Morgunblaðið - 04.07.2004, Side 3

Morgunblaðið - 04.07.2004, Side 3
20 18 4.7.2004 | 3 4 Flugan er á því að Fame sé ágætis afþreying þótt fátt væri um flugelda og aðdáunarandvörp frumsýningargesta. Ekki þótti henni heldur verra að næla sér í stefnumót við Hákon, krónprins Noregs, í NASA. 6 Helgi Snær segir ekki sjálfgefið að þegja með öðru fólki og veltir fyrir sér þagnarstiginu í samböndum. 6 Lofar góðu Þórhallur Helgi Sævarsson er auglýsinga- stjóri á heimsmælikvarða og starfar hjá bresku fyrirtæki. 8 Vildi vera geðveikt dramatísk Eliza Newman, betur þekkt sem Eliza Geirs- dóttir í Kolrössu krókríðandi og Bellatrix, leynir á sér því síðastliðin ár hefur hún stundað nám í klassískum söng í Lund- únum. 10 Víetnam – Eftirhernaður og kalda stríðið Víetnam er heillandi land og víða ósnert af mannlegri athafnasemi. Á ferðalagi sínu um landið komst Þorkell Þorkelsson ljósmynd- ari að raun um að þjóðin er elskuleg og um- burðarlynd gagnvart útlendingum. Gunnar Hersveinn fjallar um landið í sögulegu sam- hengi og afleiðingar Víetnamstríðsins, sem ennþá eru að koma í ljós þótt 30 ár séu síðan því lauk. 16 Smitandi sýn á heiminn Lomo-myndavélar sem eiga rætur í Sovét- ríkjunum þykja svalar nú um stundir þótt tæknin sé ekki af fullkomnustu gerð. 18 Tískan á rauða dreglinum Stórstjörnurnar eru leiðandi í tískunni og í sumar virðast léttir og litríkir kjólar úr satíni, blúndu og siffoni vera vinsælir meðal þeirra. 19 Sagði einhver SÍS? Snjóhvítar tennur þykja núna meira stöðu- tákn en merkjavara, hraðakstursbílar og gimsteinar. 20 Matur og vín Á veitingastaðnum Rauða húsinu á Eyrar- bakka er þjónustan einstaklega vinaleg og fagmannleg. 22 Álitamál Guðrún Guðlaugsdóttir veltir upp nokkrum hliðum á mannlegum málum. 22 Krossgáta Hvaða fugl þjónar litlum fiskum? Skila- frestur úrlausnar er næsta föstudag. 23 Pistill Guðrúnu Helgadóttur er í nöp við geitunga. Tímarit Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang: timarit@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Margrét Sigurðardóttir margret@mbl.is, Valgerður Þ. Jónsdóttir, vjon@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf. ISSN 1670-4428 Forsíðumyndina tók Þorkell Þorkelsson í Víetnam. KONAN á forsíðunni er með sólhlíf til að verja sig og barnið sitt fyrir heitum geislunum. Bifreiðir eru fáséðar á þessum slóðum, stöku sinnum má sjá einhvern á mótorhjóli eða reið- hjóli, en flestir sinna erindum sínum fótgangandi. Leiðin er oft löng og torfarin. Þessi kona er á leið heim af markaðinum og hefur gengið allan þann veg sem sjá má á myndinni. 8 „Mig langar náttúrulega að vera geðveikt dramatískt lýrísk,“ segir Eliza Newman, betur þekkt sem Eliza í Bellatrix, en hún hefur stundað nám í klassískum söng í Lundúnum. 16 Ungur maður stendur í stiga upp við svartan glansandi gran- ítvegginn með hvítan blaðsnepil í höndunum og blýant, hann leggur blaðið að veggnum og krotar með blýantinum yfir nafn sem grafið er í vegginn, nafnið kemur í ljós á blaðinu, blað- sneplinum er stungið í vasann og verður ein af minningunum um ástvininn sem lét lífið í Víetnamstríðinu. Þetta er mynd sem greypist í hugann þegar staðið er við að því er virðist óendanlega langan minnisvegg í Washington DC, vegg sem geymir nöfn 58.000 manna og kvenna sem létu lífið eða hurfu í Víetnamstríð- inu. En það er einungis fjöldinn sem Bandaríkjamenn fórnuðu í þessu umdeilda stríði. Víetnam varð fyrir enn meiri skaða því 1,2 milljónir Víetnama létu lífið og milljónir særðust. Í Tímariti Morgunblaðsins í dag færir Þorkell Þorkelsson ljósmyndari okkur myndir af hræðilegum afleiðingum stríðsins í Víetnam sem 30 árum síðar eru enn áþreifanlegar. Ein af myndum hans sýnir 17 ára ungan mann sem er mikið fatlaður í hjólastól og algjörlega upp á veikburða foreldra sína kominn. En hann er einungis einn af hugsanlega millj- ón einstaklingum sem eru fórnarlömb eiturefnavopns sem notað var í Víetnamstríðinu og gekk undir nafninu „Agent Orange“. Nú eru komnar þrjár kynslóðir sem hafa þurft að þjást vegna þessarar hernaðar- aðgerðar og enginn veit hve mörg vansköpuð börn munu fæðast, hve há tíðni ungbarnadauða verður eða hve margir munu þjást af krabbameini. Þótt ekki hafi tekist að sanna fyrir dómstólum að eiturefnaaðgerð- irnar séu orsök alls þessa þá eru tengslin augljós. Myndir Þorkels og texti Gunnars Hersveins ættu að vekja okkur til umhugsunar um að þær myndir sem fjölmiðlar sýna okkur núna af stríðsátökum dagsins í dag í Írak, Palestínu og Ísrael eru veruleiki þess fólks sem þar er statt. Átök og sprengingar sem stundum fara fyrir ofan garð og neðan hjá okkur hér í amstri hins íslenska veruleika en munu hafa ófyrirséðar afleiðingar á líf þessa fólks og afkomenda þeirra. margret@mbl.is 04.07.04 L jó sm yn d: H el ga E gi ls on

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.