24 stundir - 17.06.2008, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2008 24stundir
Við sláum af verðinu
...aldrei af gæðunum!
www.brudarkjolar.is
KYNNING
Sumarfötin eru komin í verslunina
Miss Sixty í Kringlunni og vöruúr-
valið hefur aldrei verið glæsilegra.
Henný Bjarnadóttir, markaðsstjóri
NTC, segir að það sem standi helst
upp úr sé gríðarlega mikið úrval af
gallabuxum. „Við erum með stutt-
ar gallabuxur, ljósar gallabuxur,
uppháar gallabuxur og margt
fleira. Uppháu gallabuxurnar eru
vinsælastar í dag enda rosalega
flottar. Við eigum einmitt von á
nýrri sendingu af þeim en galla-
buxur frá Miss Sixty rjúka alltaf
út,“ segir Henný og viðurkennir að
það sé bara ein ástæða fyrir því.
„Það er sennilega bara vegna þess
að gallabuxurnar eru ofboðslega
þægilegar og konum líður vel í
þeim auk þess sem þær eru rosa-
legar skvísur.“
Rétt eins og á Íslandi er Miss Sixty-
merkið vinsælt erlendis og ekki síst
hjá stjörnunum, samkvæmt
Henný. „Demi Moore, Britney
Spears, Avril Lavigne, Kate Moss,
Paris Hilton og Mary Kate Olsen
klæðast allar fötum frá Miss Sixty
enda eru þetta mjög vandaðar
vörur. Markhópurinn okkar er
konur á aldrinum 25-45 ára þótt
vitanlega kaupi konur á öllum
aldri föt frá okkur.Við seljum ekki
bara föt heldur erum við í raun
með allt mögulegt, eins og skó,
skartgripi og fleira. Það sem hefur
vakið einna mesta athygli er verðið
en við erum ánægð með að geta
haldið verðinu eins og það er í ná-
grannalöndum okkar,“ segir
Henný og bætir við að Íslendingar
kunni vel að meta Miss Sixty.
„Við opnuðum verslun í Kringl-
unni í janúar og viðtökurnar hafa
verið framar öllum vonum. Fram
að því höfðum við selt Miss Sixty í
öðrum verslunum NTC en vin-
sældirnar voru svo miklar að vör-
urnar þurftu meira pláss.“
svanhvit@24stundir.is
Þægilegar gallabuxur vinsælastar í sumar
Gott úrval í Miss Sixty
Miss Sixty Fötin í
Miss Sixty eru bæði
glæsileg og vönduð.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Starfsemi Götuleikhússins er hafin
af fullum krafti í sumar og eins og
venjulega verða meðlimir þess
áberandi í hátíðahöldum borg-
arinnar 17. júní. Ólafur Guð-
mundsson leikari gegnir nú starfi
leikstjóra Götuleikhússins í annað
sinn, en það gerði hann einnig
sumarið 2001.
Hlutverk Götuleikhússins er að
lífga upp á mannlífið á götum úti á
sumrin með alls kyns óvæntum
uppákomum. „Við förum út á göt-
urnar minnst einu sinni í viku og
sýnum atriði sem við erum búin að
æfa. Þetta er mjög góður hópur
sem við erum með núna og margir
með góðar hugmyndir sem við
notum til þess að vinna atriðin
okkar,“ segir Ólafur.
Áhugasamir leikarar
Leikhópurinn samanstendur af
ungu skólafólki með brennandi
áhuga á leiklist. „Meðlimir Götu-
leikhússins verða að vera ófeimnir
við að fara út á götu og vekja á sér
athygli. Þeir þurfa að geta haldið
sér í karakter sama á hverju dynur
og hvaða athugasemdir sem þeir
kunna að fá frá vegfarendum. Og
það er sannarlega ekki alltaf létt
verk,“ segir hann. Sjálfur hefur
hann töluverða reynslu af því að
leika á götum úti. „Þegar ég var að
leikstýra Götuleikhúsinu sumarið
2001 lék ég stundum með hópn-
um. Einna eftirminnilegasta atrið-
ið okkar þá var þegar við tókum
okkur til og lékum svarta engla
sem örkuðu um götur borgarinnar
með kaðalstiga. Hugmyndina hafði
einn úr hópnum fengið þegar
hann lék svartan engil fyrir leik-
skólabörn. Fullorðið fólk hefur
vanist tilhugsuninni um að englar
eigi að vera hvítir en leik-
skólabörnin sáu hins vegar ekkert
athugavert við þann svarta. Þess
vegna ákváðum við að prófa að
fara út í gervi engla sem voru
svartir af sóti og það var mjög eft-
irminnilegt. Við opnun Smára-
lindarinnar fyrir nokkrum árum
var ég í hópi leikara sem voru
fengnir til þess að vera með atriði.
Ég og einn annar brugðum okkur í
gervi öryggisvarða sem brustu í
ballettdans öðru hverju.“
Ekki stultur á 17.júní í ár
Leikarar Götuleikhússins hafa
gjarnan skellt sér á himinháar stult-
ur á þjóðhátíðardaginn en í ár fá
stulturnar frí. „Við erum að æfa á
fullu fyrir 17. júní og gera bún-
ingana og að þessu sinni ætlum við
að keyra um á stórum, gömlum
pallbíl, ekki ósvipuðum þeim sem
notast er við í Gay-pride-göng-
unum,“ upplýsir Ólafur að lokum.
24stundir/Árni Sæberg
Ólafur Guðmundsson leikari
Krefjandi starfi
við að lífga
upp á bæinn
➤ Er starfrækt í tvo mánuði á áriyfir sumartímann.
➤ Meðlimir sjá alfarið sjálfir umundirbúning, svo sem bún-
ingahönnun og handritsgerð,
í samstarfi við leikstjóra.
➤ Er rekið af Hinu húsinu, ogþátttakendur eru ungt fólk,
17 ára og eldri.
GÖTULEIKHÚSIÐMeðlimir Götuleikhússins
verða á sveimi á götum
borgarinnar í allt sumar.
Á þjóðhátíðardaginn
ætla þeir að hvíla stult-
urnar en aka þess í stað
um á gömlum pallbíl í
skrautlegum búningum.
Leikarar Götuleikhússins
Þau hafa gjarnan skellt sér á
himinháar stultur á þjóðhátíð-
ardaginn en í ár fá stulturnar frí.