24 stundir - 21.05.2008, Qupperneq 25
24stundir MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 25
Wayne Shorter hefur skapað sér
nafn sem einn af meisturum djass-
heimsins. Þessi bandaríski saxó-
fónleikari fæddist í Newark árið
1933 og ferill hans spannar nú yfir
hálfa öld. Árið 1986 stofnaði Shor-
ter sína eigin hljómsveit og gaf út
fjölda diska fyrir mismunandi út-
gáfufyrirtæki. Árið 1964 þáði hann
boð Miles Davis um að gerast liðs-
maður í hljómsveit hans. Í fé-
lagsskap þeirra goðsagnakenndu
tónlistarmanna sem fyrir voru í
bandinu lék hann í sex ár og hljóð-
ritaði á annan tug hljómplatna.
Wayne Shorter átti stóran þátt í því
að skapa algerlega nýjan hljóm sem
hafði varanleg áhrif á þróun djass-
ins.
Hann hefur unnið með ýmsum
þekktum tónlistarmönnum, svo
sem Steely Dan, Carlos Santana og
Joni Mitchell, en þau Shorter eiga
að baki langt og farsælt samstarf.
Þrettán Grammy-tilnefningar
Önnur sólóplata Shorters, Atl-
antis, kom út 1986 og var tilnefnd
til Grammy-verðlaunanna. Það var
fyrsta af fjölmörgum Grammy-til-
nefningum sem Shorter fékk, en
alls hefur hann verið tilnefndur
þrettán sinnum og áskotnast verð-
launin níu sinnum. Wayne Shorter
blandar saman vinsælli og fram-
sækinni tónlist á frábæran hátt en
til marks um stöðu hans í tónlist-
arheiminum kaus Downbeat hann
besta sópransaxófónleikarann í
sautján ár samfleytt frá 1969. hh
Wayne Shorter með tónleika í Háskólabíói
Djassgoðsögn heldur
tónleika á Íslandi
Wayne Shorter Lifandi
goðsögn í djassinum.
*
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
42
04
1
5/
08
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
+ Bókaðu flug á www.icelandair.is
Þeir sem elska smurt brauð í
sólskini, listasafn og „bröns“
á laugardagsmorgni, hjóla-
túra, eða Tívolí ættu að fara
til Kaupmannahafnar.
*Flug aðra leiðina með sköttum.
Safnaðu
Vildarpunktum Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
Farðu til Kaupmannahafnar, í helgarferð eða í
sumarleyfi, taktu fjölskylduna með og dönsku
málfræðina úr tíunda bekk. Værsågod! Þú átt
skilið að hafa það „hyggeligt“. Drífðu bara í því
að panta far!
Fullt af fróðleik og skemmtilegu efni
Auglýsingasími
Katrín s. 510 3727 / kata@24stundir.is
Kolla s. 510 3722 / kolla@24stundir.is
Heilsa
27. maí 2008
Sérblað 24 stunda