24 stundir


24 stundir - 29.02.2008, Qupperneq 30

24 stundir - 29.02.2008, Qupperneq 30
Oftast liggur nokkurra vikna og jafnvel mánaða undirbúningur að veislum líkt og fermingarveislum. Fyrst er að búa til gestalistann og ákveða stað og stund. Sumir kjósa að halda fermingarveisluna heima á meðan aðrir vilja halda stærri veislur í leigðum sölum. Síðan þarf að hafa skreytingar og leirtau á hreinu, það er að finna út hvar maður getur fengið slíkt lánað sé ekki nóg til heima við. Ef skemmti- atriði eiga að vera í veislunni er líka gott að þeir sem sjá um slíkt undirbúi sig í tíma svo allt gangi vel. Þá þarf að sjálfsögðu að finna föt á fermingarbarnið og panta tíma í hárgreiðslu eða klippingu. Boðskortin Nú eru sjálfsagt flestir búnir að senda út boðskort og þeir sem ekki komast jafnvel búnir að láta vita af slíku. Það auðveldar alla skipu- lagningu gífurlega að vita hve mörgum maður á von á. Farðu yfir listann af öllu sem til þarf og full- vissaðu þig um að allt sé í góðum málum. Nokkrum dögum fyrir stóra daginn skaltu síðan yfirfara allan tækjakost heimilisins og sjá til þess að myndavélar og slíkt séu fullhlaðnar og virki vel. Ef einhver úr fjölskyldunni ætlar að taka myndir getur verið gott að sá hinn sami æfi sig fyrirfram til að kunna almennilega á græjurnar. Á fermingardaginn Passaðu að föt fermingarbarns- ins séu slétt og fín. Kannaðu veit- ingamál um morguninn og sjáðu til þess að allt sé í standi innanhúss og utan ef halda á veisluna heima. Ef fermingin er að morgni er gott að allir fái sér staðgóðan morg- unverð áður en haldið er í kirkj- una. Sé fermingin hins vegar eftir hádegi má eiga notalega stund saman með nánustu fjölskyldunni í hádeginu yfir léttu snarli. Að mörgu þarf að hyggja fyrir fermingardaginn Ekkert stress með minnislista Á fermingardaginn er notalegt að fjöl- skyldan eigi góða stund saman áður en haldið er í kirkjuna. 30 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir Fermingarfötin eru líklega eitt af því sem skiptir fermingarbarnið sjálft höfuðmáli og getur verið vandasamt að finna þau réttu. Gef- ið fermingarbarninu góðan tíma til þess að kíkja í búðir og verið því innan handar. Ekki reyna að þröngva barninu í föt sem það myndi undir öðrum kring- umstæðum aldrei láta sjá sig í og kaupið eitthvað klassískt sem hægt er að nota oftar en einu sinni. Fermingarfötin skipta máli Þrátt fyrir að fermingardagurinn sé stór dagur í lífi flestra er óþarfi að ætlast til þess sama af öllum eftir einhverri forskrift að fermingu. Það er ekki fyrir allar ferming- arstúlkur að fara í hárgreiðslu og ef fermingarbarn vill alls ekki fara ætti ekki að neyða það til þess. Að- stoðið það frekar við að gera hárið eins og óskir standa til og fáið jafn- vel hjálp frá vinum og vanda- mönnum sem eru handlagnir. Ekki það sama fyrir alla Fermingargjöfin getur verið höf- uðverkur, sérstaklega ef þú þekkir fermingarbarnið ekki mikið. Orða- eða alfræðibækur eru alltaf góður kostur, svo og inneign í bóka- eða geisladiskabúðum. Þannig getur fermingarbarnið valið sjálft og orðið ánægt þannig að enginn þurfi að verða vandræðalegur og sitja uppi með eitthvað sem ekki fellur að smekk. Jafnvel mætti líka fá góð ráð frá foreldrum barnsins. Vandræðalegar fermingargjafir Matreiðsluþættina Meistaramatur má finna á Morgunblaðsvefnum mörgum til gagns. Finna má þætt- ina undir liðnum Fólkið. Þar má horfa á frábærar leiðbeiningar að auðveldum og ótrúlega fyrirhafn- arlitlum bakstri á kransaköku fyrir fermingarveisluna að hætti Örvars Birgissonar landsliðsbakara. Örvar bakar kransakökuna án þess að nota form eða leggja í dýrar fjár- festingar við verkið. Kransaköku- bakstur á mbl.is Það er af sem áður var þegar margra mánaða vinna var að und- irbúa fermingarveislu. Heimilið var þá gjarnan tekið í gegn frá toppi til táar, nýjar innréttingar keyptar, heimilið málað og fleira í þeim dúr. Í dag snýst fermingin frekar um fermingarbarnið sjálft heldur en að halda stóra veisla. Oftar en ekki fá fermingarbörnin að velja hvernig og hvort þau vilja halda veislu. Snýst um fermingarbarnið 10-50% Vaxtalaus lán í 6 mánuði Verslunin Rúmgott · smiðjuvegi 2 · Kópavogi · sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 www.rumgott.is Vinsælu Gel/ethanOl eldstæðin KOmin aftuR BYltinG í sVefnlausnum eitt Besta úRVal landsins á heilsudýnum feRminGaR- tilBOð Frí legugreining og fagleg ráðgjöf á heilsudýnum.

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.