24 stundir - 17.06.2008, Blaðsíða 6
„Fjárfesting í orkuframkvæmd-
um fyrir stóriðju með núverandi
ríkisaðstoð er langt frá því að vera
hagkvæm leið til uppbyggingar at-
vinnulífs hér á landi,“ segir í nýrri
skýrslu Framtíðarlandsins um opin-
beran stuðning við stóriðju.
Í skýrslunni er bent á að hið op-
inbera styðji við stóriðju t.d. með
ríkisábyrgð á lánum til virkjana-
framkvæmda og skattaívilnana til
stóriðjufyrirtækja. Einnig er bent á
að stóriðjufyrirtæki hafi fengið út-
hlutaða útblásturskvóta endur-
gjaldslaust.
Skýrsluhöfundar segja að þótt ál-
ver séu umfangsmiklir atvinnurek-
endur hafi reynslan t.d. frá Banda-
ríkjunum sýnt að starfsemi þeirra
hafi aðeins spornað við byggðaþró-
un í strjálbýli, en ekki tekist að snúa
henni við.
Í álveri Alcoa á Reyðarfirði eru
400 starfsmenn. „Bygging Kára-
hnjúkavirkjunar kostaði með flutn-
ingsvirkjum um 145 milljarða króna
sem samsvarar ríflega 350 milljón-
um á hvert af störfunum 400,“ segir
ennfremur í skýrslunni. hos
Framtíðarlandið gefur út skýrslu um opinberan stuðning við stóriðju
Gagnrýna ríkisstyrkta stóriðju
24stundir/Ómar
Álver í Straumsvík Stóriðja er ríkisstyrkt t.d. með skattaívilnunum, segir í skýrslunni.
Íslenskur og ódýr Sigurjón
Árnason, bankastjóri Lands-
bankans, segir að lágmarks-
kostnaður við viðskipti verði
sá minnsti hér á landi.
„Ég tel það beinlínis óábyrgt ef við nýtum ekki
orkulindir sem hér eru til þess að fá hjól efnahagslífs-
ins til þess að snúast áfram. Akkúrat núna getur orku-
geirinn blómstrað,“ segir Sigurjón Árnason, annar
tveggja bankastjóra Landsbankans. Sigurjón segir ís-
lenskt atvinnulíf finna mikið fyrir þrengingum á láns-
fjármörkuðum. Leiðin út úr þeim sé meðal annars sú
að selja orku til erlendra fyrirtækja. „Orkuverð í dag er
mjög hátt og sú gagnrýni að orka héðan sé seld á und-
irverði, sem stundum hefur heyrst, á alls ekki við,“ seg-
ir Sigurjón. Vitnar hann til þess að orka hafi hækkað
mikið í verði í heiminum á undanförnum árum. „Þeg-
ar það er erfiðara um vik til að fá lánsfé þá er það mik-
ill kostur að geta fengið eigið fé inn í landið í stórum
stíl. Við höfum þennan möguleika. Í sjálfu sér getum
við selt orku til fyrirtækja í hvaða atvinnuvegi sem er,
slík er eftirspurnin. Auk þess ætti vel að vera hægt að
gera þetta í fullri sátt við þá sem vilja hag umhverfisins
sem mestan,“ segir Sigurjón. „Hátt verð á olíu er að
þvinga ýmsa atvinnuvegi og lífsvenjur fólks í aðrar átt-
ir en við eigum að venjast. Við getum lagt okkar lóð á
vogaskálarnar með því að nýta orkuna.“
magnush@24stundir.is
Sigurjón Árnason segir orkusölu leið út úr efnahagslægð
Óábyrgt að nýta orkuna ekki
6 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2008 24stundir
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Þar sem viðræðum fulltrúa Akur-
eyrarstofu við Vini Akureyrar um
skipulag útihátíðar um verslunar-
mannahelgi er ekki lokið hefur ekki
verið tekin ákvörðun um mögulegt
aldurstakmark inn á tjaldstæði í
bænum, að sögn Edwards H. Huji-
bens, talsmanns umhverfis- og úti-
lífsmiðstöðvar skáta að Hömrum
sem rekur tjaldstæðin.
Gengið var frá samningi milli
skátahreyfingarinnar og bæjaryfir-
valda nú í vor um rekstur tjald-
stæðanna og það verða skátarnir
sem taka ákvörðun um mögulega
aðgangsstýringu.
Ekki útihátíð á tjaldstæðin
„Þótt ákvörðun hafi ekki verið
tekin um aldurstakmark er alveg
ljóst að við rekum fjölskyldutjald-
stæði og við ætlum ekki að taka
útihátíð inn á okkar tjaldstæði,“
tekur Edward fram.
Á hátíðinni Bíladögum um liðna
helgi var fjölskyldum beint á tjald-
stæðið við Þórunnarstræti en 20
ára einstaklingum og eldri á tjald-
stæðið á Hömrum. „Lætin sem
voru núna í bænum voru í fyrra á
tjaldstæðinu hjá okkur þegar að-
gangi inn á svæðið var ekki stýrt. Þá
voru tveir gæslumenn slegnir niður
og kveikt í þremur flugeldatertum
og skotið úr þeim í allar áttir innan
tjaldstæðisins. Þar voru einnig
hópaslagsmál og keðjur og hnífar á
lofti. En þótt þetta hafi ekki farið úr
böndunum á tjaldstæðinu nú
vegna aðgangsstýringar var um-
gengnin samt leiðinleg á Hömr-
um,“ greinir Edward frá.
Hvert tilfelli metið
Hann segir það vissulega geta
verið erfitt að hleypa til dæmis tví-
tugum hjónum með barn inn á
fjölskyldutjaldstæði en ekki tvítug-
um barnlausum hjónum, ef aldurs-
takmarkið verður 23 ára fyrir þá
sem ekki tilheyra fjölskyldum. „Það
yrði þó metið í hverju tilfelli fyrir
sig.“
Ragnar Sverrisson, formaður
Kaupmannafélags Akureyrar, segir
það ekki vera bænum til sóma að
setja aldurstakmark, hvorki á Bíla-
dögum né um verslunarmanna-
helgi. „Það eru alltaf eitt til tvö pró-
sent sem skemma út frá sér hvar
sem hátíðir eru haldnar en það á
ekki að koma niður á hinum.“
Skátarnir reka tjaldstæðin á Akureyri og ákveða aðgangsstýr-
ingu Ólæti á tjaldstæði á Bíladögum í fyrra en í bænum nú
➤ Í fyrra var einstaklingum áaldrinum 18 til 23 ára mein-
aður aðgangur að tjald-
stæðum Akureyrar um versl-
unarmannahelgina.
ÚTIHÁTÍÐ Á AKUREYRI
24stundir/MargrétStuð á útihátíð Hressir gestir á Akureyri um verslunarmannahelgi.
Aldurstakmark
ekki ákveðið
„Það er mjög margt spennandi
að gerast í prjóni og það er oft ekk-
ert endilega að prjóna peysu og
fara í hana heldur oft eitthvað list-
rænt. Svo er mjög mikið af verk-
efnum þar sem prjónað er til góðs,
þá er hægt að prjóna og gefa,“ segir
Ilmur Dögg Gísladóttir sem stóð
fyrir prjónadegi í Hallargarðinum
á laugardag.
Hún segir rúmlega 100 manns
hafa verið í garðinum þegar mest
var og á öllum aldri.
Ilmur segir ljóst að dagurinn
verði aftur haldinn að ári en mark-
miðið með honum var að gera
prjón sýnilegt í almannarými.
„Nú þegar er fólk farið að flagga
hegðun sem áður var bara innan-
dyra eins og að lesa bækur og tala í
símann þannig að af hverju ekki að
prjóna líka?“ segir hún. aak
Yfir hundrað manns mættu á prjónadaginn
Prjónað á götum úti
Finnbogastaðir í Trékyllisvík brunnu til kaldra kola í gær. Bóndanum,
Guðmundi Þorsteinssyni, tókst að forða sér út en hann missti allar
eigur sínar í brunanum. Hundar hans tveir brunnu inni.
Bóndinn á Finnbogastöðum varð eldsins fyrst var er hann var að klára
úr kaffiglasi sínu um ellefuleytið. Logaði þá í kjallara hússins. Guð-
mundur hringdi þegar í neyðarlínuna og voru slökkvilið og lögregla
frá Hólmavík og Drangsnesi komin á staðinn um kl. 12.30. Er að var
komið var húsið alelda og ekkert hægt að gera. mbl.is
Finnbogastaðir brunnu til ösku