24 stundir - 25.06.2008, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir
Grill-leikur
me› s‡r›um rjóma!
Taktu þátt í grillleik MS og þú gætir
unnið glæsilegt Weber-grill eða
vandað grillsett. Kauptu dós af sýrðum
rjóma frá MS, farðu á www.ms.is, sláðu
inn lukkunúmerið sem er í lokinu og þú
færð strax að vita
hvort þú hefur
unnið.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-1
0
2
0
VÍÐA UM HEIM
Algarve 24
Amsterdam 18
Alicante 32
Barcelona 27
Berlín 22
Las Palmas 25
Dublin 13
Frankfurt 29
Glasgow 16
Brussel 22
Hamborg 19
Helsinki 15
Kaupmannahöfn 17
London 22
Madrid 31
Mílanó 28
Montreal 17
Lúxemborg 25
New York 22
Nuuk 4
Orlando 23
Osló 17
Genf 29
París 27
Mallorca 27
Stokkhólmur 17
Þórshöfn 12
Norðaustan 3-8 m/s. Skúrir á víð og dreif,
einkum síðdegis, annars bjart veður.
Hiti 8 til 17 stig, hlýjast suðvestantil.
VEÐRIÐ Í DAG
11
11
7
9 8
Hlýjast suðvestantil
Norðaustan og norðan 3-8 m/s, en hæg
breytileg átt sunnantil á landinu. Skýjað með
köflum og skúrir norðan- og austanlands.
Bjartviðri sunnan- og vestantil, en víða síð-
degisskúrir. Kólnar heldur.
VEÐRIÐ Á MORGUN
9
11
5
8 7
Kólnar heldur
Skrifstofur sveitarfélaga eru
beðnar að leita að gögnum barna-
verndarnefnda frá árunum 1940-
1980, sem lúta að starfsemi með-
ferðarheimila fyrir börn, m.a. í
skjalasöfnum sínum.
„Það verður starfsmaður félags-
málanefndar settur í að skoða gögn
frá þessum tíma hjá okkur, þetta
eru trúnaðarskjöl sem ekki hafa
verið uppi á borðum,“ segir Einar
Guðmundsson, fulltrúi í sameigin-
legri barnaverndarnefnd á norðan-
verðum Vestfjörðum.
Nefnd um vist- og meðferðar-
heimili sem skipuð var af forsæt-
isráðuneytinu biður sveitarfélögin
að leita að gögnunum.
Nefndinni var upphaflega ætlað
að kanna starfsemi vistheimilisins
á Breiðavík á árunum 1950-1980
þar sem börn sættu illri meðferð á
meðan á dvöl þeirra stóð.
asab@24stundir.is
Upplýsingar um meðferðarheimili fyrir börn
Leitað að gögnum
Hvalaskoðun var talsvert til um-
ræðu á 60. ársfundi vísinda-
nefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins
í Chile á dögunum. Á vef Hafró
segir að umræðurnar hafi mest
snúist um hugsanleg neikvæð
áhrif hvalaskoðunar á stofnana
þar sem ýmsar rannsóknir bendi
til að hvalaskoðun geti haft trufl-
andi áhrif á hegðun, útbreiðslu
og jafnvel viðkomu hvalastofna.
Hvalaskoðun gagnrýnd í Chile
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Eftir að tæknifrjóvganir voru færð-
ar frá Landspítalanum til einka-
reknu læknastöðvarinnar ART Me-
dica, er erfiðara fyrir konur sem
komnar eru yfir ákveðinn aldur að
komast í slíka aðgerð.
Þetta segir Matthildur Jóhanns-
dóttir sem telur ástæðuna vera þá
að fyrirtækinu sé umhugað um að
geta sýnt að sem hæst hlutfall að-
gerða skili tilætluðum árangri.
„Konur sem eru komnar yfir fer-
tugt eiga erfiðara með að eignast
barn. Því er ekki vænlegt fyrir fyr-
irtæki sem vill sýna sem bestan ár-
angur að veita þeim þjónustuna.“
Spítalinn veitti undanþágur
Reglugerð frá árinu 1997 kvað á
um að kona skyldi að jafnaði ekki
vera eldri en 42 ára þegar tækni-
frjóvgunarmeðferð hefst.
Matthildur segir að þegar tækni-
frjóvganir voru framkvæmdar á
Landspítalanum hafi verið veittar
undanþágur frá reglugerðinni. Sjálf
hafi hún fengið loforð um slíka
undanþágu. „En eftir einkavæð-
inguna hentaði ekki lengur að veita
undanþágu, því þeir vildu geta sýnt
sem bestar árangurstölur.“
Í frumvarpi til breytinga á lög-
um um tæknifrjóvganir, sem sam-
þykkt var á síðasta degi þingsins,
kemur fram að áðurnefnd aldurs-
regla hafi ekki þótt nægilega sveigj-
anleg. Samkvæmt nýju lögunum
skal kona vera á „eðlilegum barn-
eignaaldri“ þegar meðferð vegna
tæknifrjóvgunar hefst.
Matthildur segir að með breyt-
ingunni fái læknar enn meira vald
til að ákveða eftir eigin geðþótta
hvort konu verði veitt þjónustan.
„Ég vil að ákvarðanir séu teknar
á læknisfræðilegum forsendum, en
ekki eftir kenntitölunni.“ Hún
bendir á hægt sé að mæla hormón-
stuðul eggjanna, svokallaðan FSH-
stuðul, sem segi til um hvort við-
komandi geti orðið þunguð. „Ég
varð sjálf þunguð sex mánuðum
eftir að mér var fyrst neitað.“
Fyrir ári féll dómur í héraði í
máli Matthildar gegn ART Medica,
þar sem hún reyndi að fá hnekkt
ákvörðun um að synja henni um
tæknifrjóvgun þegar hún var 44 ára
gömul. Matthildur tapaði málinu,
sem fer fyrir Hæstarétt í september.
„Málið snýst um að fullorðið
fólk fái yfirráðarétt yfir eigin lífi,“
segir Matthildur.
Ekki náðist í lækni á ART Me-
dica við vinnslu fréttarinnar.
Vill yfirráð
yfir eigin lífi
Segir ART Medica aðeins taka að sér einfaldari tæknifrjóvganir
Vill tæknifrjóvgun
Matthildur er ósátt við
að læknir hafi neitað
henni um aðgerðina.
➤ Árið 2004 færðust tækni-frjóvganir frá Landspítala til
einkarekinnar læknastöðvar.
EINKAREKIN LÆKNASTÖÐ
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Lögreglan á Blönduósi fór í ís-
bjarnarútkall skömmu eftir
hádegi í gær. Þetta er fimmta
bjarndýrsútkallið á skömmum
tíma. Tveir birnir hafa fundist
og verið unnir. Þrisvar sinn-
um hefur verið um aðra fer-
fætlinga að ræða. Í gær hafði
ferðamaður séð og myndað
hvítt dýr með aðdráttarlinsu
fremst í Blöndudal. „Það tók
okkur 30 mínútur að staðfesta
að þetta var ljós hestur," sagði
varðstjóri lögreglunnar.
Bangsi reynd-
ist ljós hestur
Enn eitt bjarndýrsútkall
„Eigandi hvolps-
ins, sem urðaður
var lifandi í
hrauninu í Kúa-
gerði, liggur ekki
undir grun,“ seg-
ir starfsmaður
rannsóknarlög-
reglunnar á Suð-
urnesjum. Framburður eigand-
ans þótti mjög trúverðugur. Ekki
liggur fyrir hvort einhver eða ein-
hverjir eru grunaðir um athæfið
en eins og fram hefur komið í
fréttum var búið að grafa hund-
inn undir þungu grjóti þegar
hann fannst. Hvolpurinn hefur
verið á dýraspítalanum í Víðidal
og er á batavegi og eru allar líkur
á að hann nái sér að fullu.
áb
Eigandinn fær
hvolpinn aftur
Kaupþing banki hefur gengið frá sambankaláni fyrir 275 milljónir evra
sem jafngildir um 35,8 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi
evrunnar í lok dags. Lánið er til tveggja ára og ber 1,5% álag á milli-
bankavexti, sem eru mun betri kjör en skuldatryggingarálag bankans
hefur gefið til kynna. Umsjónaraðili lánsins er þýski bankinn Bay-
erische Landesbank. Auk hans koma Bank of America, Lloyds og Rai-
ffeisen Zentralbank Österreich (RZB) að láninu.
Lánið ber 1,5% vexti yfir millibankavexti sem er mun minna álag en
skuldatryggingarálag Kaupþings undanfarna daga.
Kaupþing fær 36 milljarða lán
Íslendingar eru svartsýnni á horf-
ur í atvinnu- og efnahagsmálum
en þeir voru í síðasta mánuði
samkvæmt væntingarvísitölu
Gallup. Vísitalan hefur lækkað
um 18 prósent frá því í síðasta
mánuði en hún mældist tæp 68
stig. Vísitalan mælir hvernig
neytendum finnst horfur um
þessar mundir. Hún er um helm-
ingi lægri en á sama tíma í fyrra.
Fólk svartsýnt
vegna efnahags
„Við finnum fyrir heldur
minnkandi sölu. Við sáum það
byrja að gerast í maí,“ segir Her-
mann Guðmundsson forstjóri N1
aðspurður um áhrif hækkandi ol-
íuverðs á sölu hjá fyrirtækinu.
„Samkvæmt okkar bókum þá erum
við að horfa á 3 til 4,5 prósent
minnkun í notkun á milli ára,“
bætir hann við en segist ekki gera
sér grein fyrir því hvort breytingin
er til frambúðar eða ekki.
Guðrún Ragna Garðarsdóttir
framkvæmdastjóri Atlantsolíu seg-
ist ekki finna fyrir beinum sam-
drætti. „En við höfum ekki fundið
fyrir þeirri aukningu í sölu sem
jafnan er á þessum árstíma,“ segir
hún. Hjá Skeljungi fengust þær
upplýsingar að erfitt væri að segja
til um hvort samdráttur hefði orð-
ið og hjá Olís að fólk hafi skipt um
afgreiðsluform en salan væri sú
sama. elias@24stundir.is
Hátt eldsneytisverð hefur misjöfn áhrif á sölu
Sumir selja minna
Bæjarstjórinn í Wroclaw hefur
ráðið Bobby, 17 ára simpansa,
til að kynna ferðamönnum út-
sýnisstað í nágrenni bæjarins.
Bobby fær um 12.000 krónur í
mánaðarlaun fyrir að ganga
um bæinn með skilti þar sem
Apasteinn er auglýstur.
„Ef Bobby stendur sig vel fær
hann stöðuhækkun,“ segir
Marek Niewiadomy. „Og þá
má hann líka eiga von á launa-
hækkun.“ aij
Nýsköpun í Póllandi
Starf fyrir apa
SKONDIÐ