Morgunblaðið - 04.07.2004, Síða 23

Morgunblaðið - 04.07.2004, Síða 23
4.7.2004 | 23 Guðrún Helgadóttir Pistill Nágranni minn, Magnús heitinnÞórðarson, sagði einhverntíma: Það er ekki á þessa kommúnista logið. Ekki er snjóa fyrr farið að leysa en Guðrún dregur krakka- skarann skjálfandi út í garð og hellir í hann súpu. Og þetta var alveg rétt hjá honum nema krakkarnir skulfu ekki neitt. Við vöfðum okkur þá bara í teppi. Okkur fannst nefnilega afskaplega nota- legt að borða úti í garði. Og þeim mun notalegra sem sól hækkaði á lofti. Þessir sælutímar eru nú að mestu liðnir, því að óvinur hefur komið aftan að okkur og eyðilagt þessar ánægju- stundir stóran hluta sumarsins. GEIT- UNGURINN. Þessi andstyggðar skepna, sem allir eru hræddir við nema Erling Ólafsson. Er svo komið að mað- ur er ekki rólegur þegar smábörn eru við leik í garðinum og lítið gaman að borða mat með kvikindin eins og þyrlu- flota í kringum borðið. Og því fallegri sem gróðurinn verður, því vinsælli flug- völlur verður garðurinn fyrir þessi kvik- indi. Nú mætti ætla að flestir reyndu allt sem unnt er til að losna við þessa óværu og létu samstundis fjarlægja geitungabú sem menn koma auga á í umhverfi sínu. En er það svo einfalt? Nei, hreint ekki. Í fyrra kostaði það heilar 5.000 krónur að fá mann til að fjarlægja eitt bú. Og það er meira en að segja það fyrir venjulegar fjölskyldur, svo að þeim verður varla láð þó að þær láti búin vera og voni að íbú- arnir hegði sér. Fjöldi manna hefur nú atvinnu af því að fjarlægja geitungabú, og þeir ráða auðvitað sjálfir verðinu. En hefur bæjarfélagið engan áhuga á að gera gangskör að því að losna við þessi kvikindi? Væri ekki hugmynd að embætti meindýraeyðis borgarinnar og annarra sveitarfélaga yrðu efld og raun- veruleg herför hafin gegn þessari plágu, þannig að skattborgararnir gætu leitað hjálpar sér að kostnaðarlausu? Geitung- urinn er nefnilega alls ekki hættulaus, og einhvers staðar las ég að árlega deyi nokkrar manneskjur hér í næstu lönd- um vegna geitungabits og enn fleiri eru heimtir úr helju á síðustu stundu, vegna ofnæmis fyrir eitrinu, sem kvikindin gefa frá sér. Sjálfsagt er þessi ófögnuður kominn til að vera, nema hér skelli á einn fimb- ulvetur sem gæti lagt hann að velli. En á meðan hann lætur á sér standa er hvert bú sem eytt er betra en ekkert. Getum við ekki tekið höndum saman og reynt allt sem hægt er til að draga úr þessari plágu? Svo að við getum aftur farið að borða saman úti í garði. Kvikindin eyðileggja sælustundir í garðinum Sjónvarpið getur komið af stað undarlegustu atburðarásum og hér skal rakin stutt saga sem tengir Ísland og Ítalíu: Beinar útsendingar frá íþróttamótum leiða ekki alltaf til ljóða, en það gerist þó í stöku tilfelli. Á Ítalíu sat ljóðskáldið Vincenzo Bagnoli á heimili sínu snemma ársins 1998 og fylgdist með öðru auganu með útsendingu frá alþjóðlegu frjálsíþróttamóti. Sá hann þar m.a. stangarstökkvarann íslenska, Völu Flosadóttur, í bláa bolnum sínum, svífa tign- arlega yfir rá sem bar við himin. Einhverra hluta vegna sat atvikið í honum og hann lagði nafn stúlkunnar á minnið. Skömmu síðar gekk Bagnoli á fjallið Ortles – án þess reyndar að ná toppnum – og var um svipaðar mundir hugfanginn af ljóði Wallace Ste- vens, The Poem that Took the Place of a Mountain. Ofan á þetta bættust svo hugleið- ingar hans um afrek norska landkönnuðarins Amundsen, sem hafði sléttum 100 árum áður fundið leiðina frá Baffin-flóa til Beringssunds á norðurhveli jarðar. Út frá öllum þessum heimspekilegu pælingum um manninn gagnvart náttúrunni, um mannlega reisn og takmörk, um kulda, úthald, háleitni og fegurð, skrifaði Bagnoli svo ljóð sem nefnist 98, Amundsen – til stangarstökkvara. Ljóð þetta hefur nú birst á bók í fyrsta sinn, ásamt tileinkuninni: per Vala Flosadottir (handa Völu Flosadóttur). Þar er m.a. fjallað um það hvernig fegurðin virðist svara þyngdaraflinu, en upphafslínurnar eru: „Sýndu mér hvernig ég get lengt skrefið (…) öld okkar stendur á jökulsporði.“ Bók Bagnolis nefnist 33 giri stereo LP (33 snúningar, víðóma LP) og er í kynningu sögð fyrsta bókin sem „markar með skýrum hætti upphaf þeirrar bókmenntagreinar sem kalla mætti avant-popp“ – og er þá vísað til eins konar framúrstefnupopplistar. Ljóðin skauta frá Baudelaire til The Cure, frá T.S. Eliot til Lou Reed og bókinni fylgir geisladiskur með nýrri popp-rokkóperu. Höfundur hennar er Nicola Bagnoli, eiginkona ljóðskáldsins. Vala Flosadóttir, sem býr í Svíþjóð, fékk ljóðið sent á sínum tíma í enskri og íslenskri þýðingu, frá íslenskri kunningjakonu ítalska skáldsins. Hefur henni því verið kunnugt um tilvist ljóðsins um nokkra hríð en að líkindum ekki búist við birtingu þess í bók sem markar tímamót. Því þótt bókin muni ekki reynast straumbreytir í ítölskum bók- menntum er hún í það minnsta tímamótaverk á ferli höfundarins, því hún er fyrsta bók hans í fullri lengd. AÐ LOKUM … Fegurð þín svarar … Bókin með ljóðinu um Völu og popp- rokkóperan 33 giri stereo LP. Stangarstökkvarinn Vala á flugi árið 1998, þegar ljóðið var í smíðum. Með hækkandi sól og hlýnandi veðri fækkar föt- unum að jafnaði eitthvað líka um leið og pils og bolir verða styttri, stuttbuxurnar gægjast fram á nýjan leik svo ekki sé minnst á sundfatnaðinn sem gott er að spóka sig á við sundlaugarbarminn á góðviðrisdögum. Slöpp húð og teygð, að ógleymdri appelsínuhúðinni illræmdu sem jafnan er enn meira áberandi á húð sem er föl og þreytuleg eftir vetrarmánuðina, er hins vegar enginn aufúsugestur þegar pínupilsið og bikiníið er dregið fram. Og þótt hollt mataræði ásamt reglulegri hreyfingu sé efalítið besta leiðin til að viðhalda stinnri og fal- legri húð getur komið sér vel að geta leitað til snyrtivöruframleiðenda eftir smáaukaaðstoð enda stunda mörg fyrirtækin stífar rannsóknir í leit sinni að vopninu gegn appelsínuhúð og slöppum húðvef. Franska fyrirtækið Biotherm hefur í gegnum árin unnið af kappi að þróun húðsnyrtivara sem hreinsa og næra, sem og bæta stinnleika húðarinnar, og nú á vordögum sendi fyrirtækið frá sér gelin Celluli-Choc og Abdo-Choc, sem ætluð eru í baráttunni gegn appelsínuhúð. Kakóbaunin spilar stórt hlutverk í þessari línu sem einnig á að auka fitulosun og brennslu. Fyrir grennri kon- ur, sem ekki glíma síður við appelsínuhúðina, er þá komið á markað Celluli-Zone, eins konar svæðameðferð fyrir erfið svæði, og loks má þá nefna Body Fitness til auka stinnleika húð- arinnar. Christian Dior hefur einnig sent frá sér nýjungar í slagnum fyrir sléttri og stinnri húð og á hin skemmtilega nefnda Bikini-lína því líklega vel við áður en fötum er fækkað á ströndinni. Meðal nýjunga þar má nefna Body Firmer, Celluli-Diet og Top sem allar eiga að vinna á að þéttingu húðvefjanna. Auk þess á Body Firmer að endurmóta og styrkja húðina, Top að þétta og stinna húðina og veita brjóstunum aukinn stuðning og þá á Celluli-Diet að hafa lystarstillandi áhrif á fitufrumur líkamans auk þess að vinna að niðurbroti þeirra. Meðal annarra nýjunga má þá nefna Body Sculptess-gelið frá Lancôme sem á að stinna og móta húðina og Slim-línuna frá Estée Lauder. Ýmsar aðrar nýjungar líta þá reglulega dagsins ljós í baráttunni við þennan vágest og hefur m.a. fataframleiðandinn Miss Sixty sent frá sér gallabuxur sem eiga að vinna á appelsínuhúðinni, en buxurnar seldust upp í Bandaríkjunum á örskammri stundu. Jákvæð áhrif holls mataræðis og reglulegrar hreyfingar á húðina verða þó seint ítrekuð of oft og eru snyrtivörufyrirtækin sjálf dugleg að benda á að jákvæður árangur af notkun vöruflokkanna er mun fyrr sýnilegur þegar þessir tveir viðbótarþættir eru einnig hafðir inni í myndinni. Lancôme: Gommage Caresse- kornamaski og Body Sculptesse. Christian Dior-Bikini-línan: Top, Body Firmer, Celluli-Diet og Perfecting Scrub. L jó sm yn di r: Á rn i S æ be rg Biotherm: Celluli-Zone, Celluli-Choc, Abdo- Choc og Body Fitness. Stinn læri og sléttur magi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.