24 stundir - 29.02.2008, Blaðsíða 4
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
„Það er alveg ljóst að ef þessi kaup
brjóta í bága við samkeppnislög að
mati samkeppniseftirlitsins þá
verður ekkert af þeim,“ segir Júlíus
Vífill Ingvarsson, stjórnarmaður í
Orkuveitu Reykjavíkur (OR), um
frumúrskurð Samkeppnisyfirvalda
vegna fyrirhugaðra kaupa OR á
14,65 prósent hlut Hafnarfjarðar í
Hitaveitu Suðurnesja (HS).
Samkvæmt úrskurðinum telur
Samkeppniseftirlitið að það myndi
stangast á við lög að OR eigi yfir 30
prósent hlut í HS. Aðilar málsins
hafa frest til 10. mars til að skila
andmælum vegna málsins.
Júlíus Vífill segir að OR eigi eftir
að lýsa skoðunum sínum á því og
fara yfir lagalegar forsendur. „En
það eru fyrirvarar í samkomulagi
okkar við Hafnarfjarðarbæ varð-
andi þennan þátt og menn geta rétt
ímyndað sér hvort Orkuveitan ætli
sér að fara gegn lögum í þessum
efnum. Það kemur ekki til greina.“
Kaupin víst gerð án fyrirvara
Orkuveitan á nú þegar 15,6 pró-
sent í HS og myndi eiga samtals
30,25 prósent ef af kaupunum
yrði. Samkvæmt frumúrskurðin-
um er ekki ljóst hvort
Samkeppniseftirlitið er að gera at-
hugasemd við að OR eigi yfirhöf-
uð í samkeppnisaðila sínum eða
hvort fyrirtækið megi ekki eiga yf-
ir 30 prósent.
Gunnar Svavarsson, bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði, segir að ef
frumúrskurðurinn snúist um 30
prósent eignarhald sé lítið mál að
selja OR aðeins minni hlut en ætl-
að var í upphafi. „En ef þeir eru að
tala um allt eignarhaldið þá höf-
um við alltaf sagt að það sé vanda-
mál kaupandans, Orkuveitu
Reykjavíkur, vegna þess að kaupin
eru gerð án fyrirvara. Hún hefur
áður keypt af Grindavík, Reykja-
nesbæ og Hafnarfirði og sveitar-
félögin hafa auðvitað hafnað for-
kaupsrétti á þeim hlutum sem
fóru yfir til Geysis Green Energy.
Það er mjög erfitt fyrir samkeppn-
isyfirvöld að hoppa inn í og dæma
að einhver sala sé óskyld þegar
forkaupsréttarákvæðin eru út-
runninn.“
Málið orðið farsi
Guðbrandur Einarsson, sem sit-
ur í stjórn HS, segir málið vera orð-
ið farsa. „Manni er orða vant yfir
þessum farsa sem er í gangi. Það
hefði kannski mátt sjá þessa nið-
urstöðu fyrir en við hljótum að
spyrja okkur í framhaldinu að því
hvort Reykjanesbær og Grindavík
hafi mátt selja Orkuveitunni síð-
asta sumar? Það þarf að svara því
hvort Orkuveitan mátti yfirhöfuð
kaupa hlut í Hitaveitunni.“
Kaupa ekki
í óþökk laga
Orkuveitan kaupir ekki í Hitaveitu Suðurnesja ef það stangast á
við lög Hafnfirðingar segja enga slíka fyrirvara í kauptilboðinu
➤ Samkvæmt gerðum samn-ingi á að ganga frá kaupum
OR á 14,65% hlut Hafnar-
fjarðar í HS í næstu viku.
➤ Kaupin eiga að vera á geng-inu 7,0 og því á OR að greiða
7,6 milljarða fyrir hann.
➤ Samkvæmt verðmati semAskar Capital vann fyrir Hafn-
arfjörð er raunvirði hlutar í
HS 4,7. Kaupverðið sem OR á
að greiða er því 2,5 millj-
örðum yfir raunvirði.
KAUPTILBOÐ OR
Mynd/Gísli Sigurðsson
Svartsengi Þrátt fyrir frumúrskurð sam-
keppnisyfirvalda er framtíðareignarhald í
Hitaveitu Suðurnesja enn óljóst.
4 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir
Að meðaltali voru 5 klamydíutil-
felli greind á degi hverjum hér á landi
í fyrra, eða samtals 1863 tilfelli.
Til að bregðast við aukinni tíðni
kynsjúkdóma hafa Ástráður – for-
varnarfélag læknanema, Jafningja-
fræðslan og Félag um kynlíf og barn-
eignir stofnað með sér
samstarfshópinn SEKS sem mun
blása til vitundarvakningar um notk-
un smokksins með opnunarhátíð í
Hinu húsinu í kvöld.
„Við viljum þrýsta á stjórnvöld að
niðurgreiða smokka,“ segir Ösp
Árnadóttir, framkvæmdastjóri Jafn-
ingjafræðslunnar. „Reynsla okkar af
starfi með unglingum sýnir að kostn-
aður er helsta ástæða þess að ungling-
ar nota ekki smokka.“
Þá sé nauðsynlegt að vekja unglinga
til vitundar um að tíðni kynsjúkdó-
masmita sé að aukast. „Miðað við fyr-
irspurnir sem Hinu húsinu og Ástráði
berast hafa unglingar töluverðar
áhyggjur af ótímabærum þungunum,
en líta á kynsjúkdóma sem minna
vandamál,“ segir Ösp. hos
Vitundarvakning um noktun smokksins
Smituðum fjölgar
STUTT
● Skattsvikarar eltir út Skúli
Eggert Þórðarson ríkisskatt-
stjóri hefur óskað eftir upplýs-
ingum af lista þýskra skatta-
yfirvalda með nöfnum 1400
manna sem grunaðir eru um að
hafa svikið undan skatti í skjóli
bankaleyndar í Liechtenstein.
Hann sagði í fréttum Útvarps-
ins, að embættið vildi beita sér
með hraði í málinu. mbl
● Sparað í borginni Borg-
arráð Reykjavíkur samþykkti í
gær tillögu Ólafs F. Magn-
ússonar borgarstjóra um að-
gerðir til aukins aðhalds við
yfirstjórn borgarinnar sam-
hliða þriggja ára áætlun. Þar
segir að nauðsynlegt sé að
kanna aðgerðir sem leitt geti
til sparnaðar, sérstaklega
kostnað við nefndir og ráð
borgarinnar.
mbl
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin könnuðu að þessu sinni verð á létt
kakómjólk í 330 ml plastflösku.
Hæsta verð reyndist vera 23,5% hærra en það lægsta
eða 23 króna munur. Þessi verðmunur er minni en oft
kemur fram hjá matvöruverslunum.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
23,5% munur á kakómjólk
Sonja
McManus
NEYTENDAVAKTIN
Létt kakómjólk 330 ml.
Verslun Verð Verðmunur
Þín verslun Seljabraut 98
Krónan 99 1,0 %
Nettó 100 2,0 %
Hagkaup 117 19,4 %
11 - 11 119 21,4 %
Samkaup - Strax 121 23,5 %
Póst- og fjarskiptastofnun hefur
ákveðið að heimila Íslandspósti að
fækka dreifingardögum úr fimm í
þrjá á tveimur landpóstaleiðum
sem farnar eru frá Patreksfirði og
Króksfjarðarnesi. Ákvörðunin tek-
ur til 45 heimila á þessum stöðum.
Ákveði Íslandspóstur að nýta sér
heimildina verður fjöldi heimila
sem ekki fá fimm daga póstþjón-
ustu 166 talsins, en þau voru 121
fyrir.
Íslandspóstur sendi Póst- og
fjarskiptastofnun bréf í lok septem-
ber þar sem óskað var eftir því að
dreifingardögum yrði fækkað.
Í bréfinu segir að Íslandspóstur
telji að fyrirtækið eigi erfitt með að
tryggja hagkvæma og virka póst-
þjónustu ef því verði gert að halda
áfram að bjóða upp á fimm daga
þjónustu til staða þar sem í senn
séu fámennir og landfræðilega af-
skekktir. Hár kostnaður við að
þjónusta heimili í sveitum megi
ekki leiða til kostnaðarhækkunar
fyrir aðra notendur þjónustunnar.
„Það er mikill kurr í fólkinu hér
verði þessi þjónustuskerðing Pósts-
ins að veruleika,“ segir Óskar
Steingrímsson sveitarstjóri Reyk-
hólahrepps. „Við teljum að allir
eigi að sitja við sama borð í þessum
efnum, sama hvar þeir búa á land-
inu.“ Óskar útilokar ekki að sveit-
arfélagið kæri ákvörðun Póst- og
fjarskiptastofnunar til úrskurðar-
nefndar fjarskipta- og póstmála..
„Við erum alltaf með þessi mál
til skoðunar enda er okkur uppá-
lagt að reka fyrirtækið á sem hag-
kvæmastan máta þannig að við
skoðum þessi mál með reglulegu
millibili.“ Þetta segir Ingimundur
Sigurpálsson, forstjóri Íslands-
pósts, aðspurður hvort fyrirtækið
ætli að óska eftir fækkun póstdreif-
ingadaga á fleiri stöðum á landinu.
„Eins og er er ekkert slíkt í píp-
unum hjá okkur, en það er hlut-
verk okkar eins og annarra í rekstri
að gæta hagkvæmis í rekstri fyr-
irtækisins.“ aegir@24stundir.is
Pósturinn má fækka póstdreifingardögum
Kurr í íbúum vegna
þjónustuskerðingar
Árvakur/Sverrir
Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum
• Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars)
Allt fyrir skrifstofuna
undir 1 þaki