Morgunblaðið - 04.07.2004, Side 20
20 | 4.7.2004
Það vekur óneitanlega athygli hversu margir forvitnilegir veitingastaðir hafaraðað sér upp á skömmum tíma með stuttu millibili á Árborgarsvæðinu íeinungis rúmlega hálfrar klukkustundar fjarlægð frá höfuðborgarsvæð-
inu. Fyrir skömmu var hér fjallað
um Fjöruborðið á Stokkseyri og
hinn vinsæla humar þess en einnig
má nefna Hafið bláa við bakka Ölf-
usár.
Á milli þeirra tveggja, á Eyrar-
bakka, var fyrir um þremur árum
opnaður veitingastaðurinn Rauða
húsið í fallegu gömlu húsi, sem eng-
um ætti að koma á óvart að er rautt
á lit, og býr yfir langri og forvitni-
legri sögu líkt og mörg önnur hús á
þessu svæði. Þarna hefur verið starf-
ræktur skóli og gistiheimili og nú
síðast veitingasala. Upphaflega var
það byggt yfir barnaskólann á Eyr-
arbakka árið 1880 og lengi var það í
eigu Gunnars Jónssonar húsasmiðs
og því gjarnan nefnt Gunnarshús.
Þarna í þessu húsi dvaldi Halldór
Laxness um skeið og gerði uppkast
að hluta Íslandsklukkunnar.
Nú gengur þetta fallega timburhús hins vegar undir
nafninu Rauða húsið. Vertinn á Rauða húsinu er Ingi
Þór Jónsson sem margir kannast líklega við frá þeim
tíma er hann rak veitingastaði á borð við Ömmu Lú í
Reykjavík fyrir nokkrum árum.
Rauða húsið er rétt við fjöruborðið og það getur verið
hressandi að ganga fyrir eða eftir mat upp á varnargarð-
inn meðfram sjónum, anda að sér fersku sjávarloftinu og
virða fyrir sér fjölskrúðugt fuglalífið á þessum slóðum.
Húsið sjálft var alveg tekið í gegn áður en staðurinn
var opnaður árið 2001, matsalurinn er gamaldags, einfaldur en smekklegur. Á
góðviðrisdögum eins og hafa verið svo algengir á síðustu vikum er hins
vegar tilvalið að nýta sér borð úti í garði og snæða matinn undir beru
lofti. Það er ekki oft sem gefst tækifæri til þess á íslenskum veitingastöðum og því
um að gera að grípa gæsina þegar hún gefst.
Matseðillinn á Rauða húsinu er ekki langur og hann byggist nær eingöngu á
sjávarréttum, eins og er líklega við
hæfi á þessum slóðum. Hægt er að
fá sjávarréttasúpu og þá jafnt sem
forrétt eða aðalrétt. Hún var þykk
rjómasúpa þar sem krafturinn
byggðist að miklu leyti á grænmeti
og auk vel útilátinna bita af fiski og
humri var í henni að finna zucchini-
sneiðar og brokkólí. Ágæt súpa þótt
hún hefði getað verið bragðmeiri í
grunninn.
Gratíneraður saltfiskur var með
parmigianohjúp, stórt og fallegt
stykki, vel eldað og útvatnað. Fisk-
urinn var á miklu salatbeði þar sem
uppistaðan var tómatar og jöklasalat
með grænum ólífum og einni kart-
öflu (sem var ofaukið fyrir minn
smekk). Minna fór fyrir basil sem
einnig var talið upp í lýsingu á mat-
seðli.
Humar var einnig borinn fram með miklu salati,
jöklasalati, tómötum og rauðlauk. Sjálfur humarinn var
smjörsteiktur og fallega frágenginn og snyrtur og raðað
upp á skeljunum áður en hann var borinn fram. Hann
var óaðfinnanlegur að öllu leyti, stór og góður og tíma-
setning á matreiðslunni rétt.
Þjónustan var einstaklega vinaleg og fagmannleg og
það sem hvað mestu máli skiptir: ávallt með bros á vör.
Borðbúnaður er fremur einfaldur en hæfir stemmningu
salarins vel.
Vínlistinn er stuttur og byggist fyrst og fremst á vín-
um frá spænska framleiðandanum Torres annars vegar og hinum ítalska Bava hins
vegar. Auðvitað hefði verið ákjósanlegt að hafa meiri breidd en þarna
voru þó vín sem ættu að henta flestum gestum og öllum réttum.
RAUÐA HÚSIÐ Eyrarbakka, pöntunarsími: 483-3330.
www.raudahusid.is
STEMMNING: Fallegt hús í huggulegu sjávarþorpi
þar sem sjávarfangið er borið fram með bros á vör.
EINKUNN: Viðunandi Góður Mjög góður Frábær Afburða veitingastaður
Einkunnagjöf byggist á mati á þjónustu, húsnæði, vínlista og mat,
að teknu tilliti til verðlags.
MATUR OG VÍN | STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON
RAUÐA HÚSIÐ Á EYRARBAKKA
Það er hressandi fyrir eða eftir mat að anda að sér fersku sjávarlofti uppi á varnargarðinum rétt hjá staðnum
L
jó
sm
yn
d:
K
ri
st
in
n
In
gv
ar
ss
on
Ítalía er mikið vínland og fjölbreytnin gífurleg. Hér verður
fjallað um vín frá þremur héruðum sem ekki hafa verið
mjög algeng í íslensku vínflórunni en eiga svo sannarlega skilið að
vínunnendur gefi þeim gaum.
Eitt magnaðasta rauðvínshérað heimsins er Piedmont í norð-
austurhluta Ítalíu. Þaðan koma vín á borð við Barbera, Barolo og
Barbaresco og ávallt fagnaðarefni þegar nýir fulltrúar bætast í
hillurnar.
Luciano Sandrone Barbera 2001 hefur dökkan kirsuberja-
ávöxt í nefi, krækiber og áfengi. Mikil samþjöppun í bragði sem
væntanlega má rekja til þess að uppskerumagni á hektara hefur
verið haldið í lágmarki og djúpur, dökkur litur. Þetta er stórt og
magnað vín en með glettilega mjúkum tannínum, eikin vinnur vel
með ávextinum og heildarútkoman er frábær. Þetta vín kostar
2.490 krónur en það er alls ekki mikið fyrir vín í þessum gæða-
flokki. 19/20
Annað norður-ítalskt víngerðarsvæði er Trentino. Þar eru framleidd afbragðsvín
við rætur Dólómíta-fjalla meðal annars úr hinni sjaldséðu Teroldego. Fáir gera
betri vín úr þeirri þrúgu en Elisabetta Foradori.
Foradori Teroldego 2002 er mjög athyglisvert vín fyrir þá sem vilja reyna eitt-
hvað nýtt, grænar kryddjurtir, beiskur brjóstykur og jafnvel Fisherman’s Friend og
sveskjur í nefi. Góð uppbygging og millilöng ending í munni. 1.790 krónur. 17/20
Þriðja norður-ítalska víngerðarsvæðið sem hér kemur við sögu og
því miður hefur lítið farið fyrir til þessa í úrvalinu hér á landi er Suð-
ur-Týról eða Alto Adige eins og það heitir á ítölsku. Þetta þýsku-
mælandi hérað í norðurhluta landsins er þekktast fyrir öflug og stíl-
hrein hvítvín en einnig rauðvín úr Búrgundarþrúgunni Pinot Noir.
Nú eru komin á markað þrjú hvítvín frá framleiðandanum St.
Michael-Eppan. Þetta er vínsamlag sem 335 bændur eiga aðild að
og hefur tekist að skipa sér sess meðal framsæknustu víngerðarfyr-
irtækja Ítalíu. Hvítvínin þrjú sýna sem nú eru í reynslusölu sýna
hvers vegna.
Lahn Sauvignon Blanc 2002 hefur ljúfa angan af sætum grænum
eplum, límónu og perubrjóstsykur, þykkt í munni, ferskt og bjart.
Þungaviktarsumarvín. 1.790 krónur. 18/20
Anger Sauvignon Blanc 2002 er öllu meira og jafnframt dýrara
vín, þetta er klassískur evrópskur Sauvignon í háum klassa, mikill
köttur, kamilla og græn paprika, þétt í munni með góðri sýru í bland
við þykkan ávöxtinn, góður endir með örlítilli seltu. Klassavín. 2.690 krónur. 19/
20
Loks er frá sama framleiðanda að finna vín úr þrúgunni Pinot Grigio en sú
ágæta þrúga hefur farið sigurför um heiminn á undanförnum árum. Anger Pinot
Grigio 2002 er vín sem einkennist af krydduðum og samþjöppuðum ávexti, eplum
og ananas. Langt í lokin með léttbeiskum karakter. 1.790 krónur. 17/20
VÍN