24 stundir - 21.05.2008, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir
Magnús Halldórsson
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
Enn eitt vandræðamálið í skipulagsmálum Reykjavíkurborgar hefur
verið dregið fram í dagsljósið. Borgin hefur greitt Valsmönnum hf. 100
milljónir í bætur þar sem hún hefur ekki enn gefið út lóðarleigusamning
fyrir Hlíðarendalandið. Skipulag svæðisins gekk í gegn árið 2004 og
keyptu Valsmenn þá landið á tæpar 800 milljónir króna.
„Í kjölfarið fórum við á fulla ferð við að hanna og nýta landið. Síðan
kom borgin til okkar og bað okkur um að fresta framkvæmdum vegna
skipulagsbreytinga sem voru aðallega út af Háskólanum, vegalagningu og
öðru slíku,“ segir Brynjar Harðarson, stjórnarformaður Valsmanna hf., í
forsíðufrétt 24 stunda í gær. Nýr samningur milli borgar og Valsmanna
var því gerður og framkvæmdum frestað til 1. júlí 2007 og tíu milljónum
lofað á mánuði fyrir hvern mánuð sem þeir þyrftu að bíða fram yfir það
eftir að hefja framkvæmdir. Hundrað milljónirnar dekka fyrstu tíu mán-
uðina en enn segjast borgaryfirvöld ekki tilbúin með lausn. Hanna Birna
Kristjánsdóttir, formaður skipulagsráðs, segist vonast til að hún fáist á
næstu vikum. Það getur skipt tugmilljóna máli hversu margar vikur það
verða.
Stefnan í skipulagsmálum miðborgarinnar er óskýr. Borgarbúum er
sagt að landið í Vatnsmýri sé svo dýrmætt að þar þurfi að byggja en á sama
tíma sendir lóðagjafmildi borgarmeirihlutans í garð stofnana og félaga-
samtaka þar og í miðbænum í tíð meirihluta Sjálfstæðis- og Framsókn-
arflokks tvíbent skilaboð. Það er eins og borgarfulltrúarnir gleymi svona
inn á milli að lóðirnar eru þær verðmætustu í borg-
inni. Því gleyma hins vegar ekki þeir sem fá þær af-
hentar. Listaháskóli Íslands fékk lóð í Vatnsmýrinni,
vildi vera í miðbænum og skipti á henni og lóð á
draumastaðnum við fasteignafélag. Happdrætti Há-
skólans fékk lóð við Starhaga fyrir að hætta við að
opna spilasal í Mjóddinni og seldi hana með tugmillj-
óna hagnaði, svo dæmi séu tekin. Gleymum svo ekki
að Ungmennafélagi Íslands hefur verið lofað lóð við
Tryggvagötu.
Fátt kemur orðið á óvart í skipulagsmálum borg-
arinnar. Hvar mokar meirihlutinn út milljónunum
næst?
Skipulagsleysið
kostar peninga
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Það er ekki annað hægt en að ótt-
ast þær móttökur sem hinar 30
konur og börn koma til með að fá
í samfélaginu
Akranesi. Flestir á
Akranesi vilja
þessum konum og
börnum örugg-
lega vel. En aðilar
sem hugsa
skammt eru búnir
að rækta og móta
ákveðin viðhorf
hjá tilteknum einstaklingum og
umtalsverðar líkur eru á að þeir
telji sig þess umkomna að láta þau
koma í fram við hið landlausa fólk
í dagvörubúðinni, leikskólanum
eða hvar sem er. Við blasir sú stað-
reynd að íslenskt samfélag í dag
gengur ekki án hins erlenda fólks
sem er hér á vinnumarkaði.
Guðmundur Gunnarsson
gudmundur.eyjan.is
BLOGGARINN
Óttast móttökur
Hrefnubáturinn, sem var fyrstur
á miðin í dag, er gerður út frá
Kópavogshöfn.
Þegar hvalveiðar
voru nauðsyn-
legar íslensku
efnahags- og at-
vinnulífi var
Kópavogshöfn
ekki til.
Það var aldrei
þörf fyrir Kópa-
vogshöfn. En eitt-
hvað varð að gera við jarðveginn
og grjótið sem stórvirkar vinnu-
vélar Gunnars Birgissonar og
allra hinna verktakanna ruddu
upp. Með öllum grjótburðinum
var byggt samfélag sem ekki
þurfti hvalveiðar sér til við-
urværis. Og líka Kópavogshöfn.
Hana þurfti að nýta í eitthvað.
Pétur Gunnarsson
eyjan.is/hux
Þurfti að nýta
Aftur og aftur er hver höndin
upp á móti annarri og það er
merkilegt hvað Samfylkingin
gengur ítrekað
fram í því að ögra
samstarfs-
flokknum og að
koma fram eins
og sá sem valdið
hefur í samstarf-
inu. Mér sýnist á
öllu að sjálfstæð-
ismenn ætli að
láta það yfir sig ganga, enda er
valdið sætt eins og Ingibjörg Sól-
rún sagði í Borgarnesi forðum.
Hitt er annað að ólgan í Sjálf-
stæðisflokknum vex gagnvart
Samfylkingunni, það hef ég orðið
mjög var við meðal margra
ágætra vina minna í Sjálfstæð-
isflokknum.
Magnús Stefánsson
magnuss.is
Ólgan vex
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@24stundir.is
Fréttir af stærstu sveitarfélögunum voru
fyrirferðarmiklar í blaðinu í gær. Á forsíð-
unni var sagt frá því að Reykjavíkurborg hefði greitt
100 milljónir til Valsmanna í það sem kallaðar eru
tafabætur. Lóðasamningar sem átti að gefa út í júlí í
fyrra hafa enn ekki litið dagsins ljós og borgin hafði
skrifað undir ákvæði um 10 milljónir á mánuði ef hún
stæði ekki við dagsetninguna. Og nú eru sem sé 10
mánuðir liðnir og ekkert bólar á lóðasamningum.
Miðað við fréttina virðist einhver tími enn í þá og lík-
legt að borgin hafi ekki greitt síðasta reikninginn í
þessu máli. Eftir fréttinni að dæma vantar eitthvað
upp á heildarskipulagið á svæðinu enda ekkert nýtt að
framkvæmdir byrji fyrst og síðan sé skipulagt, ef á
annað borð er nokkuð skipulagt. Uppbyggingin í
Borgartúninu er gott dæmi um nýleg afrek á því sviði.
Annars virðist það í stíl borgarinnar að gera samninga
sem hún þarf að greiða stórfé fyrir. Skemmst er að
minnast byggingarleyfis sem Reykjavíkurborg gaf út á
Laugavegi og hækkaði verð eignanna verulega og síð-
an keypti borgin húsin og leyfin til baka á mörg
hundruð milljónir. Byggingarleyfin geta svo sann-
arlega verið henni dýrkeypt.
Afrek Kópavogsbæjar voru líka í fréttum í gær. Færsla
Nýbýlavegar var annað stórmálið á forsíðunni í gær en
þau áform virðast ekki hafa verið kynnt fyrir íbúum
blokkar sem fær veginn alveg upp að húsinu. Þá er
bótamál Skógræktarfélagsins gegn Kópavogsbæ einnig
í fréttum vegna skemmda á Þjóðhátíðarlundinum í
Heiðmörk. En Kópavogi tókst ekki að skáka Reykjavík
lengi enda talsvert minna sveitarfélag. Á síðu 4 eru
fréttir af Orkuveitunni og REI og þá fer verulega um
Reykvíkinga. Skyldi skaðabótamál
vera í uppsiglingu? En ekki tekur
betra við á bls. 6 þar sem fjallað er
um vilyrði borgarinnar um lóð til
UMFÍ. Minnug forsíðufréttarinnar
þess efnis að borgin sé nýbúin að
greiða 100 milljónir í tafasamning til
Vals veltir maður fyrir sér hvaða
bótakröfur geta komið út úr þessu
máli þegar fram líða stundir.
Höfundur er siðfræðingur
Sveitarfélög í tómu tjóni
ÁLIT
Salvör Nordal
salvorn@hi.is
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafknúnir
hæginda-
stólar
• Auðvelda þér að
standa upp
• Einfaldar stillingar
og fjölbreytt úrval