Morgunblaðið - 22.11.2004, Side 26

Morgunblaðið - 22.11.2004, Side 26
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Svínið mitt © DARGAUD KÆR KVEÐJA FÁ GÓLFINU. SAKNA ÞÍN, VILDI AÐ ÞÚ VÆRIR HÉR EITT BRAUÐ OG SKINKA. ÞAÐ GERA 437 kr. HÉRNA ER HEIMSFRÆGI MATVÖRUKAUPMAÐURINN AÐ VINNA VIÐ KASSANN... EGG... TE... MJÓLK... ÞAÐ GERA 380 kr. ÞAÐ ERU INNAN VIÐ TÍU HEIMSFRÆGIR MATVÖRUKAUPMENN TIL Í ÖLLUM HEIMINUM... KALVIN, ÞÚ ERT AÐ VERÐA OF SEINN Í SKÓLANN! KLUKKAN ER ORÐIN HÁLF ÁTTA. ERTU KOMINN Á FÆTUR? ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ ÞETTA MUNDI EKKI VIRKA! AUÐVITAÐ EKKI! ÞÚ VARST EKKI Í NEINUM BUXUM! RÉTT STRAX HEYRÐU NÚ MIG!! SJÁIÐ HVAÐ ÞETTA ÓGEÐSLAEGA DÝR YKKAR HEFUR GERT! ÞETTA VAR EKKI HANN ÉG GEF YKKUR FIMM MÍNÚTUR TIL ÞESS AÐ HREINSA GANGSTÉTTINA! ER ÞAÐ SKILIÐ?! FEITI HARÐSTJÓRI HANN ER EKKERT SMÁ LEIÐINLEGUR ÞESSI STÓRI HLUNKUR! HVAÐ GETUM VIÐ GERT? ÉG VEIT UM LAUSN ÁN ÞESS AÐ SKÍTA SIG ÚT GROIN! HÍHÍ ÉG NOTA STÆRSTA KÍNVERJA SEM ÉG Á Í ÞETTA. VIÐ LOSUM OKKUR ALVEG VIÐ AÐ HREINSA TIL HLAUPIÐ! ERUÐ ÞIÐ BÚIN AÐ HREINSA STÉTTINA FORÐUM OKKUR! BURT BURT EN GANGSTÉTTIN ER ORÐIN HREIN HA? Dagbók Í dag er mánudagur 22. nóvember, 327. dagur ársins 2004 Íþróttafréttamennættu að syngja þeg- ar þeir láta í ljósi álit sitt á Arsene Wenger. Best fer á því að svo hástemmt lof sé sung- ið. „Wenger er besti þjálfari heimsins í dag!“ og „það leikur ekki nokkur vafi á því að Arsenal myndi vinna Brasilíu!“. Nú hefja þeir Wenger til skýjanna fyrir að vera „óhrædd- ur við að gefa ungum leikmönnum tæki- færi“. Samt hefur að- eins einn leikmaður, Ashley Cole, náð að festa sig í sessi í aðalliði Wengers eftir að hafa leikið með unglingaliði Arsenal. Aðrir hafa að- eins fengið að spreyta sig í nokkrum leikjum, nú síðast Spánverjinn Fran- cesc Fabregas. Segja má að Wenger hafi verið óhræddur við að gefa ungum leik- mönnum tækifæri – en aðeins í vara- liði Arsenal. Íþróttafréttamenn hylltu til að mynda Mathew Upson í mörg ár sem „hinn nýja Tony Adams“ þar til hann fékk sig full- saddan á öllum tækifærunum í vara- liðinu og forðaði sér til Birmingham. Fótboltaspekingarnir lýstu Jose Mourinho sem „hrokagikk“ á dög- unum þegar hann kvaðst hafa fulla trú á því að Chelsea tryggði sér Englands- meistaratitilinn tveimur vikum fyrir mótslok. Portúgalski „hrokagikkurinn“ stýrði Porto til sigurs í Meistaradeild Evr- ópu fyrr á árinu og hlýtur það að teljast meira afrek en sigur í ensku úrvalsdeildinni. Ekki verður framhjá því litið að Wenger hefur aldrei unnið ensku úr- valsdeildina tvö ár í röð (hvað þá þrjú eins og Skotinn í Manchester) og Arsenal hefur aldrei komist í undan- úrslit Meistaradeildar Evrópu, hvað þá í úrslitaleikinn (þótt Arsenal sé betra en Brasilía!). Fréttamennirnir hafa mært Wenger svo ótæpilega að erfitt er að gera sér í hugarlund hvernig þeir gætu hyllt hann tækist honum að vinna Meistaradeild Evrópu. Líklega þyrftu þeir þá að leita í smiðju orð- hagra klerka eða mærðarkarla Turkmenbashi til að lýsa yfirburðum Wengers með nógu hástemmdum hætti. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is               Kópavogur | Mikill fjöldi fólks lagði leið sína á sýninguna Hvuttadaga í Reið- höll Gusts um helgina, en þar mátti líta um þrjátíu ólíkar hundategundir, þjón- ustu og vörur fyrir hunda og alls kyns skemmti- og sýningaratriði. Hún Snædís Björk Guðmundsdóttir var ansi hrifin af Chihuahua-hundinum sem heilsaði henni á sýningunni. Ekki var annað að sjá en að hvutti væri sér nokkuð meðvitandi um tískuna. Klæddist hann smekklegri en um leið nota- drjúgri bleikri peysu, enda var allnokkur kuldi í loftinu um helgina. Morgunblaðið/Kristinn Hlýlegur hvutti MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Gef þú hverjum sem biður þig, og þann sem tekur þitt frá þér, skaltu eigi krefja. (Lúk. 6, 30.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.