24 stundir - 29.02.2008, Page 15
Sigrún Ósk Sigurðardóttir skrifar:
Talsvert hefur
verið fjallað að
undanförnu í 24
stundum um
sunnlenskan
bjór sem vænt-
anlegur er á
markað og starf-
semi og reglur
ÁTVR í því sam-
bandi. Mér þótti ánægjulegt af
því tilefni að eiga þess kost að
útskýra í grein hvernig Sunn-
lendingar eiga að geta notið
bjórsins eins og aðrir í vínbúð-
um og á veitingastöðum á Suð-
urlandi þegar hann kemur á
markað.
Það var einnig gott að fá tæki-
færi til að eyða þeim misskiln-
ingi, sem fram kom í leiðara
blaðsins, að bjór sem fram-
leiddur er á Árskógsströnd eða
Akureyri sé fluttur til Reykjavík-
ur og síðan aftur til baka í vín-
búðir í nágrenninu. Misskiln-
ingur ritstjórans er sennilega
sprottinn af því að þessi háttur
var hafður á um nokkurra vikna
skeið á síðasta ári sem liður í
ákveðnum skipulagsbreytingum.
Innan tíðar kemur sunnlenskur
bjór á markað. Við hjá ÁTVR
tökum auknu vöruvali vel og
eigum von á að viðskiptavinir
okkar geri það líka.
Höfundur er aðstoðarforstjóri ÁTVR
BRÉF TIL BLAÐSINS
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Væntanlegur Innan tíðar kem-
ur sunnlenskur bjór á markað.
24stundir FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 15
Þór Sigfússon skrifar:
Bréf til Kristínar Tómasdóttur
pistlahöfundar 24 stunda
Kæra Kristín!
Í pistli þínum í 24
stundum á mið-
vikudag segist þú
hafa keypt tíma-
bundna ferða-
tryggingu hjá
Sjóvá en að þú
hafir ekki fengið
farangurstjón
bætt. Samkvæmt okkar bókum
ertu vel tryggð hjá Sjóvá fyrir far-
angurstjóni og því kemur mér
þetta á óvart. Við finnum hins
vegar ekkert um þetta mál hjá
okkur og enginn kannast við að
hafa rætt við þig en þú segist hafa
rætt við á annan tug manna hjá
Sjóvá vegna þessa máls. Við erum
búin að reyna að ná í þig í síma
og í tölvupósti en án árangurs og
hvet ég þig til þess að hafa sam-
band við mig í síma 4402001 svo
við getum klárað þetta mál. Við
viljum að viðskiptavinir okkar fái
skýr svör og góða þjónustu.
Höfundur er forstjóri Sjóvár
BRÉF TIL BLAÐSINS
Valdimar skrifar:
Nú er nóg kom-
ið og neytendur
geta ekki staðið
undir nafni ef
þeir standa ekki
upp og beita ol-
íufélögin þving-
unaraðgerðum.
Hættum að
kaupa bensín
þar til bensínið er lækkað. Það
gefur augaleið að einhvern tím-
ann hlýtur að vera svigrúm til að
lækka bensínið þar sem alltaf
virðist vera svigrúm til að hækka
það. Við höfum öll gott af að
ganga svolítið.
BRÉF TIL BLAÐSINS
María skrifar:
Ég verð að við-
urkenna að ég er
hálft í hvoru
ánægð með dóm-
inn sem féll ný-
lega, þar sem um-
mæli bloggara
voru dæmd dauð
og ómerk. Ég hef
lengi undrast hvað fólk leyfir sér
á bloggsíðum, sínum eigin eða í
athugasemdaboxum á öðrum síð-
um, og ég held að þessi dómur
muni breyta þessum veruleika.
Þrátt fyrir málfrelsi verðum við
að sýna hvert öðru eðlilega virð-
ingu og kurteisi og það er eitt-
hvað sem hefur ekki viðgengist á
mörgum bloggsíðum. Sumt sem
ég hef lesið hefur hreinlega valdið
óhug hjá mér vegna þess að fólk
virðist ekki átta sig á að bloggið
er fjölmiðill sem allir geta lesið.
Vonandi breytist það nú.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ingimundur skrifar:
Á ferðalagi mínu til New York á
dögunum lenti ég í því að flugi
mínu með Ice-
landair var aflýst
vegna veðurs,
þrátt fyrir að
önnur flug hefðu
farið á sama
tíma. Það var því
ekki veðrið held-
ur skortur á vélum sem var
ástæðan. Slíkt verður maður að
sætta sig við, en erfiðara er að
sætta sig við ófullnægjandi við-
brögð Icelandair við vandræð-
unum. Upplýsingar til farþega
voru af skornum skammti, til-
kynning um að fluginu hefði
verið aflýst kom ekki fyrr en um
tveim tímum fyrir áætlaða brott-
för og voru því farþegar flestir
komnir í Leifsstöð. Eftir langa
bið eftir upplýsingum var það
ljóst að flugfélagið ætlaði ekkert
að gera til að létta farþegum líf-
ið. Við þurftum því að borga til
að koma okkur aftur til Reykja-
víkur, eða panta hótelgistingu í
Keflavík. Flugfélagið aðstoðaði
heldur ekki við breytingar á
framhaldsflugum þeirra sem
héldu áfram för. Farþegar voru
fúlir og pirraðir. Það hefði ekki
þurft mikið til að forðast það.
Afsláttur í flugrútuna, tilboð á
gistingu, bara eitthvað til að
sýna að þeim var ekki alveg
sama. Þetta hefur sennilega kost-
að hvern farþega minnst 10.000
krónur, og álit þessara farþega á
Icelandair verður aldrei samt.
BRÉF TIL BLAÐSINS