24 stundir - 29.02.2008, Blaðsíða 8

24 stundir - 29.02.2008, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir „Forgangsakreinar strætó eru hunsaðar, sérstaklega í Lækjargötu,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmda- stjóri Strætó bs., og bætir við: „Vagnstjórar eru orðnir þreyttir á ástandinu.“ Guðbrandur Sigurðsson, aðal- varðstjóri umferðardeildar lögreglunnar í Reykjavík, segir að það hafi ekki komið fyrir að menn hafi verið sektaðir fyrir að keyra á forgangsakreinunum, en það þurfi að skilgreina brotið betur í löggjöfinni. „Farið var af stað með þessar akreinar án þess að vera með skýr úrræði,“ segir Guðbrandur. Búið er að leggja fram frumvarp á Alþingi þar sem bætt verður inn í umferð- arlögin nýjum málslið, sem er svohljóðandi: „Almenn umferð ökutækja um forgangsakreinar strætisvagna og leigubifreiða er óheimil.“ Ólöf Nordal, formaður samgöngunefndar og ein þeirra sem lögðu málið fyrir Alþingi, segir að ekki sé enn komið að málinu hjá nefndinni. Hún segir lögregluna ekki hafa lagalega heimild til þess að sekta eins og lögin eru í dag. sgs Forgangsakreinar fyrir strætó og leigubíla ekki til í lögum Lögreglan má ekki sekta Samvinna Íslendinga og Svía um að koma fleiri lyfjum inn á íslenska lyfjamarkaðinn er fyrsta skrefið í því að koma á norrænum lyfjamarkaði, segir á fréttavef sænsku lyfjastofn- unarinnar, Läkemedelsverket. Haft er eftir Christer Backman, sem er í forsvari hjá sænsku lyfjastofnun- inni, að reyna eigi að fá fyrirtæki sem sæki um leyfi þar til að sækja líka um á Íslandi. Einnig eigi að biðja þau um að sækja um hér vegna lyfja sem þegar hafi verið samþykkt í Svíþjóð. Greint er frá því að íslensk yfirvöld muni samþykkja sænskar merkingar á pakkningum. Árangur- inn verður kynntur á ráðherrafundi Norðurlandaráðs í júní. ibs Samvinna við Svía um markaðsleyfi Skref að norrænum lyfjamarkaði „Við erum með 25 tegundir af bruggi á lager en getum reddað þeim bjór sem fólk vill, t.d. Heineken eða Guinness,“ segir Þórarinn Egill Sveinsson um- boðsmaður Brugghússins ehf. en fyrirtækið er að hefja inn- flutning á sérhæfðum brugg- vélum. Þær verða leigðar út til sveitahótela og veitingastaða. „Svo er hægt að þróa eigin bjór í samráði við Brugghúsið, t.d. setja út í hann íslenskar jurtir og fá þannig ákveðinn heimabrag á þetta,“ segir Þórarinn. Tækið er á við stóran ísskáp að stærð. Það getur bruggað allt að 195 lítrum í einu en hver lögun tekur um tíu daga. Þá getur fyrirtækið ann- að hvort selt beint af kútnum og hafið nýja lögun þegar bjórinn er bú- inn eða dælt bjórnum á annan kút og hafið nýja lögun strax. „Fjárbindingin er engin fyrir staðinn því ekkert er greitt fyrr en kom- inn er bjór til að selja,“ segir Þórarinn. Greidd er mánaðarleg leiga af bruggtækinu og svo er greitt fyrir hverja lögun en Brugghúsið stendur skil á áfengisgjaldi og öllum skatti. thorakristin@24stundir.is Á þriðja tug bruggtegunda Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra telur ekki ástæðu til þess að koma á fót rannsókn- arnefnd til að rannsaka fangaflug í íslenskri lofthelgi. Þetta kom fram í svari hennar til Steingríms J. Sigfússonar á Alþingi í gær. Útgangspunktur Steingríms var danskur sjónvarpsþáttur sem danska Ríkissjónvarpið gerði um fangaflug Bandaríkjamanna er sýndur var í Sjónvarpinu á mánu- dag. Sagði Steingrímur Ísland hafi komið verulega við sögu í þættinum og að hann hefði sýnt að hægt væri að rannsaka málið. Það gengi í bága við þau orð ráð- herra að ekki væri hægt að sann- reyna ólögmætt fangaflug yfir landinu. Ráðherra sagði að aðal- atriðið væri að grípa til aðgerða til að tryggja að ólögmætt fanga- flug ætti sér ekki stað í íslenskri lofthelgi í framtíðinni. þkþ Fangaflug CIA ekki skoðað Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að viðurkenna sjálfstæði Kosovo, en ekki liggur fyrir endanleg ákvörðun um dagsetningu. Utan- ríkisráðuneytið segir að vegna hinna sérstöku aðstæðna í Kos- ovo muni viðurkenning á sjálf- stæði þess ekki hafa fordæm- isgildi, en hafa beri öryggi og stöðugleika á svæðinu að leið- arljósi. mbl.is Sjálfstæði Kos- ovo viðurkennt Ekki er loku fyrir það skotið að virðisaukaskattur á lyfjum verði lækkaður á þessu kjörtímabili ef marka má orð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, á þingi í gær. Svaraði hann þar fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar. „Ríkisstjórnin sem nú situr er mikil skattalækkanaríkisstjórn þannig að við skulum sjá hvað verður,“ sagði ráðherra. þkþ Verðlækkun á lyfjum möguleg MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Styrkir úr Æskulýðssjóði Æskulýðssjóður starfar samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007 og reglum um Æskulýðssjóð nr. 60/2008. Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er 1. apríl 2008. Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka: 1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra. 2. Þjálfun forustufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða. 3. Nýjungar og þróunarverkefni. 4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði, né ferðir hópa. Menntamálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs. Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni. Í umsókn til Æskulýðssjóðs skulu koma fram upplýsingar um: - nafn æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka - nafn og heimilisfang umsækjanda - heiti, lýsing og markmið verkefnis, ásamt kostnaðar- og tímaáætlun - áætlaðan fjölda þátttakenda - samstarfsaðila eftir því sem við á - kennitölu og númer bankareiknings er styrkurinn á að leggjast inn á ef viðkomandi hefur fengið úthlutað styrk. Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins á vefslóðinni http://umsoknir.stjr.is. Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda (ekki kennitölu æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka) og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu. Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar. Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja menntamálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Þar er umsóknareyðublað fyrir Æskulýðssjóð. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna með því skrá sig inn á umsóknavefinn. Nánari upplýsingar um Æskulýðssjóð veitir Ásta Ingólfsdóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á asta.ingolfsdottir@mrn.stjr.is. Menntamálaráðuneyti, 27. febrúar 2008. menntamalaraduneyti.is

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.