24 stundir - 15.01.2008, Page 9
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 9
Alls hafa 349 bandarískir her-
menn og fyrrverandi hermenn
verið dæmdir eða ákærðir fyr-
ir morð undanfarin sex ár, að
því er bandaríska stórblaðið
New York Times greinir frá.
Fórnarlömb hermannanna
eru fyrst og fremst ættingjar
eða nánir vinir. Þeim her-
mönnum, sem hafa tekið líf
annarra eftir að hafa gegnt
herþjónustu, hefur fjölgað um
89 prósent undanfarin sex ár.
USA Today greindi frá því ný-
lega að fjöldi bandarískra her-
manna svipti sig lífi í herþjón-
ustu. Í fréttum CBS sagði að á
hverjum degi sviptu sig að
meðaltali 17 fyrrverandi her-
menn lífi. ibs
Ísraelar og Palestínumenn
hófu í gær viðræður um helstu
ágreiningsefni sín. Sendi-
nefndirnar sem utanríkis-
ráðherra Ísraels, Tzipi Livni,
og fyrrum forsætisráðherra
Palestínu, Ahmad Quray, fara
fyrir hafa umboð til að semja
um erfiðustu deiluefnin.
Bush, forseti Bandaríkjanna,
kveðst vona að friðarsam-
komulag verði í höfn áður en
hann lætur af embætti í jan-
úar 2009. Margir eru efins.
Mikið ber á milli og leiðtogar
sendinefndanna þykja ekki
sterkir á heimavelli. ibs
Ógæfa hermanna
Myrða vini og
ættingjana
Friðarviðræður á ný
Málin rædd í
Jerúsalem
Carla Rojas, sem Farc-skæruliðarnir í Kól-
umbíu hafa látið lausa fyrir milligöngu stjórnar
Venesúela, eignaðist soninn Emmanuel í kól-
umbíska frumskóginum í apríl 2004, tveimur
árum eftir að skæruliðarnir tóku hana til fanga.
Faðir Emmanuels var einn fangavarða hennar
en hún kveðst ekki vita hvort hann er lífs eða
liðinn og ekki heldur hvort hann hafi vitað af
fæðingu drengsins.
Drengurinn var tekinn með keisaraskurði
sem þrír skæruliðar gerðu. Þegar Emmanuel var
átta mánaða fékk hann sjúkdóm sem algengur
er í frumskóginum og gaf Carla skæruliðum
leyfi til að fara með litla drenginn svo að hann
gæti fengið læknishjálp, að því er erlendar
fréttastofur greina frá. Hún frétti svo ekkert af
syni sínum fyrr en fyrir rúmri viku.
Áramótaræðu forseta Kólumbíu, Alvaro
Uribe, var útvarpað og Carla heyrði hann segja
að drengurinn væri ekki í höndum Farc-skæru-
liða. DNA-rannsóknir höfðu leitt í ljós að hann
var á fósturheimili í Bógóta, höfuðborg Kól-
umbíu, og bæri nafnið Juan David Gomez.
Clara var látin laus síðastliðinn fimmtudag
ásamt öðrum gísl og hitti hún litla drenginn
sinn á sunnudaginn. Sálfræðingar höfðu áður
sýnt Emmanuel myndir af móður hans til að
undirbúa hann fyrir fund þeirra. Sá stutti hafði
teiknað mynd handa mömmu sinni sem hann
gaf henni er þau hittust.
Carla vann fyrir forsetaframbjóðandann Ing-
rid Betancourt þegar þær voru teknar í gíslingu
2002. Carla kveðst ekki hafa séð Ingrid í þrjú ár.
Þær voru aðskildar eftir að þær höfðu reynt að
flýja saman.
ingibjorg@24stundir.is
Clara Rojas var fangi Farc-skæruliðanna í Kólumbíu í yfir fimm ár
Fékk loksins týnda soninn í fangið
Sameinuð á ný Carla faðmar litla drenginn sinn.
Skömmu eftir að Jonas Gahr
Støre, utanríkisráðherra Nor-
egs, kom til Kabúl í Afganist-
an í gær var gerð skotárás og
sprengjuárás á hótelið þar
sem hann dvelur. Tveir Norð-
menn, blaðamaður og starfs-
maður norska utanríkisráðu-
neytisins, særðust í árásinni.
Tveir öryggisverðir voru í gær
sagðir hafa látið lífið. Starfs-
maður hótelsins særðist alvar-
lega. Støre mun hafa verið á
leið til fundar við fyrrum for-
sætisráðherra Afganistans,
Sima Simar, þegar árásin var
gerð. ibs.
Støre slapp í
sprengjuárás
Vígamenn í Afganistan
TANNOY ARENA HEIMABÍÓHÁTALARAKERFI
EISA VERÐLAUN KR. 179.900.-
TILBOÐ KR. 99.900.-
DYNAUDIO AUDIENCE 42
KR. 59.900.-
TILBOÐ KR. 39.900.-
ETON FR-250 ÚTVARPSTÆKI
KR. 7.900.-
TILBOÐ KR. 4.990.-
UPPTREKKJANLEGT HÁTALARAR
ALVÖRU DJ SPILARI HLJÓÐTAPPAR MEÐ HÁLSÓL
Grensásvegi 13 • 108 Reykjavík • Sími 414 0400 • www.pfaff.is
ÚTSALA 15-60%AFSLÁTTUR
ONKYO TX-SR504 HEIMABÍÓMAGNARI 7X100 VÖTT
KR. 59.900.- TILBOÐ KR. 34.900.-
ONKYO TX-SR603 HEIMABÍÓMAGNARI 7X125 VÖTT
KR. 74.900.- TILBOÐ KR. 39.900.-
ONKYO TX-SR674 HEIMABÍÓMAGNARI 7X150 VÖTT
KR. 86.600.- TILBOÐ KR. 49.900.-
ROTEL HLJÓMTÆKI - ALLT Á 35-60% AFSLÆTTI
NUMARK TT500 PLÖTUSPILARI
KR. 49.900.-
TILBOÐ KR. 34.900.-
SENNHEISER MXL-51
KR. 2.900.-
TILBOÐ KR. 1.490.-
ONKYO CS-320 HLJÓMTÆKJASTÆÐA KR. 49.900.-
TILBOÐ KR. 29.900.-
ONKYO HEIMABÍÓMAGNARAR VERÐ FRÁ 34.900