24 stundir - 30.01.2008, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Húmorinn í myndinni er lúmskur, jafnvel óskýr, en alltaf und-
irliggjandi án þess þó að vera drepfyndinn. Á tíðum virðist
myndin rembast við að vera frumleg og töff, með áreynslulausum
leik, sem er hálfgert vörumerki í myndum Andersons.
Pakistanar vilja
fá Bollywood
bræðranna þriggja, sem er alveg
hipp og kúl að vissu marki, en
verður á endanum þreytandi og
óspennandi, þar sem söguþráð-
urinn og framvindan er of efnislítil
og hæg í ofanálag. Hefði verið lagt
jafn mikið í handrit og samtöl
einsog útlit og stíl væri um frábæra
mynd að ræða. En þó að myndin
sé vissulega augnakonfekt er hún
algerlega bitlaus hvað handritið
varðar og allt of auðmeltanleg.
Borin saman við ofannefndar
myndir Andersons, þá er hún betri
en The Royal Tenenbaums, sem
var slöpp, en mun leiðinlegri en
The Life Aquatic with Steve
Zissou, sem var mjög fín. And-
erson-aðdáendur munu varla
sleppa þessari mynd hans, en hún
virðist eiga lítið erindi við hinn al-
menna íslenska bíógest.
The Darjeeling Limited fjallar
um lestarferðalag þriggja bræðra á
Indlandi, en þeir hafa ekki hist í
eitt ár, frá dauða föður síns. Leggja
þeir upp í andlegt ferðalag sem
byggist þó mest á óhefðbundnum
vímuefnagjöfum úr indverskum
apótekum. Leikstjórinn Wes And-
erson, sem hefur til dæmis gert
myndirnar The Royal Tenenbaums
og The Life Aquatic with Steve
Zissou, heldur sig við sama stílinn,
sem er orðinn eilítið þreyttur. The
Darjeeling Limited skartar frábær-
um litum, myndatöku, klippingu
og tónlist, en skortir góðan sögu-
þráð, leik og stefnu. Myndinni má
líkja við abstraktmálverk;
litaklessur sem líta mjög vel út á
striganum, en mynda í raun ekki
neitt sérstakt. Húmorinn í mynd-
inni er lúmskur, jafnvel óskýr, en
alltaf undirliggjandi án þess þó að
vera drepfyndinn. Á tíðum virðist
myndin rembast við að vera frum-
leg og töff, með áreynslulausum
leik, sem er hálfgert vörumerki í
myndum Andersons. Lítil sem
engin svipbrigði, jöfn tónhæð og
flóttalegt augnaráð einkennir leik Miðana! Lestarvörður gerir bræðrunum lífið leitt.
Rosalega flottar umbúðir en heldur rýrt innihald
The Darjeeling limited
Bíó: Háskólabíó
Leik stjóri: Wes
Anderson
Að al hlut verk:
Adrian Brody, Owen
Wilson, Jason
Schwartzman
Eft ir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
BÍÓ
Leikstjórinn Sam Raimi, sem hef-
ur gert myndir á borð við Army
of Darkness og Spiderman-
þríleikinn, hefur samþykkt að
taka höndum saman við Disney
og ABC um að framleiða þáttaröð
byggða á fantasíubókaflokki Ter-
rys Goodkinds, The Sword of
Truth. Stefnt er að frumsýningu
þáttaraðarinnar í haust. vij
Raimi færir sig í
fantasíurnar
Kvikmyndaritið Variety hefur
greint frá því að leikararnir
Dennis Quaid og Arnold Vosloo
hafi tekið að sér hlutverk í leik-
fangakallastríðsmyndinni G.I.
Joe. Tökur á myndinni hefjast í
Los Angeles í næsta mánuði en
stefnt er að frumsýningu mynd-
arinnar í Bandaríkjunum þann 7.
ágúst á næsta ári. vij
Enn fleiri hetjur
ganga í herinn
Fréttir af voveiflegu andláti Heath Ledger á dögunum skóku
heimsbyggðina. Ledger virtist hafa heiminn í hendi sér, enda bæði
vandaður og myndarlegur maður og þótti af mörgum einhver allra
efnilegasti leikari samtímans. Því miður er hann ekki eina dæmið um
ungar stjörnur sem hafa þurft að kveðja sviðið langt um aldur fram. 24
stundir tóku saman nokkra unga leikara sem létust á þessum áratugi
Stjörnur í blóma lífsins sem kvöddu sviðið langt fyrir aldur fram
Þeir sem guðirnir elska
Heath Ledger
4. apríl 1979 - 22. janúar 2008
Heath Ledger hafði skapað sér ágætis nafn í heimalandi sínu,
Ástralíu, áður en hann hélt til Bandaríkjanna og lék í unglingamyndinni
geysivinsælu, 10 Things I Hate About You, árið 1999. Í kjölfarið fékk hann
fjölmörg bitastæð verkefni, en hans þekktasta er tvímælalaust hlutverk Ennis
del Mar í Brokeback Mountain, sem tryggði honum Óskarstilnefningu.
Ledger fannst látinn í íbúð sinni 22. janúar síðastliðinn, 28 ára að aldri.
Enn er margt á huldu varðandi andlát hans. Við rúmið hans fundust
svefntöflur og kvíðalyf, en ekkert bréf, og er talið að hann hafi látist
af slysförum. Ledger var syrgður um gervallan heim enda um
einn efnilegasta leikara samtímans að ræða.
Brandon Lee
1. febrúar 1965 - 31. mars 1993
Brandon Lee var sonur kínversku
bardagagoðsagnarinnar Bruce Lee, sem
lést þegar Brandon var átta ára. Hann
hóf ungur að reyna fyrir sér í leiklistinni
og árið 1993 fékk hann aðalhlutverkið
í kvikmyndinni The Crow. Í kvikmyndinni
er atriði þar sem skotið er úr byssu á persónu
Brandons og var ákveðið að notast við alvöru
byssu við upptökur á því. Prufuskoti var hleypt af,
en kúlan festist í hlaupinu án þess að tökuliðið
tæki eftir því. Byssan var því næst fyllt af púðri en
þegar úr henni var skotið fór kúlan úr henni og í
líkama Brandons. Úrskurðað var að um slys hefði
verið að ræða, en marga grunar að maðkur
hafi verið í mysunni. Brandon er jarðaður
við hlið föður síns í Seattle.
River Phoenix
23. ágúst 1970 - 31. október 1993
River Phoenix var aðeins 15 ára þegar hann lék
í gæðamyndinni Stand by Me og í kjölfarið fylgdu
myndir á borð við Little Nikita og Running on Empty,
sem tryggði honum tilnefningu til Óskarsverðlauna. Undir lok
níunda áratugarins var hann af mörgum talinn líklegur til að
verða einn af þeim stærstu innan fárra ára. Phoenix átti þó sinn
djöful að draga og er hann var nýorðinn 23 ára lést hann af
ofneyslu eiturlyfja fyrir utan skemmtistaðinn Viper Room í Los
Angeles. Bróðir hans, Joaquin Phoenix, hringdi á lögregluna
og tilkynnti um atburðinn og var símtalið flutt margsinnis í
fjölmiðlum næstu vikur eftir atburðinn.
Chris Farley
15. febrúar 1964 - 18. desember 1997
Chris Farley var einn af vinsælustu gamanleikurum
10. áratugarins en hann ruddi sér fyrst til rúms árið
1990, þegar hann var innvígður í Saturday Night Live hópinn.
Hann lék í röð vinsælla gamanmynda en eftir því sem stjarna
hans varð skærari fór heilsu hans hrakandi. Fyrripart árs 1997
var Farley mikið í fréttum vegna heilsu sinnar, en hann var langt
yfir kjörþyngd og átti auk þess við alvarlegan vímuefnavanda að
stríða. Hann fór í sína fyrstu meðferð árið 1993 og átti eftir að
fara í 30 í viðbót án þess að ná tökum á neyslu sinni. Farley lést
svo í íbúð sinni rétt fyrir jól 1997 af ofneyslu kókaíns og heróíns,
en það var yngri bróðir hans sem kom að honum.
Aaliyah
16. jan. 1979 - 25. ágúst 2001
Aaliyah var rétt skriðin á táningsaldur
þegar hún varð þekkt söngkona. Hún fékk
fljótt áhuga á leiklist og um aldamótin
lék hún í sinni fyrstu stóru mynd, Romeo
Must Die, og ári síðar í Queen of the
Damned. Aliyah var 22 ára þegar hún lést
í flugslysi á Bahamaeyjum þar sem hún
hafði verið við tökur á myndbandi við lagið
Rock the Boat. Flugvélin var komin um 70
metra frá flugbrautinni þegar hún skall til
jarðar og allir níu sem voru innanborðs létust.
Rannsókn leiddi í ljós að flugvélin hefði verið
ofhlaðin yfirgengilega, en auk þess hafði
flugmaðurinn ekki tilskilin réttindi. Aaliyah
lést klukkan 18:50 sem er, ótrúlegt en
satt, sami tími og hún fæddist á.
28
ára
28
ára
Brad Renfro
25. júlí 1982 - 15. janúar 2008
Brad Renfro var aðeins 11 ára þegar
hann lék í kvikmyndinni The Client sem
varð gríðarlega vinsæl. Hann fékk mörg
áberandi verkefni í kjölfarið og var af flestum
talinn á meðal efnilegustu leikara 10.
áratugarins. Hann átti hins vegar við mikinn
vímuefnavanda að stríða og prýddi eitt sinn forsíðu
L.A. Times í handjárnum, eftir að hafa verið tekinn fyrir
eign á heróíni og meþadoni. Renfro var 25 ára þegar
hann fannst látinn í íbúð sinni í Los Angeles 15. janúar
síðastliðinn. Vitað er að um kvöldið hafði hann setið að harðri
drykkju ásamt félögum sínum. Talið er að hann hafi látist vegna
ofneyslu áfengis og eiturlyfja, en dánarorsök hefur þó enn ekki
verið gefin upp.
Tupac Shakur
16. júní 1971 - 13. september 1996
Einn fremsti rappari sögunnar og sá
söluhæsti ef marka má Heimsmetabók
Guinness. Tupac þótti einnig öflugur leikari
og lék í sinni fyrstu kvikmynd, Juice, árið
1992 og naut hún talsverðra vinsælda.
Tupac varð í kjölfarið eftirsóttur á hvíta
tjaldinu og átti eftir að leika í fimm kvikmyndum
til viðbótar, en þrjár af þeim komu út eftir dauða
hans. Tupac var 25 ára þegar hann var skotinn
til bana þar sem hann sat í bíl eftir hnefaleikabardaga Mike
Tyson og Bruce Seldon í Las Vegas. Enginn var sakfelldur
fyrir morðið, en fjöldi fólks hefur rannsakað málið á eigin
forsendum og eru uppi margar kenningar um dauða hans. Þá
vilja einhverjir meina að Tupac sé hreinlega ekki dáinn.
Jonathan Brandis
13. apríl 1976 - 12. nóv. 2003
Jonathan Brandis var kornungur
þegar hann hóf að leika
gestahlutverk í sjónvarpsþáttum
og árið 1992 komu út tvær
vinsælar unglingamyndir með
honum í aðalhlutverki, Sidekicks
og Ladybugs. Brandis varð feikivinsæll í
kjölfarið, einna helst á meðal ungra stúlkna.
Með árunum fór þó að halla undan fæti hjá
kappanum og hann fékk fá bitastæð hlutverk.
Hann var 27 ára þegar hann hengdi sig á heimili sínu
eftir að hafa farið út að borða með vinum sínum fyrr um
kvöldið. Atburðurinn kom fjölskyldu og vinum Brandis í
opna skjöldu, enda hafði fátt bent til þess að hann væri í
slæmu andlegu ástandi og hann átti ekki við vímuefnavanda
að stríða.
23
ára
33
ára
22
ára
25
ára
27
ára
25
ára
Yfirvöld í Pakistan hugleiða um
þessar mundir hvort það ætti að
afnema áratuga gamalt bann á
sýningum indverskra Bollywood-
mynda í landinu.
Bannið var sett á árið 1965 þegar
stríð Indverja og Pakistana stóð
sem hæst en nú er tíðin önnur og
pakistanskir kvikmynda-
áhugamenn vilja ólmir fá að sjá
Bollywood-myndir án þess að
þurfa að óttast grimma laganna
verði. vij