljóst að Sesselja myndi
taka þátt í básnum, þannig að við
urðum einfaldlega að velja. Þetta
snerist um einfaldan reikning.
Þegar við töluðum við Sesselju
og sögðum að hún þyrfti að fara
ákváðu hinar konurnar, sem voru
með annan bás við hliðina, að fara
líka. Við báðum þær aldrei um að
fara út, heldur aðeins Sesselju. Á
endanum snerist þetta um hvort við
ættum að endurgreiða tvo bása og
vísa þeim frá eða vera með tómt
hús utan þeirra tveggja.“
Jón segir ekkert til í því að sölu-
kona VÍS hafi hrakið konurnar í
burtu, heldur hafi þarna einungis
ráðið hagsýnisjónarmið. „Mér
finnst óttalega slæmt að okkar
aðalstyrktaraðili hafi komið eitt-
hvað inn í þetta mál. Þeir hafa stað-
ið sig frábærlega og án þeirra hefði
þessi sýning ekki orðið svona glæsi-
leg í ár.“
Fimmtán hundruð manns sóttu vel heppnaða Hvuttadaga
Alhliða sýning fyrir hunda-
eigendur og fjölskyldufólk
Morgunblaðið/Kristinn
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína á Hvuttadaga í Reiðhöll Gusts.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Ungra
jafnaðarmanna hefur sent frá sér
ályktun þar sem fagnað er tillögu
viðskiptaráðherra um að Ríkis-
endurskoðun fari yfir fjármál
stjórnmálaflokkanna. Bent er á að
Ísland sé eitt fárra vestrænna
ríkja sem hafi ekki sérstaka lög-
gjöf um fjárreiður stjórn-
málaflokka.
„Ungir jafnaðarmenn vilja enn
fremur og ítreka afstöðu sína að
sett verði skýr lög um fjárreiður
stjórnmálaflokkanna líkt og gilda
um aðra sem þiggja fé frá hinu
opinbera. Opinn aðgangur al-
mennings að upplýsingum um fjár-
stuðning til stjórnmálaflokka er
sjálfsagður hluti lýðræðislegs
skipulags. Fullkomið traust milli
kjörinna fulltrúa stjórnmálaflokk-
anna og kjósenda mun ekki nást
að fullu fyrr en þessar upplýs-
ingar liggja fyrir. Ungir jafn-
aðarmenn vilja að allir stjórn-
málaflokkar sitji við sama borð og
opni bókhald sitt á sama tíma.
Með því er tryggt fullt jafnræði
sem skiptir lýðræðið í landinu afar
miklu máli.“
Þörf á umbótum
varðandi fjár-
reiður flokkanna
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111