24 stundir - 30.01.2008, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 24stundir
Samfylkingarfélagið í Reykjavík heldur fund
um valdið og lýðræðið. Fundurinn verður í kvöld
30. janúar kl. 20:30-22:00 á Hallveigarstíg 1.
Húsið verður opnað kl. 20:00.
Gestur fundarins er:
Jóhann Hauksson blaðamaður
Fundarstjóri:
Ásgeir Beinteinsson
formaður SffR.
VALDIÐ OG
LÝÐRÆÐIÐ
Efnalaugin Björg
Gæðahreinsun
Góð þjónusta
Þekking
Opið: mán-fim 8:00 - 18:00
föst 8:00 - 19:00
laugardaga 10:00 - 13:00
RV Unique örtrefjaræstikerfið
- hagkvæmt, vistvænt og mannvænt
Nána
ri up
plýsi
ngar
veita
sölu
men
n og
ráðg
jafar
RV
RV
U
N
IQ
U
E
10
07
06
Bodil Fur,
sölumaður hjá
RV Unique í Danmörku
UniFlex II H Fiber ræstivagn
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Karlmaður sem grunaður er um
að hafa orðið valdur að dauða fjög-
urra ára drengs í Keflavík fyrir
tveimur mánuðum var í gær úr-
skurðaður í áframhaldandi far-
bann til 12. febrúar næstkomandi.
Lögreglan á Suðurnesjum fór fram
á að farbannið yrði framlengt um
fjórar vikur en dómari lengdi það
um tvær. Báðir aðilar áfrýjuðu úr-
skurði héraðsdóms. Að sögn Eyj-
ólfs Kristjánssonar, fulltrúa lög-
reglustjórans á Suðurnesjum, er
enn beðið niðurstöðu úr tæknileg-
um rannsóknum í málinu. fr
Beðið eftir niðurstöðu tæknirannsókna
Áfram í farbanni
vegna banaslyss
Öllu þessu hefur þegar verið
hrint í framkvæmd.
Sigríður segir alla foreldra hafa
verið látna vita af niðurstöðunni
en segir mikilvægt að vera alltaf
vakandi, forvarnir byrji heima.
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur lokið rannsókn á máli sem
upp kom við Laugarnesskóla í
byrjun janúar þar sem talið var
að reynt hefði verið að nema á
brott 8 ára stúlku sem er nem-
andi í skólanum. Lögreglan hefur
ákveðið að aðhafast ekki frekar í
málinu þar sem sýnt þykir að at-
burðurinn hafi ekki átt sér stað.
Málið vakti mikinn óhug í
hverfinu en stúlkan sagði þrjá
menn á grænum bíl hafa reynt að
ná sér upp í bílinn án árangurs.
Aðgerðir halda áfram
„Við tókum málið mjög alvar-
lega og fórum í ákveðnar aðgerð-
ir og þær halda áfram,“ segir Sig-
ríður Heiða Bragadóttir,
skólastjóri Laugarnesskóla. „Við
endurskoðuðum útivaktina,
sáum til þess að lýsing á skólalóð-
inni yrði bætt, athuguðum með
að setja eftirlitsmyndavélar við
skólann, endurskoðuðum for-
varnarstefnuna okkar og hvernig
við bregðumst við þegar mál
koma upp og ræddum við lög-
regluna um löggæslu,“ segir hún.
Brúðuleikhús og ráðleggingar
„Við leituðum ráðgjafar hjá
Blátt áfram þegar þetta kom upp
og þær tóku saman ráðleggingar
ætlaðar foreldrum, sem við ætl-
um að setja á heimasíðu skólans,
auk þess sem brúðuleikhús Blátt
áfram verður sýnt árlega,“ segir
Sigríður. Hún segir þetta mál
sannarlega vekja fólk til umhugs-
unar. Það hafi verið skellur, en
skólinn hafi reynt að vinna úr því
með jákvæðum hætti.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Ekki reynt að
ræna barni
Meint tilraun til brottnáms barns við Laugarnesskóla átti sér
aldrei stað að mati lögreglu Forvarnaraðgerðir halda áfram
➤ Þann 3. janúar var talið aðþrír menn hefðu reynt að
ræna átta ára stúlku.
➤ Hún lýsti bílnum þeirra en all-ar vísbendingar voru mjög
óljósar.
➤ Foreldrum var ekki gert við-vart um atburðinn strax.
SAGAN AF ATBURÐINUM
Skólalóðin Lýsing við Laug-
arnesskóla hefur verið bætt og
gæsla aukin.
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
formaður skipulagsráðs Reykja-
víkurborgar, vísar til bókunar
borgarráðs vegna kaupa borgar-
innar á Laugavegi 4 til 6 þegar
hún er spurð um það hvort borg-
in muni grípa til svipaðra að-
gerða vegna annarra húsa í mið-
bænum sem Húsafriðunarnefnd
vill friða. „Við áréttum að þessi
samþykkt felur ekki í sér fordæmi
fyrir önnur hús á svæðinu og
leggjum áherslu á heildarskoðun
gamalla húsa í miðborginni, sér-
staklega við Laugaveg,“ segir í
bókuninni.
Heildarendurskoðun
Hanna Birna segir borgaryfir-
völd sammála um að fara í heild-
arendurskoðun á þeim málum
sem tengjast Laugaveginum. „Við
munum gera það í góðri sam-
vinnu við Húsafriðunarnefnd og
aðra. Það er það verkefni sem við
erum að hefja,“ segir hún.
Hanna Birna segir að þótt búið
sé að heimila niðurrif á þremur
af þeim ellefu húsum sem Húsa-
friðunarnefnd vill friða þá megi
ætla að enn sé talsvert ferli eftir
áður en þau verði fjarlægð.
Við vinnslu fréttarinnar náðist
ekki í Ólaf F. Magnússon borg-
arstjóra. elias@24stundir.is
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Kaupin einsdæmi
Ísafjarðarbæ hefur verið settur
stóllinn fyrir dyrnar hvað varð-
ar óhefta nýtingu jarðarinnar
Sanda í Dýrafirði því kirkjuráð,
fyrir hönd Kirkjumálasjóðs,
hefur gert Ísafjarðarbæ grein
fyrir því að umráðaréttur sveit-
arfélagsins yfir Söndum sé að
miklu leyti takmarkaður. Sandar
eru kirkjujörð, sem fylgja sér-
kvaðir. Sandar þykja einn
vænsti kosturinn fyrir olíu-
hreinsistöð. mbl.is
Olíuhreinsistöðin á kirkjujörð