24 stundir - 21.05.2008, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 24stundir
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@24stundir.is a
Styttu mál þitt, skýrðu margt
með fáum orðum.
William Shakespeare
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@24stundir.is
Á föstudag, 23. maí, eru hundrað
ár frá fæðingu Jóns Engilberts. Í
tilefni þess verður efnt til sýning-
ar og sölu á völdum grafíkverkum
Jóns sem þrykkt hafa verið sér-
staklega fyrir afmælissýninguna.
Sýningin er haldin í Smiðjunni,
Ármúla 36, og opnuð sunnudag-
inn 25. maí klukkan 15.00. Greta
Engilberts, dótturdóttir lista-
mannsins, er útgefandi verkanna.
Sýningin stendur til 8. júní.
Gömul verk lifna á ný
„Þetta eru um tuttugu verk sem
hafa ekki verið til í rúm fimmtíu
ár,“ segir Greta. Ég hef alltaf verið
hrifin af grafíkverkum afa. Lista-
söfnin hafa sýnt olíuverk hans en
grafíkinni hefur því miður lítið
verið haldið á lofti. Samt var hann
brautryðjandi í gerð grafíkverka
hér á landi, formaður félagsins Ís-
lensk grafík og teiknaði merki
þess.“
Er enn að jafna mig
Greta ólst upp á heimili afa
síns. „Ég elskaði afa minn út af
lífinu og er eiginlega ennþá að
jafna mig á dauða hans,“ segir
hún. „Ég var fjórtán ára þegar
hann dó. Það líður varla sá dagur
að ég hugsi ekki til hans. Allir
veggir á heimili mínu eru þaktir
myndum eftir hann. Mér þykir
vænt um að standa að þessari
sýningu vegna þess að afi var mér
svo mikils virði.“
Róttæk ár
Jón Engilberts nam um tíma
við Listaháskólann í Kaupmanna-
höfn. Á þeim tíma var hann virk-
ur í hópi róttækra stúdenta. Þegar
seinni heimsstyrjöldin braust út
og nasistar hernámu Danmörku
var Jóni hætta búin vegna póli-
tískra afskipta en hann hafði tekið
þátt í sýningu til styrktar lýðveld-
issinnum á Spáni árið 1937. Hann
ákvað að flytja til Íslands ásamt
fjölskyldu sinni.
Heit ást
Jón kvæntist árið 1932 Tove
Fugmanns og eignuðust þau hjón
tvær dætur, Amy og Birgittu.
Fljótlega eftir heimkomu reisti
Jón húsið Englaborg á horni
Flókagötu og Rauðarárstígs og
bjó þar ásamt Tove, Birgittu og
dóttur Birgittu, Gretu.
„Hann var óskaplega góður við
konuna sína, hana Tove. Þau
leiddust úti á götu og ef þau hitt-
ust niðri í bæ fyrir tilviljun þá tók
hann hana í fangið og sveiflaði
henni. Íslendingar voru ekki vanir
slíku og störðu forviða á. Afi var
mjög gefandi maður, gaf bæði af
sér í einkalífi og listinni. Hann
var sívinnandi og skildi gríðarlega
mikið eftir sig þótt stafsævi hans
yrði ekki ýkja löng. Síðustu árin
var hann mjög lasinn og dó 62 ára
gamall. Hann var dásamlegur
maður sem bjó yfir einstakri náð-
argáfu, eins og verk hans sýna,“
segir Greta.
Greta Engilberts Afi var mjög
gefandi maður, gaf bæði af sér í
einkalífi og listinni.
Aldarafmæli Jóns Engilberts
Einstök
náðargáfa
➤ Jón Engilberts fæddist 23.maí 1908 og lést 12. febrúar
1972. Síðasta verk hans var
að taka konu sína í fangið og
þakka henni fyrir allt.
➤ Árið 1961 kom út bókin Húsmálarans, endurminningar
Jóns, skráðar af Jóhannesi
Helga.
➤ Árið 1988 kom út listaverka-bókin Jón Engilberts á vegum
Listasafns ASÍ og Lögbergs.
MAÐURINNHundrað ár eru liðin frá
fæðingu Jóns Engilberts.
Dótturdóttir hans, Greta
Engilberts, stendur fyrir
sölusýningu á völdum
grafíkverkum hans.
24stundir /RAX
Á þessum degi árið 1957 kom út skáldsagan On the
Road (Á vegum úti) eftir Jack Kerouac. Sagan segir frá
ferðalagi félaganna Sal Paradise og Dean Moriarty og
kynnum þeirra af eiturlyfjum og frjálsum ástum.
Kerouac skrifaði bókina á þremur vikum. Hann var 35
ára þegar hún kom út. Hann hafði verið tengdur svo-
nefndri Beat-hreyfingu í þó nokkurn tíma áður en
bókin kom út. Persónur í verkinu eru byggðar á
mönnum innan Beat-hreyfingarinnar, eins og Allen
Ginsberg og William Burroughs.
Kerouac fæddist árið 1922 í Massachusetts. Hann
var fótboltastjarna í skóla, gegndi herþjónustu í seinni
heimsstyrjöldinni en var rekinn úr hernum vegna per-
sónuleikatruflana. Fyrsta skáldsaga hans var The Town
and the City.
Kerouac var gríðarlegur drykkjumaður og lést í
Flórída í októbermánuði 1969, einungis 47 ára gamall.
Kerouac
slær í gegn
MENNINGARMOLINN
JPV útgáfa gefur nú út átt-
undu ljóðabók Jónasar Þor-
bjarnarsonar, Tímabundið
ástand. Jónas fæddist 18. apríl
1960 á Akureyri og ólst þar
upp. Hann lauk sjötta stigs
prófi í klassískum gítarleik frá
Nýja tónlistarskólanum 1982,
BS-prófi í sjúkraþjálfun frá
Háskóla Íslands 1985 og lærði
heimspeki við HÍ 1988-1990.
Hann hefur starfað sem land-
vörður, blaðamaður, þjónn og
sjúkraþjálfari en notið starfs-
launa rithöfunda og fengist að
mestu við ritstörf frá 1989.
Ný ljóð
Jónasar
Út er komin
hjá bóka-
forlaginu
Bjarti bókin
Brúðkaups-
nóttin eftir
Ian McEwan, í
þýðingu Ugga
Jónssonar.
Brúðkaupsnóttin gerist á
sumardegi í júní árið 1962,
brúðkaupsdegi Edwards og
Florence. Brúðkaupsnóttin er
saga um hvernig gjörvöll til-
vera manna getur umturnast
við eitt atvik, eina snertingu,
eitt orð sem var sagt eða ekki
sagt.
Bókin hlaut fyrir stuttu
bresku bókaverðlaunin, eða
Brithish Book Awards 2008.
Verðlaunabók
McEwans
AFMÆLI Í DAG
Albrecht Dürer málari, 1471
Henri Rousseau
málari, 1844
Fats Waller
tónlistarmaður, 1904
Mary Robinson forseti, 1944
Eurovision
tilboð!
20 %
afsláttur
af völdum vörum
Mikið úrval af
Skunkfunk
Desigual
Lee og Wrangler