24 stundir - 29.02.2008, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir
fermingargjöf
Flott hugmynd að
Kira 3
Frábært kúlutjald með stóru fortjaldi.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
41
32
7
02
/0
8
Fermingartilboð
9.990 kr.
Verð áður 11.990 kr.
Tjöld frá 6.990 kr.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Veislulist og Skútan, Hólshrauni 3 - Hafnarfirði - 555 1810
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
„Fermingarveislan er frábært tæki-
færi fyrir fermingarbarnið að æfa
sig sem gestgjafa. Eins og t.d. með
því að útbúa boðskortin á réttan
hátt og vera tilbúin/n að standa
upp og halda pínulitla tölu og
bjóða fólk velkomið. Þá er mik-
ilvægt að fermingarbarnið loki sig
ekki af inni í herbergi heldur sé
sýnilegt allan tímann og taki á
móti gestunum og hafi málbragð
við alla gestina.“
Gjafabókhald
„Mikilvægt er að halda full-
komið bókhald yfir gjafir þannig
að það megi þakka fyrir þær. Kort-
in eiga það til að týnast þegar þær
eru settar á gjafaborðið. Þetta er
leiðinlegt þegar fólk hefur haft
mikið fyrir gjöfunum og því er svo
mikilvægt að hafa þessa hluti á
hreinu,“ segir Bergþór. Þá segir
hann að almennt séð finnist sér
heppilegast að opna gjafirnar eftir
á þar sem þær séu ekki það sem
fermingin snýst um auk þess sem
óþægilegur samanburður getur
skapast fyrir gestina.
Dónalegt að standa á beit
En hvernig á maður að borða
snyrtilega í fermingarveislum þar
sem oft er þröng á þingi? „Ef um
matar- eða kaffiveislu er að ræða er
nú yfirleitt komið fyrir litlum
borðum þar sem leggja má frá sér
diska eða glös. Þegar veitingarnar
eru eitthvað sem fólk tekur í hönd-
ina, eins og nú virðist orðið al-
gengara, þá er aðalatriðið að
standa ekki við borðið og hindra
að aðrir komist að. Sumir taka líka
servíettu og eru að raða á hana eins
og disk sem er alveg óþarfi í raun-
inni því borðið fer ekkert frá
manni,“ segir Bergþór.
Árvakur/Frikki
Fermingarveislur góð æfing fyrir framtíðina
Mannasiðirnir og
kurteisi mikilvæg
➤ Bergþór mælir með að sendaút aðskilin boðskort frekar en
þér/ykkur er boðið þar sem
slíkt sé stofnanalegt.
➤ Mynd á boðskorti ætti aðvera nýleg til þæginda fyrir
gömlu frænkurnar.
➤ Ef fingramatur er á borðumskal taka sér einn bita og fara
frá endrum og sinnum.
NOKKUR GÓÐ RÁÐKurteisi og mannasiðir
eru mikilvægir í ferming-
arveislum líkt og á öðrum
mannamótum. Bergþór
Pálsson er sérfróður í
mannasiðum og gefur
hér nokkur góð ráð.
Kurteisi og manna-
siðir eru mikilvægir í
fermingarveislunni.
Þótt allir vilji samgleðjast
fermingarbarninu og taka þátt í
degi þess eru fermingarveislur
ekki endilega efstar á óskalista
allra. Þar kemur oft saman fólk
sem þekkist lítið sem ekkert og
því mikilvægt að reyna á ein-
hvern hátt að blanda fólki sam-
an.
Bergþór segir ágætt að vera
undirbúinn með leik þar sem
hægt er að skipta í tvö lið svo
allir geti tekið þátt. Eins sé góð
hugmynd að hafa söngtexta til-
búna. Gaman er ef foreldri eða
systkini geta haft tilbúna og und-
irbúna litla, sæta tölu. Annars sé
mikilvægast að tækifærisræður
séu ekki lengri en þrjár mínútur.
Eitthvað fyrir alla
Það er í raun ekkert sem ekki
má gera í fermingarveislum og
fer algjörlega eftir smekk og ósk-
um fermingarbarnsins og for-
eldra. Ef mikið er af yngri börn-
um í veislunni er t.d. allt í lagi
að þau fái að horfa á vídeó eftir
að búið er að borða. Myndasýn-
ingar af fermingarbarninu síðan
það var lítið geta verið skemmti-
legar en eins og með ræðurnar
ættu þær ekki að vera of langar.
Hlustið fyrst og fremst á ferm-
ingarbarnið og heyrið hvernig
hún eða hann vilja helst hafa
veisluna. Þetta er jú dagur ferm-
ingarbarnsins.
Allir eiga að geta skemmt sér í veislunni
Enginn kvíðahnútur
Stuð er ekki alltaf fyrir hendi
í veislum en úr því má bæta.