24 stundir - 25.06.2008, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Gerð var verðkönnun á tjaldsvæðum á Vestfjörðum.
Um er að ræða verð fyrir 2 í tjaldi eina nótt. Vert er að
benda á að frítt er að tjalda á tjaldsvæðunum á Flat-
eyri, Suðureyri og Dynjanda.
Könnunin er ekki tæmandi.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
180% munur á tjaldstæði
Kristín
Einarsdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Tjaldsvæði á Vestfjörðum, verð fyrir 2 eina nótt
Tjaldsvæði Verð Verðmunur
Tjaldsvæðið Þingeyri 500
Tjaldsvæðið Tungudal 1.000 100 %
Hótel Flókalundur 1.000 100 %
Grettislaug, Reykhólum 1.050 110 %
Sveitahótelið Heydalur, Mjóafirði 1.400 180 %
IKEA hefur innkallað
svefnpoka fyrir börn af gerð-
inni Barnslig í kjölfar til-
kynninga tveggja viðskipta-
vina um að botninn á
rennilásnum hafi losnað
frá. Þar með getur sleð-
arofinn losnað frá en báðir
hlutirnir geta skapað
hættu á köfnun.
„Krakkar gætu gleypt
þessa hluti og þeir staðið
í þeim,“ segir Þórarinn
Ævarsson, framkvæmda-
stjóri IKEA. Hér á landi
hafa verið seldir nokkrir
tugir af barnasvefnpokunum
frá því að þeir komu á
markað fyrr á þessu ári.
Viðskiptavinir sem
keypt hafa svefnpoka með
dagsetningarstimplunum
0745 upp í 0824 eru
beðnir um að skila hon-
um gegn fullri endur-
greiðslu. Dagsetningar-
stimpillinn er á
merkimiða sem saum-
aður er innan á svefn-
pokann. ibs
IKEA innkallar svefnpoka fyrir börn
Gætu gleypt lausa
hluti og kafnað
STUTT
● Umferðarslys Þrír voru flutt-
ir á slysadeild eftir árekstur á
Grindavíkurvegi í gær. Enginn
er alvarlega slasaður. Loka
þurfti veginum um stund. Til-
drög slyssins eru ekki að fullu
ljós en talið er að annar bíl-
stjórinn hafi verið að reyna
framúrakstur. Bílarnir – sem
ekið var í sömu átt – lentu
saman og utan vegar.
● Fimm mánuðir Héraðs-
dómur Reykjavíkur hefur
dæmt tvo 21 árs karlmenn í
þriggja og fimm mánaða fang-
elsi fyrir fíkniefnalagabrot,
hylmingu, þjófnað, umferð-
arlagabrot og innbrot. Báðir
eiga að baki töluverðan sakafer-
il. Í málinu var lagt hald á tölu-
vert af þýfi, auk þess sem lít-
ilræði af fíkniefnum var gert
upptækt.
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
„Það vantar einhvers konar at-
hvarf sem er mitt á milli Konukots
og áfangaheimilis,“ segir kona
sem sótt hefur Konukot frá opnun
þess fyrir fjórum árum. „Fólk er
ekki endilega í stakk búið til að
stoppa strax þó auðvitað viljum
við öll vera edrú,“ segir hún.
Undir þetta tekur Kristín Helga
Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Rauða krossins í Konukoti og seg-
ir engan vafa á að slíkt heimili
væri til bóta.
„Það á enginn lögheimili í
Konukoti heldur er það bara
neyðarnæturathvarf eins og Gist-
iskýlið. Það eru til tvö heimili í
borginni fyrir karlmenn í neyslu
en ekkert fyrir konur,“ segir hún.
Leiga og sjálfsvirðing
„Það verður mikil hnignun á
sjálfsvirðingu manns við að vera á
götunni. Manni finnst maður vera
í vonlausri stöðu og engin leið til
að koma sér upp úr henni,“ segir
fyrrnefndur gestur Konukots.
Hún segir að heimili þar sem
konur ættu lögheimili, fengju
póst og gætu læst að sér væri mjög
uppbyggjandi fyrir sjálfsvirðingu
þeirra og gæti virkað eins og
stökkpallur til þess að komast á
önnur áfangaheimili eða eigin
íbúð.
„Við mundum borga leigu og fá
aukið sjálfstraust við það. Maður
vill ekki vera neinn ómagi, það er
hluti af sjálfsvirðingunni að þurfa
að hafa aðeins fyrir hlutunum,“
segir hún og bætir við: „Mér
finnst líka eðlilegt að við sýndum
viðleitni til að vera húsum hæfar,
sem við erum oft ekki. En það
mættu ekki vera svo stífar reglur
að fólk springi á limminu.“
Smáhýsin upp fyrir veturinn
„Við viljum fá að vera saman,“
segir heimilislaust par sem 24
stundir ræddu við í gær. Þau segja
það óásættanlegt að setja það sem
skilyrði að fólk fari í meðferð svo
það fái húsnæði. Enn hefur fær-
anlegum smáhýsum, sem borgin
hefur fest kaup á og ætluð eru
einstaklingum og pörum, ekki
verið fundinn staður.
Jórunn Frímannsdóttir for-
maður Velferðarráðs Reykjavíkur-
borgar játar að heimili vanti fyrir
konur í neyslu en stefnt sé að því
að koma því á fót á þessu ári. Þá sé
unnið í því að semja um stað fyrir
smáhýsin. „Við ætlum okkur að
reyna að opna þau fyrir veturinn,“
segir hún.
Læknisþjónustu ábótavant
Kristín Helga segir heilsufars-
legan vanda fólksins á götunni
meiri en bara fíknina.
„Í sumum tilfellum er fólk
mjög illa á sig komið líkamlega og
ber sig ekki endilega sjálft eftir
viðeigandi þjónustu. Þess vegna er
nærþjónusta á þessu sviði mikil-
væg en boðið er upp á nærþjón-
ustu félagsráðgjafa frá Velferðar-
sviði nú þegar.“
Staðan vonlaus
og engin leið út
Vantar heimili fyrir konur í neyslu Eykur sjálfsvirðinguna að
borga leigu Smáhýsi heimilislausra enn ekki komin upp
➤ Reykjavíkurdeild Rauða KrossÍslands og Velferðarsvið
Reykjavíkurborgar reka
Konukot sem er neyðarskýli
fyrir heimilislausar konur.
➤ Samhjálp rekur í samvinnuvið Velferðarsvið borgarinnar
Gistiskýli við Þingholtsstræti
sem ætlað er heimilislausum
körlum.
➤ Hætti fólk í neyslu standa ým-is áfangaheimili til boða en
tvö heimili eru í Reykjavík
fyrir karla í neyslu. Ekkert fyr-
ir konur.
ÚRRÆÐI Í BOÐI
Heimilislaus Enginn
staður er til fyrir pör
sem eru heimilislaus.
Smáhýsi ætluð þeim
eru ekki komin upp.
Rúmlega 95% þeirra sem
fæddir eru árið 1992 og
luku grunnskólaprófi í
vor sóttu um framhalds-
skólavist í haust sem er
aukning miðað við sama
tíma í fyrra. Einnig var
aukning í umsóknum
nemenda sem óska eftir því að skipta um skóla eða hefja nám að nýju.
Á vef menntamálaráðuneytisins er fullyrt að þeir sem ekki komast í
Menntaskólann við Hamrahlíð og Verzlunarskóla Íslands eigi vísa vist
annars staðar.
Aðsókn er mest í MH og Versló og þurfa skólarnir að vísa yfir 500 um-
sækjendum frá. Alls voru um 130 nemendur sem hvorki fengu inni í
skólanum sem þeir völdu helst né í skólunum sem þeir völdu til vara,
en þeim hefur flestum verið útveguð skólavist. áb
Sókn í framhaldsskóla
Starfsmenn Háskólatorgs, einnar
af nýbyggingum Háskóla Íslands,
flýðu húsið í gær þegar verið var
að sílanhúða bygginguna að ut-
anverðu. Yfirmenn deilda veittu
starfsmönnum leyfi til að fara
heim þegar þeir voru farnir að
finna fyrir höfuðverk og óþæg-
indum í öndunarfærum, að því er
heimildir 24 stunda greina frá.
„Það var verið að vinna í kring-
um loftinntak,“ segir Valþór Sig-
urðsson, byggingastjóri Háskóla
Íslands, sem lét verkstjórann
stöðva framkvæmdirnar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnueftirlitinu geta sílanefni ert
slímhúð öndunarfæra og augna.
Starfsmenn flýðu Háskólatorg
Vegna opnunar nýrrar verslunar á Akureyri leitar
Europris að starfsfólki í eftirfarandi stöður:
Starfsfólk
Akureyri
Vaktstjóri
Afgreiðslufólk í fullt starf
Afgreiðslufólk í hlutastarf
Kvöld- og helgarstarfsfólk
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Europris
í síma 533 3366 eða með því að senda
fyrirspurn á netfangið leifur@europris.is.