24 stundir - 30.01.2008, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 24stundir
Feim-Lene Bjerre
Bæjarlind 6
www.feim.is
Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-16
Ný sending
af gardínum
og rúmteppum
Pólitíkusar þreytast seint á að
kenna tölvuleikjum um allt hið
slæma í samfélaginu. Nú hefur
hinn svokallaði Sierra Club lagt
fram þá tillögu fyrir þingið í
Nýju- Mexíkó að lagður verði á
eins prósents skattur á alla selda
tölvuleiki.
Gróðinn af skattlagningunni
myndi svo renna í að styrkja
heilsuræktarnámskeið sem eiga
að vega á móti öllu því slæma
sem leikirnir valda börnunum,
svo sem lélegri námsárangri, of-
fitu og athyglisbresti. vij
Tölvuleikina ætti
að skattleggja
Burnout-leikirnir eru líklegast
vinsælustu bílaleikir seinustu ára.
Framleiðendur Burnout reyna ekki
að gera leikinn eins raunverulegan
og hægt er, eins og t.d. í Gran Tur-
ismo-leikjunum, heldur er hraði,
spenna og árekstrar það sem ræður
ríkjum.
Burnout Paradise er fimmti
Burnout-leikurinn í seríunni, en í
raun má segja að hér sé glænýr leik-
ur á ferð. Nánast öllu hefur verið
breytt, en því miður ekki öllu til
hins betra. Eitt það vinsælasta í
fyrri Burnout-leikjum var svokallað
Crash Mode, þar sem tilgangurinn
var sá einn að valda eins stórum
árekstri og mögulegt var. Því meiri
eyðilegging, því fleiri stig. Í Paradise
er ekkert Crash Mode, þess í stað
kom eitthvað sem kallast Show-
time. Í rauninni það sama en hægt
er að setja Showtime í gang hvar
sem er í leiknum með því að halda
inni tökkum á fjarstýringunni. Því
miður er það ekki alveg að gera sig í
samanburði við Crash Mode eldri
leikjanna.
Ólíkt fyrri leikjum er Paradise al-
gerlega opinn, maður ekur um
borgina Paradís og finnur sér kapp-
akstur og annað til að vinna sér inn
pening, sem auðvitað er eytt í að
pimpa upp bílinn sinn. Það er svo-
lítið ruglingslegt að spila leikinn á
þann hátt, í stað þess að velja hvað
maður ætlar að gera í valmynd, að
þurfa að aka um og leita að því.
Hins vegar gerir þetta leikinn stærri
og endingarbetri.
Burnout er kappakstursleikur
fyrst og fremst, þar sem hraðinn
skiptir öllu og leikmaðurinn veit að
hann hefur ekki algera stjórn á
bílnum. Það hefur svínvirkað í eldri
leikjum og er aðeins orðið betra í
Burnout Paradise þökk sé öflugri
vélbúnaði sem nýjustu leikjatölv-
urnar bjóða upp á.
Grafík leiksins er til fyrirmyndar,
hins vegar er leiðinlegt að enginn
tími líður í leiknum, það er alltaf
hábjartur dagur. Þegar öllu er á
botninn hvolft leikurinn góð þróun
á leikjaseríunni, en þeir sem búast
við þeim Burnout sem þeir þekktu
gætu orðið fyrir vonbrigðum.
Velkominn í paradís
BURNOUT PARADISE
PS3 & Xbox360
3+
Elías R. Ragnarsson elli@24stundir.is
81%=
SPILUN: 75%
ENDING: 75%
GRAFÍK: 90%
HLJÓÐ: 85%
Á sívaxandi tölvuleikjamarkaði
virðist sem gömlu, góðu heim-
ilistölvurnar séu að verða út-
undan. Leikjavefurinn Shack-
news birti nýverið úttekt yfir
tölvuleikjaárið 2007 og þar kom í
ljós að af þeim 18.85 milljörðum
dollara sem leikjaiðnaðurinn hal-
aði inn í Bandaríkjunum á síð-
asta ári komu einungis um 910
milljónir af hagnaðinum frá PC-
tölvunum, eða um 14 prósent.
Það hlýtur að vera ógnvekjandi
fyrir leikjaframleiðendur þar sem
heimilistölvurnar eru mun al-
gengari en leikjatölvurnar. vij
PC-leikir seljast
lítið sem ekkert
Blátannartæknin, Bluetooth, er
ekki bara notuð í farsímunum
því nú er einnig farið að nýta
tæknina við smíði á gervilimum.
CNN greindi frá því að tveir
bandarískir hermenn, sem misstu
báða fótleggina í Írak, hafi fengið
sérstaka gervifætur sem notast
við blátannartæknina.
Innleiðing blátannartækninnar
gerir það að verkum að fótlegg-
irnir geta skipst á gögnum og því
geta leggirnir gengið nánast
endalaust án þess að notandinn
þurfi að reyna of mikið á þá fóta-
vöðva sem eftir eru. Gallinn við
þetta er hins vegar sá að það þarf
að hlaða leggina reglulega. vij
Blátannarfætur
fyrir fótalausa
Steve Jobs, driffjöður Apple-
tölvufyrirtækisins, hefur sent
tölvupóst til allra starfsmanna
Apple-fyrirtækisins þar sem hann
biður þá um að sýna fyrirtækinu
biðlund og ekki gefast upp þótt á
móti blási.
Ástæðan fyrir tölvupósti Jobs er
hrun Apple-överðbréfa á mörk-
uðum vestanhafs en hluturinn í
Apple hefur farið frá því að vera
202 dollarar í upphafi árs yfir í það
að vera 130 dollarar. Jobs er líklega
einn stærsti hluthafinn í Apple en
hann á yfir fimm milljóna hlut í
fyrirtækinu og því hefur hann per-
sónulega tapað um 370 milljónum
dollara.
Í pósti sínum segir Jobs að síð-
ustu vikur hafi verið hreint stór-
undarlegar og bendir á að staða
fyrirtækisins sé mjög góð þannig
að það sé engin ástæða til að óttast.
Hann sagði ennfremur að ástæð-
urnar fyrir þessu verðbréfahruni
væru af þeim toga að Apple gæti
ekkert gert til að sporna við þeim
heldur þyrfti bara að bíða. vij
Ekki gefast upp á Apple
Steve Jobs Vonar að starfsmenn
Apple bíði rólegir
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Qtrax opnaði formlega vefsíðu
sína í gær en þar mun verða boðið
upp á ótakmarkað niðurhal á lög-
legri tónlist og það besta er, nið-
urhalið mun ekki kosta notendur
krónu.
Forsvarsmenn Qtrax hafa lofað
að fullgerð muni síðan bjóða upp á
um 25 milljónir laga með jafnt
heimsfrægum sem óþekktum flytj-
endum. Á meðal þekktra nafna
sem munu hafa tónlist sína á síð-
unni eru Foo Fighters, Alicia Keys
og Daft Punk.
Gróði af auglýsingum
Reksturfjármagn Qtrax, og
greiðslur til plötuútgefenda og
tónlistarmanna, kemur frá auglýs-
ingum sem verða innbyggðar í
tónlistarspilara síðunnar en for-
svarsmenn Qtrax lofa að auglýs-
ingarnar verði ekki of áberandi eða
plássfrekar.
Notendur sækja sér sértakan
tónlistarspilara á heimasíðu Qtrax
og þegar hann er kominn í gagnið
geta notendur deilt tónlist sín á
milli í gegnum jafningjanet. Qtrax
kerfið skráir hversu oft tiltekin lög
eru sótt eða spiluð og útgefendur
fá síðan skerf greiddan í samræmi
við það.
Byrjunarörðugleikar
Eins og með margar aðrar nýj-
ungar hefur Qtrax staðið á brauð-
fótum fyrstu klukkustundir tilveru
sinnar. Plötuútgefendur, sem búnir
voru að gefa samþykki sitt fyrir
notkun tónlistar sinnar, hafa sumir
hverjir dregið samþykki sitt tilbaka
og lagaúrval er hvergi nærri því að
vera eins gott og lofað var.
Annar galli er svo að tónlist sem
sótt er á Qtrax virkar ekki í vinsæl-
ustu MP3 spilurum heimsins, iPod
frá Apple, en Qtrax hefur gefið út
að lausn á því vandamáli verði
kynnt í apríl. Qtrax gefur því fögur
fyrirheit sem ekki er alveg víst að
það geti staðið við.
Ný taktík gegn netþrjótum sem stela tónlist
Löglegt niðurhal
á ókeypis tónlist
Góður en virkar ekki
iPod er vinsælasti MP3
tónlistarspilari heims-
ins en hann virkar ekki
með Qtrax.
➤ Á meðal útgáfufyrirtækja semhöfðu lýst stuðningi við Qtrax
eru EMI, Universal Music og
Warner Music.
➤ Ford, McDonalds og Micro-soft eru á meðal þeirra fyr-
irtækja sem hafa keypt aug-
lýsingar á síðunni.
QTRAX.COM
Ókeypis, löglegt niðurhal
á tónlist er langþráður
draumur tónlistarunn-
enda sem virðist vera um
það bil að rætast með til-
komu tónlistarvefsíð-
unnar Qtrax.com.
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Forsvarsmenn Qtrax hafa lofað að
fullgerð muni síðan bjóða upp á um
25 milljónir laga með jafnt heimsfrægum
sem óþekktum flytjendum.