Morgunblaðið - 20.12.2004, Síða 2
HANDKNATTLEIKUR
2 B MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Íþróttir Morgunblaðsins Kringlunni 1 , 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar
sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þ
egar Viggó Sigurðsson,
gamall keppnisrefur
og litríkur þjálfari fé-
lagsliða, tók við lands-
liðinu á dögunum þótti
mönnum hann nokkuð kokhraustur
og bjartsýnn – er hann sagði að
hann stefndi á eitt af sex efstu
sætunum á heimsmeistarakeppni í
Túnis, sem hefst 23. janúar. Sumir
sögðu að Viggó hefði strax spennt
bogann of mikið – hann hefði strax
sett stefnuna of hátt, væri bjart-
sýnn og lofaði of miklu – sem hann
gæti jafnvel ekki staðið við þegar á
hólminn væri komið.
Er það svo, Viggó? „Nei, ég er í
þessu til að ná árangri. Við erum
með mannskap, kunnáttu og getu
til að ná langt og vera í einu af
toppsætunum í Túnis. Ég hef fulla
trú á þessum strákum sem eiga að
halda merki Íslands á lofti. Það
eru að sjálfsögðu miklar breyting-
ar á landsliðshópnum – nýir menn
að koma inn. Ég er hvergi banginn
og stend við það sem ég hef sagt.
Ég hef sett stefnuna á að koma
landsliðinu í eitt af sex efstu sæt-
unum í Túnis,“ sagði Viggó, sem
mun tilkynna á morgun hvaða sex-
tán leikmenn hann hefur kallað í til
að ná árangri í Túnis.
Viggó tók þá ákvörðun að velja
þá leikmenn Íslands, sem hann
ætlar að tefla fram tímanlega. Láta
þá ekki búa við óvissu. Viggó valdi
það að láta menn sína vita hvar
þeir stæðu tveimur vikum áður en
hópurinn kemur saman í Gauta-
borg í Svíþjóð mánudaginn 3. jan-
úar.
„Ég valdi þessa leið af þeirri ein-
földu ástæðu að ég vildi að leik-
menn mínir, sem ég legg traust á í
Túnis, vissu það tímanlega að ég
hef ákveðið að leggja traust mitt á
þá til að leysa krefjandi verkefni
fyrir íslensku þjóðina.
Ég ætla mér að ná góðum ár-
angri með landsliðið í Túnis. Þess
vegna vil ég létta ákveðinni pressu
af leikmannahópnum – koma óviss-
unni út, þannig að leikmenn mínir
þurfi ekki að vera að hugsa fram á
síðustu stundu hvort þeir verði
með eða ekki. Strákarnir eiga að
geta einbeitt sér að verkefninu
áhyggjulausir um stöður sínar.
Þess vegna ákvað ég að velja
ekki Sigfús Sigurðsson sem hefur
verið meiddur. Ég vildi ekki vera
að bíða eftir því í langan tíma í
óvissu hvort hann yrði orðinn góð-
ur eða ekki. Það er ljóst að Sigfús
hefur ekki getað æft af fullum
krafti að undanförnu og hann þarf
að taka sér hvíld frá æfingum fram
yfir áramót. Það var því auðséð að
hann myndi aldrei ná fullum styrk
fyrir HM í Túnis. Ég sagði honum
að hann yrði ekki inni í myndinni
fyrir keppnina í Túnis,“ sagði
Viggó, sem notaði helgina til að
hafa samband við þá leikmenn sem
hann hefur ákveðið að haldi merkj-
um Íslands á lofti í Túnis. Það
verður ljóst á morgun hvaða leik-
menn hann hafði samband við.
„Ég hef haft samband við sextán
leikmenn, sem allir svöruðu kallinu
og vita að hverju þeir ganga – til
að standa sig í Túnis. Það er eng-
inn varamaður í þessum leik-
mannahóp – allt leikmenn sem ég
treysti fullkomlega. Þetta eru allt
leikmenn sem eiga að vera tilbúnir
í slaginn og ég hef sagt þeim að
það eina sem ég fari fram á sé að
þeir gefi sig hundrað prósent í
verkefnið.“
Viggó sagði að hann hefði haft
þennan hátt á – að fenginni
reynslu undanfarin ár, en yfirleitt
hefði verið ákveðið rétt fyrir stór-
mót hvaða leikmenn færu og hverj-
ir sætu eftir með sárt ennið. Mér
hefur alltaf fundist þjálfarar hafa
verið með of stóra hópa fram á síð-
ustu stundu, án þess að ég sé að
gagnrýna vinnubrögð þeirra þjálf-
ara sem hafa stjórnað landsliðinu á
undan mér,“ sagði Viggó.
„Ég vil að leikmenn mínir viti
mánuði fyrir HM í Túnis að þeir
fari þangað. Þeir geta því gert sín-
ar framtíðaráætlanir í sambandi
við sig og fjölskyldur sínar.
Eins hef ég ákveðið að gefa þeim
leikmönnum sem eru hér heima al-
gjörlega frí frá handknattleik
þannig að þeir geti haldið jólin
með fjölskyldum sínum án þess að
þurfa að vera að þeytast á æfingar
í tíma og ótíma yfir hátíðarnar.
Ólafur Stefánsson kemur til dæmis
heim frá Spáni með fjölskyldu sína,
en hann hefur ekki haldið jól hér
heima í fjölmörg ár, eða síðan hann
hóf að leika með Wuppertal í
Þýskalandi 1996. Menn hafa gott af
því að fá langt frí til að hlaða raf-
hlöðurnar fyrir erfitt verkefni,“
sagði Viggó.
Undirbúningur fyrir stórmót
Hér á korti á síðunni má sjá
hvernig undirbúningur landsliða
frá áramótum fyrir stórmót frá því
Evrópukeppni landsliða Króatíu
2000, var. Oftast hafa lokahóparnir
verið tilkynntir rétt fyrir keppni,
allt niður í þremur dögum áður en
haldið var á stað.
Yfirleitt var ástæðan sú að þjálf-
arar voru að bíða og vonast eftir að
leikmenn, sem voru meiddir, næðu
sér af meiðslum sínum þannig að
þeir gætu leikið með.
Á kortinu sést hvenær landsliðið
kom saman eftir áramót, hvað
margir landsleikir voru leiknir fyr-
ir mótin og hvenær endanlegir
leikmannahópar voru tilkynntir.
Síðan árangur á mótunum.
Köllum óvænt á leikmenn
Þegar Viggó var spurður hvort
hann myndi ekki ræða við leik-
menn sem væru næstir inn í hóp-
inn, ef meiðsli kæmu upp, sagði
hann að svo væri ekki. „Nei, ekki
annað en það sem ég og Berg-
sveinn Bergsveinsson, aðstoðar-
maður minn, höfum rætt í sam-
bandi við að hafa markvörð
tilbúinn að svara kalli ef það kæmi.
Við förum með þrjá markverði til
Túnis og einn verður tilbúinn að
Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, segir að hann sé hvergi banginn
„Ég er í þessu til að ná árangri. Við erum með mannskap, kunnáttu
og getu til að ná langt og vera í einu af toppsætunum í Túnis. Ég
hef fulla trú á þessum strákum sem eiga að halda merki Íslands á
lofti. Ég er hvergi banginn og stend við það sem ég hef sagt – hef
sett stefnuna á að koma landsliðinu í eitt af sex efstu sætunum í
Túnis,“ sagði Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari í handknattleik,
við Sigmund Ó. Steinarsson sem forvitnaðist um undirbúning
landsliðsins fyrir heimsmeistarakeppnina í Túnis og komst að því
að Viggó fer ekki troðnar slóðir.
Hefur sett
stefnuna á eitt
af sex efstu
sætunum á
HM í Túnis
!"
!"
!#$# %# &
'"()
!
!"
'"()
"
#$
'"()
!%&
#!" $
'"()
'
(
%
'"()
)
%
&
'"()
*+,"-
.
/+,"-
*+,"-
*+,"-
/+,"-
*
!
'#(
*
!
*
!
) *
!
*
!
*
!
&
$
+, 0,"-
$
* 1
##
* 1
##
* 1
##
* 1
##
* 1
##