Morgunblaðið - 20.12.2004, Síða 1
2004 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÓLAFUR STEFÁNSSON BIKARMEISTARI MEÐ CIUDAD REAL / B7
VIGGÓ Sigurðsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, fer ekki troðnar slóðir í
undirbúningi landsliðsins fyrir heimsmeist-
arakeppnina í Túnis, sem hefst 23. janúar
með því að íslenska landsliðið leikur gegn
Tékkum í Túnisborg.
Hann tilkynnir hvaða sextán leikmenn
eiga að halda merki Íslands á lofti í Túnis
á morgun, eða rúmum mánuði áður en HM
hefst. Telur að val sitt tryggi öryggi í
landsliðshópnum og komi í veg fyrir
óvissu. Fram til þessa hafa íslenskir lands-
liðsþjálfarar valið endanlegt lið sitt rétt
áður en haldið er til leiks á stórmótum.
Hann hefur fengið sænska markvarða-
þjálfara til að vera með landsliðinu í Sví-
þjóð þegar það kemur saman í Gautaborg
3. janúar og annar þeirra kemur heim með
landsliðinu og heldur áfram þjálfun mark-
varða þar til landsliðið heldur á mót á
Spáni 13. janúar, þar sem mótherjar eru
Spánverjar, Frakkar og Egyptar.
Hann lagði til að landsliðið kæmi ekki
heim frá Spáni, þar sem það tekur þátt í
fjögurra þjóða móti 14. til 16. janúar, held-
ur æfði þar síðustu dagana fyrir átökin í
Túnis.
Viggó sagði í samtali við Morgunblaðið að
Handknattleikssamband Íslands hefði tekið
þá ákvörðun að bjóða eiginkonum og unn-
ustum leikmanna að hitta strákana á Spáni
á mánudeginum eftir mótið, 17. janúar, og
vera með þeim í fjóra daga, til föstudags-
ins 21. janúar, en þá heldur landsliðið til
Túnis.
„Þetta er gert vegna þess að leikmennirnir
hafa verið lengi að heiman vegna æfinga
og keppni og síðan kemur rúmlega tveggja
vikna útilega í Túnis. Ég vona að flestar
kvennanna geti nýtt sér þetta glæsilega
boð til að hitta strákana sína. Ég er viss
um að þessi ákvörðun kemur til með að
styrkja leikmannahópinn áður en haldið
verður í hina erfiðu og löngu keppni í Tún-
is, sem er framandi land fyrir flestalla í
hópnum. Að við náðum upp góðum liðs-
anda fyrir átökin, með aðstoð kvennanna,“
sagði Viggó, sem er sáttur við þann tíma
og undirbúning sem landsliðið fær fyrir
HM í Túnis. „Við ætlum okkur að ná að
gera það besta sem við getum úr þeim
tíma sem við höfum. Aðar þjóðir hafa ekk-
ert lengri tíma til undirbúnings en við,
þannig að við stöndum jafnfætis þeim,“
sagði Viggó.
Viggó Sigurðsson fer ekki troðnar slóðir í undirbúningi landsliðsins í handknattleik fyrir stórmót
Konur leikmanna taka
þátt í undirbúningi HM
■ Hefur sett stefnuna/B2
Svíar þjálfa markverðina/B3
ÞÝSKA knattspyrnufélagið Rot-Weiss Essen, sem
leikur í 2. deild, vill fá íslenska landsliðsmanninn
Þórð Guðjónsson í sínar raðir í janúar. Þórður
hefur lítið fengið að spila með Bochum í 1. deild-
inni í vetur og vill komast frá félaginu í næsta
mánuði. Jürgen Gelsdorf, þjálfari Essen, sagði við
Kicker að Þórður hefði verið efstur á óskalista
sínum í sumar og þá hefði ekki munað miklu að
hann fengi Íslendinginn í sinn hóp. „Kannski
gengur það í þetta skipti,“ sagði Gelsdorf.
Essen er neðst í 2. deild en deildin er mjög jöfn
og þrjú stig skilja að sjö neðstu liðin. Gelsdorf
segir að með því að fá fjóra sterka leikmenn
verði hægur vandi að snúa blaðinu við seinni
hluta tímabilsins. Auk Þórðar vill hann fá Steph-
an King frá Hamburger SV, Radoslav Kaluzny
frá Leverkusen og Filip Tapalovic frá Bochum í
sínar raðir.
Essen vill fá
Þórð frá Bochum
KJARTAN Henry Finnbogason og Theo-
dór Elmar Bjarnason, knattspyrnumenn-
irnir ungu úr KR, sömdu í gær við skoska
meistaraliðið Glasgow Celtic til vorsins
2007. Forráðamenn KR-Sport fóru til Skot-
lands í gærmorgun og gengu þar frá samn-
ingum við Celtic. Þeir Kjartan og Elmar
fara alfarnir til Skotlands í janúar en að
sögn Ólafs Garðarssonar umboðsmanns er
stefnt að því að þeir æfi og leiki fyrst og
fremst með varaliði félagsins út þetta tíma-
bil.
Kjartan og Elmar komu heim frá Skot-
landi í gær en auk þess að ganga frá sínum
málum þar og fara í læknisskoðun, sáu þeir
Celtic sigra Dundee United, 1:0, að við-
stöddum 56 þúsund áhorfendum á Celtic
Park í skosku úrvalsdeildinni, þar sem
Chris Sutton skoraði sigurmarkið.
Morgunblaðið/Kristinn
Kjartan Henry Finnbogason og Theodór Elmar Bjarnason brugðu sér í Celtic-búninginn þegar Morgunblaðið heimsótti
þá í gær. Þeir komu heim frá Skotlandi í gær en eru alfarnir til skosku meistaranna snemma í janúar.
Samningar við Celtic í höfn
■ Gefa ungum/B5