24 stundir - 08.12.2007, Blaðsíða 21
sýndu umhverfismálum alveg sérstakan skilning. Dan-
ir eru örgustu slóðar í samanburði og Norðmenn líka.
En ef nánar er litið á vísitöluna kemur í ljós að mæl-
ingin byggir á orðum á blaði. Efndirnar eru eftir og
stóriðjuverin íslensku sem eru að hefja starfsemi eða
gera það fljótlega eru ekki komin inn í skráninguna.
Hvar stendur Ísland þá? Dúndrum við niður listann
á næstu árum eða náum við að halda góðri mælingu?
Eða skiptir það í rauninni nokkru máli? Ef allir legðu
spilin á borðið í loftslagsmálum og reyndu að vinna
saman að raunverulegum markmiðum, þyrfti ekki
heldur að taka saman neina lista þar sem löndin punta
sig með skrautfjöðrum til að sýna að hlýnun andrúms-
loftsins sé ekki þeim að kenna heldur einhverjum öðr-
um. Ýmislegt sem vitað er um kemur ekki fram á list-
anum. Sumt af því eru bakreikningar, neikvæð þróun
sem á eftir að mæla, annað er viðleitni til að snúa þró-
uninni við. En orð eru til alls fyrst og vonandi tekst að
standa við fyrirheitin. Ef eitthvað er að marka vísindin
er það bráðnauðsynlegt ef ekki á illa að fara.
Íslenska fórnfýsin
Sérákvæði fyrir Íslendinga um losun gróðurhúsa-
lofttegunda hefur lengi verið áhugavert dæmi um
fórnarlund sem kostar ekkert og er jafnvel hægt að
græða á. Græna orkan á Íslandi á að leysa vanda ann-
arra. Síðasta ríkisstjórn hafði þessa fórnarlund í ríkum
mæli og ekki er útséð með þessa. Viljinn er til staðar að
minnsta kosti hjá öðrum stjórnarflokknum. Hjá hin-
um er horft til annars og sérákvæði látin liggja milli
hluta. Sóknin í sérákvæði hefur minnt svolítið á kon-
una sem varð alkóhólisti eftir að hafa reynt að forða
drykkfelldum eiginmanni sínum frá þeim örlögum
með því að taka frá honum áfengið og drekka það sjálf.
beva@24stundir.is
aBjörg Eva Erlendsdóttir
Ekki er það efnilegt fyrir
framtíðina að viljinn til að-
gerða lýsi sér aðallega í
því að koma byrðunum á
aðra. Margar þjóðir hafa þó
mjög háleit framtíð-
armarkmið, en eiga meira
eða minna eftir finna út hvernig á að
uppfylla þau.
24stundir LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2007 21
Valdhroki sjálfstæðismanna er
nú sem fyrr með nokkrum ein-
dæmum. Í stað þess að bæjarstjóri
Reykjanesbæjar geri hreint fyrir
sínum dyrum í málefnum Kefla-
víkurflugvallar hangir hann í því
að krefjast leiðréttingar á mislestri
sem undirrituðum varð á í ræðu-
stól Alþingis í vikunni. Fela á
raunverulega umfjöllun um málið
bakvið orðhengilshátt sem stöku
fjölmiðlar hafa kosið að blása upp.
Þetta var mislestur sem náfrændi
og nafni bæjarstjórans Árni John-
sen vakti góðfúslega athygli á og ég
leiðrétti á sama vettvangi, í ræðu-
stól Alþingis þremur tímum eftir
að ummælin féllu og bað um leið
þá bræðrunga og nafna afsökunar.
Það kom mér því nokkuð á óvart
að fregna af því á heimleið undir
kvöld að Árni Sigfússon væri þá
enn að fara fram á afsökunarbeiðni
af minni hálfu og endurtæki það
sama á vef Morgunblaðsins að
morgni föstudags.
Ég skrollaði líka!
Mislestur minn var í því fólginn
að yfirsjást orðið ekki í texta um
bæjarstjóra Reykjanesbæjar þar
sem ég fjallaði um samtvinnun
ættar- og hagsmunatengsla Ka-
decomálsins. Textinn sem ég las af
minnisblaðinu hljóðaði þannig,
rétt lesinn klukkan 14:28 í ræðu-
púlti Alþingis:
„Þá vil ég geta þess að komið
hefur fram í fjölmiðlum að fimm
af sjö bæjarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjanesbæ tengjast
kaupum og sölu á fasteignum á
varnarsvæðinu á einhvern hátt.
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar er í
stjórn Þróunarfélags Keflavíkur-
vallar og stjórnarformaður Keilis.
Persónulega á hann E K K I hlut
í þessum félögum samkvæmt því
sem ég best veit en er fulltrúi
Reykjanesbæjar.
Annar bæjarfulltrúi er stjórn-
arformaður Base sem einnig hef-
ur keypt eignir á varnarsvæðinu.
Þessi sami bæjarfulltrúi er einn
eigenda Hótels Keflavíkur sem á
9 prósent hlut í Base. Þriðji bæj-
arfulltrúinn er stjórnarformaður
Sparisjóðs Keflavíkur sem á rúm-
lega 22 prósent hlut í Háskóla-
völlum og hlut í Base.
Eignarhaldsfélagið 520 ehf., í
eigu fjórða bæjarfulltrúans, hefur
keypt 800 fermetra skemmu af
Base á varnarsvæðinu.
Þá er fimmti bæjarfulltrúi sjálf-
stæðismanna í Reykjanesbæ að-
stoðarmaður fjármálaráðherra, en
fjármálaráðherra er fulltrúi ríkisins
í samningum við Þróunarfélagið.
Því til viðbótar má nefna að
bróðir fjármálaráðherra er stjórn-
arformaður Klasa og einn af eig-
endum þess fyrirtækis.“
Persónulegir hagsmunir
Svo mörg voru þau orð og ég
skal alveg viðurkenna að það er
leitt að þurfa að draga persónulega
stjórnarþátttöku manna inn í um-
ræðu eins og þessa en það hafa
þeir menn kallað yfir sig sem raðað
hafa sér við borðið með þessum
hætti. (Tilvitnun í þingræðu lýk-
ur.)
Að ætla að fela þann óskapnað
hagsmunatengsla sem hér á sér
stað með einu mismæli er vald-
hroki af því tagi að engu tali tekur.
Og reyndar er það svo að ég skroll-
aði líka við þennan lestur og ef
bæjarstjóranum er í því fró get ég
einnig beðist afsökunar þar á.
Um hitt þarf ekki að tala að
menn sem raða sér með viðlíka
hætti við öll borð eiga eftir það
hagsmuna að gæta í málinu og
skilin milli trúnaðarstarfa og per-
sónuhags verða í því meira en
óglögg. Eða datt engum í hug að
Reykjanesbær ætti fleiri en einn
heimamann sem vermt gæti stjórn-
arstóla í þessum Sturlungaleik
sjálfstæðismanna Suðurnesja-
manna.
Höfundur er alþingismaður og bóksali
Af mismæli og valdhroka
VIÐHORF aBjarni Harðarson
Í stað þess að
bæjarstjóri
Reykjanes-
bæjar geri
hreint fyrir
sínum dyrum
í málefnum
Keflavíkurflugvallar
hangir hann í því að
krefjast leiðréttingar á
mislestri sem undirrit-
uðum varð á í ræðustól
Alþingis í vikunni. Fela á
raunverulega umfjöllun
um málið bakvið orð-
hengilshátt sem stöku
fjölmiðlar hafa kosið að
blása upp.
Jólastundin - Jólabragðið - Jólastemningin
R
O
YA
L
Jólagjöf fyrir þá
sem „eiga allt“
Gefðu hlýju og samveru um jólin!
Allir kunna að meta það að hafa tækifæri á að komast í gott
frí í sólina eða annað. Gjafabréf Heimsferða er jólagjöf, sem
er í senn hagnýt, skemmtileg og sveigjanleg og felur í sér
hlýju og samveru með sínum nánustu. Lágmarksupphæðin
er 3.000 kr. en annars ræður þú upphæðinni.
Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
87
7
Opið alla virka daga frá 10-18,
Laugardaga 10:00-18:00 og Sunnudaga 13:00-16:00