Morgunblaðið - 22.11.2004, Qupperneq 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
LIFANDI
VÍSINDI
Áskriftarsími 881 4060
„ÞETTA er stór dagur í mínu
lífi,“ sagði séra Gunnlaugur Stef-
ánsson, sóknarprestur í Heydöl-
um, í samtali við Morgunblaðið,
en hann og kona hans, séra Sjöfn
Jóhannesdóttir, sóknarprestur á
Djúpavogi, skírðu tvö barnabörn
sín við messu í Hafnarfjarðar-
kirkju í gær.
Sonur þeirra, Stefán Már
Gunnlaugsson, og kona hans,
Lilja Kristjánsdóttir, eiga tví-
bura, sem voru skírðir í gær.
Skírðu þau Gunnlaugur og Sjöfn
hvort sinn drenginn og hlutu
þeir nöfnin Hermann Ingi og
Kristján Hrafn. Fyrir eiga þau
Stefán og Lilja son sem heitir
Gunnlaugur Örn og er þriggja
ára.
Við sama tækifæri var frum-
flutt sálmalag eftir Finn Torfa
Stefánsson tónskáld, bróður séra
Gunnlaugs. Lagið er samið við
sálm eftir séra Gunnþór Ingason,
sóknarprest í Hafnarfjarðar-
kirkju, en sálmalagið var samið
sérstaklega af þessu tilefni.
Skírðu barnabörnin
Morgunblaðið/Kristinn
Frá skírnarathöfninni í Hafnarfjarðarkirkju í gær.
15–20 milljarðar
teknir í viðbótarlán
UM 55 milljarðar króna hafa farið úr bankakerfinu í ný
húsnæðislán á síðustu tæpum þremur mánuðum og þar af
eru á bilinu 15 til 20 milljarðar hreint viðbótarlánsfé. Þetta
kom fram í ræðu Steingríms J. Sigfússonar, formanns
Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á haustfundi
flokkráðs VG um helgina en í henni gagnrýndi hann bank-
ana harðlega fyrir að kynda undir þenslu með 90% og síð-
an 100% svokölluðum húsnæðislánum sem væru þó fyrst
og fremst neyslulán með veði í íbúðarhúsnæði. „55 millj-
arðar króna eru farnir út úr bankakerfinu í þessi svoköll-
uðu húsnæðislán núna á tæpum þremur mánuðum. 55
milljarðar hafa verið færðir þarna yfir á lánahliðina. Á móti
koma auðvitað uppgreiðslur lána hjá Íbúðalánasjóði en þar
er munur á sem nemur sjálfsagt 15–20 milljörðum sem er
nýtt viðbótarlánsfé sem hefur farið út í þessum tilboðum
bankanna. Þetta eru nýeinkavæddu ábyrgu bankarnir,“
sagði Steingrímur og minnti á að það væru skuldugustu
heimili í heimi sem væru að bæta þessu á sig.
„Þegar fréttist af áformum um 90% húsnæðislán, að vísu
með þaki hvað varðar upphæðir hjá Íbúðalánsjóði, stigu
menn fram og vöruðu við því. Seðlabankinn og viðskipta-
bankarnir töldu það glannalegt en komu svo nokkrum vik-
um síðar sjálfir með 90% lán sem nú eru orðin að 100%,“
sagði Steingrímur.
Tölur Steingríms ekki fjarri lagi
Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segist
hafa ímyndað sér að heildartalan [55 milljarðar] gæti verið
enn hærri þótt hann hafi ekkert fast í hendi í þeim efnum.
„Talan 55 milljarðar kemur mér ekkert á óvart, gæti verið
meira. Hitt er út af fyrir sig rétt að uppgreiðslur hjá okkur
skipta tugum milljarða. Það er vitað mál og við höfum nú
þegar gefið félagsmálanefnd þingsins það upp í tengslum
við frumvarp sem nefndin er að vinna í sambandi við 90%
lán Íbúðalánasjóðs. Það gæti vel verið að þessi tala Stein-
gríms sé ekki fjarri lagi,“ segir Guðmundur.
Viðsjárverðar/10
ÞAÐ viðraði vel til ísklifurs um helgina, þótt eitthvað
hlánaði í gær. Um helgina fór vel á annan tug ísklifur-
manna að Múlafjalli við Hvalfjörð. Þar klifruðu menn
ýmsar leiðir í fjallinu, sem af sumum er kallað leik-
fangaland sökum þess hversu góðar og fjölbreyttar að-
stæður eru þar til ísklifurs.
Morgunblaðið/RP
„Leikfangaland“ ísklifurmanna
HLJÓMSVEITIN The Beach Boys Band hélt tónleika í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi. Í sveitinni er m.a. stofnmeðlimur The Beach Boys, söngvarinn
Mike Love og einnig Bruce Johnston sem hefur verið í Beach Boys frá
árinu 1965. Það þótti að sjálfsögðu við hæfi að fá Hljóma til að hita upp fyr-
ir strandadrengina.
Morgunblaðið/Eggert
The Beach Boys í Höllinni
KARLAKÓR Reykjavíkur ásamt
mökum, alls um 140 manns, verða á
Stamford Bridge í Lundúnum laug-
ardaginn 4. des-
ember nk. til að
fylgjast með Eiði
Smára Guðjohn-
sen og félögum í
Chelsea etja
kappi við New-
castle United í
ensku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu. Kórinn
verður staddur í Lundúnum í söng-
ferð umrædda helgi.
„Við megum til með að nota
tækifærið og sjá Eið Smára Guð-
johnsen og heiðra hann. Við
stefnum að því að hitta hann annað-
hvort fyrir eða eftir leikinn og
syngja fyrir hann eins og eitt jóla-
lag,“ segir Friðrik S. Kristinsson
söngstjóri Karlakórs Reykjavíkur.
Kórinn mun halda tónleika í
Southwark-dómkirkjunni í Lund-
únum föstudaginn 3. desember,
auk þess sem hann kemur fram í
dómkirkjunni í Kantaraborg og
Sænsku kirkjunni í Lundúnum í
ferðinni.
Karlakór
syngur fyrir
Eið Smára
Kyrjað/16
Eiður Smári
ÞAÐ ERU helst notendur Fé-
lagsþjónustunnar í Reykjavík og að-
standendur þeirra sem sýna erlendu
starfsfólki sem þar starfar fordóma-
fulla og óþægilega framkomu. Dreg-
ið hefur úr fordómum frá árinu 2001
þegar þessi mál voru síðast könnuð.
Um 10% starfsfólks Félagsþjónust-
unnar, frá á fjórða tug landa, eru af
erlendum uppruna. Hallur Páll Jóns-
son, starfsmannastjóri hjá Fé-
lagsþjónustunni, segir að rekja megi
minni fordóma starfsmanna Fé-
lagsþjónustunnar til þess að Fé-
lagsþjónustan hefur sett sér sér-
staka stefnu í málefnum útlendinga.
Þurfa síður á sveigjanlegum
vinnutíma að halda
Erlendu starfsmennirnir voru í
könnuninni spurðir hvort þeir hafi
þurft á sveigjanlegum vinnutíma að
halda vegna fjölskylduaðstæðna.
„Það vakti athygli okkar að u.þ.b.
helmingur svarenda telur sig ekki
hafa þurft á því að halda, en það er
nokkuð hærra hlutfall en meðal ann-
arra starfsmanna. Maður veltir eðli-
lega fyrir sér af hverju það sé og
hvort þetta hugtak og hugsun um
sveigjanleika á vinnustað, þ.e. sveigj-
anlegur vinnutími og aðstæður, séu
kannski mörgum starfsmönnum sem
koma erlendis frá framandi af því sú
umræða eigi sér ekki stað í þeirra
heimalöndum,“ segir Hallur.
Starfsfólk hjá
Félagsþjónustunni
Upplifir
minni
fordóma
Dregið/4
HVALFJARÐARGÖNG lokuðust í í
tæpar tvær klukkustundir um kvöld-
matarleytið í gær vegna umferðar-
óhapps þegar bifreið á suðurleið fór
utan í vegg ganganna. Minni háttar
slys urðu á fólki samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar í Reykjavík.
Slysið varð klukkan 18.34 þegar
bifreið á suðurleið var ekið utan í vegg
ganganna. Voru göngin lokuð af þeim
sökum í tæpar tvær klukkustundir
meðan unnið var að því að fjarlægja
bifreiðina. Lögregla var við báða enda
ganganna og stjórnaði umferð þar til
göngin opnuðust á nýjan leik á níunda
tímanum í gærkvöldi.
Umferðaróhapp í
Hvalfjarðargöngum
Göngin lok-
uð í tæpar
tvær stundir
♦♦♦