24 stundir - 25.06.2008, Side 8

24 stundir - 25.06.2008, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir RV U N IQ U E 03 08 04 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Glerfínar gluggafilmur - aukin vellíðan á vinnustað 3M gluggafilmurfyrir skóla, sjúkrahús, skrifstofur, verslanir og aðra vinnustaðiFagmenn frá RVsjá um uppsetningu „Þetta er mjög uppbyggjandi og gefandi fyrir krakka og það reynir á að sigla eftir vindinum,“ segir Gunnar Freyr Gunnarsson, 21 árs siglingakennari. „Ég fór sjálfur á námskeið þegar ég var í sjöunda bekk og byrjaði að vinna hérna á sumrin ári seinna,“ segir Gunnar Freyr sem hefur starf- að á námskeiðunum í sjö sumur. „Siglingarnar heilluðu mig strax, og núna keppi ég á siglingamótum, á stærri bátum,“ segir hann. Gunnar Freyr segir að nám- skeiðin séu ólík hinu dæmigerða leikjanámskeiði. „Álagið er ólíkt, við erum á þremur bátum með átta krakka í umsjá á mann,“ segir hann og bætir við að fyrirkomulagið sé heldur ólíkt því sem gerist á þurru landi. Siglinganámskeiðin hafa verið fullbókuð og þykja afar spennandi. „Krakkarnir eru í björgunarvest- um, en síðan klæða þau sig eftir veðri,“ segir Gunnar Freyr og nefn- ir að ef þau detta í sjóinn kippi þjálfararnir þeim upp úr sam- stundis. Árið 1999 var nýtt klúbbhús tek- ið í notkun og aðstaðan er til fyr- irmyndar. „Þetta gengur allt eins og í sögu og það er lítið um vandamál á námskeiðunum, en krakkarnir njóta sín afar vel á bátunum, segir Gunnar Freyr. Sex ungmenni frá vinnuskóla Hafnarfjarðarbæjar starfa sem að- stoðarmenn á siglinganámskeiðun- um með flokksstjóra en starf þeirra er ansi ólíkt hefðbundnum verkum vinnuskólans. asab@24stundir.is Siglinganámskeið eru vinsæl hjá hafnfirskum ungmennum og vinnuskóli bæjarins tekur þátt í þeim Sæla á siglinganámskeiðum í Hafnarfirði ➤ Samstarf er á milli Hafn-arfjarðarbæjar og Sigl- ingaklúbbsins Þyts varðandi námskeiðin. ➤ Fjöldi barna á aldrinum 10-13ára er á siglinganámskeiði í sumar. SIGLINGANÁMSKEIÐ Hressir krakkar Sigl- inganámskeiðin hafa not- ið mikilla vinsælda. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is „Við ætlum að ræða við nokkra tugi kvenna á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum sem flutt hafa frá jaðarbyggðum til þess að fá þeirra sýn á hvað gera þarf til að konur vilji búa á landsbyggðinni,“ segir Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, dós- ent í félagsfræði við Háskóla Ís- lands og verkefnisstjóri. Um verður að ræða vestnorrænt verkefni og hefur norræna ráð- herranefndin veitt styrk til rann- sóknarinnar. Guðbjörg segir flótta kvenna frá jaðarbyggðum hér enn ekki jafn- mikinn og á Grænlandi, í Færeyj- um og norðurhluta Skandinavíu. „Þar hafa menn miklar áhyggjur af flótta kvenna. Þess vegna veldur það áhyggjum þegar mótvægisað- gerðir ríkisstjórnarinnar hér og aðrar aðgerðir sem miða að því að efla atvinnuvegi á landsbyggðinni skuli fyrst og fremst beinast að karlastörfum.“ Af þeim 6,5 milljörðum sem Guðbjörg bendir á að ríkisstjórnin hafi sett í mótvægisaðgerðir vegna samdráttar í sjávarútvegi virðist henni fljótt á litið sem hátt í 6 milljarðar fari til starfa sem aðal- lega muni draga til sín karlmenn. „Vinnumarkaðurinn er mjög kynjaskiptur og við sjáum þess engin merki að úr því sé að draga. Þess vegna munu til dæmis þeir 4 milljarðar sem fara í samgöngu- bætur og 1 milljarður sem fer í endurbætur og viðhald fasteigna fremur gagnast körlum í atvinnu- leit en konum. Á sama tíma eru það að stórum hluta konur sem missa atvinnuna þegar fiskvinnslu- húsum eru lokað vegna aflasam- dráttar og hagræðingar í fisk- vinnslu.“ Guðbjörg bendir jafnframt á að upphæðin sem félagsmálaráðu- neytið hefur lagt fram vegna sér- úrræða fyrir konur á landsbyggð- inni nái ekki 100 milljónum króna. Áhyggjur af flótta kvenna  Samnorræn rannsókn á nauðsynlegum aðgerðum fyrir konur á landsbyggðinni  Aðgerðir beinast fyrst og fremst að körlum Í fiskvinnslu Samdráttur í sjávarútvegi kemur niður á konum á landsbyggðinni. ➤ Konur flytja fremur af lands-byggðinni en karlar, bæði á Íslandi og í nágrannalönd- unum. FLÓTTINN „Ég tók aðallega eftir því að text- inn einkenndist af áhrifum úr töl- uðu máli sérstaklega í orðavali og setningagerð,“ segir Þórunn Blön- dal, dósent í íslensku við Kenn- araháskóla Íslands, um athuganir sínar á ritgerðum í samræmdum prófum 10. bekkinga. „Til dæmis koma fram að margir nemendanna sýndu ekki með punkti hvenær einni málsgrein lauk og önnur tók við,“ segir Þór- unn. „Í talmáli eru vitaskuld engin eiginleg greinarmerki nema þá helst í tónfalli,“ segir hún og bætir við að hugsanlegt sé að ritmál ung- mennanna beri svolítinn keim af talmáli að þessu leyti. „Það er hins vegar áhyggjuefni að margir nem- endur virðast lítt þjálfaðir í því að skrifa ritgerðir þegar þeir útskrifast úr grunnskólunum,“ segir hún og nefnir að kennslan þurfi m.a. að miða að því að skýra mun á rit- og talmáli. „Það er ekki sjaldgæft að sjá í rit- gerðunum að nemendur enda málsgreinar í miðjum klíðum,“ segir hún og bætir við að sumir haldi áfram án greinarmerkja. Margir nemendur gera hins veg- ar mjög vel en almennt virðast þeir óvissir um hvaða textategund þeir eiga að skrifa og hverjum skrifin eru ætluð. Þórunn nefnir einnig að orðræðuagnir á borð við sko, bara og já hafi komið fyrir, sem ekki eigi heima í formlegu ritmáli. Ný þol- mynd og þágufallssýki var ekki áberandi í nemendaritgerðunum. Verkefni Þórunnar er hluti af stærri rannsókn sem ber titilinn Tilbrigði í setningagerð. áb Rannsókn á rituðu máli ungmenna í 10. bekk Ritað í belg og biðu „Við munum byrja með stutt hagnýt námskeið,“ segir Irma Er- lingsdóttir, forstöðumaður Rann- sóknastofu í kvenna- og kynja- fræðum, um jafnréttisskóla á vegum Sameinuðu Þjóðanna, ut- anríkisráðuneytisins og Háskóla Ís- lands en markmiðið er að hann verði starfræktur í tengslum við Háskóla Sameinuðu Þjóðanna. „Starfsemin mun væntanlega þróast áfram en við byrjum á að halda námskeið fyrir þá íslensku aðila sem starfa við friðaruppbygg- ingu, starfsfólk íslenskra stofnana og samtaka í þróunarsam- vinnu,“ segir hún. „Við þurfum að byggja upp sér- fræðiþekkingu til að skila einhverju raunverulegu í þágu jafnréttis og stefna að því að ef við viljum efla og eiga samstarf við fólk í þróun- arlöndum,“ segir Irma. Ætlunin er að þróa starfsemina áfram með því að skipuleggja nám- skeið fyrir starfsfólk í opinberri stjórnsýslu og einkageiranum. Einnig verða námskeið fyrir stjórnmálakonur og fulltrúa gras- rótahreyfinga í þróunarlöndum og fyrrum átakasvæðum. „Við ætlum einnig bjóða upp á námskeið fyrir starfsfólk íslenskra stofnana og samtaka sem koma að alþjóðastarfi og friðaruppbygg- ingu,“ segir Irma. Stjórnmála- menn, fulltrúar hagsmunasamtaka í Evrópu, háskólanemar og sér- fræðingar á Íslandi verða jafnframt undirmarkhópur verkefnisins. „Við munum einnig einbeita okkur að því að kynna íslensk jafn- réttismál eða hið íslenska jafnrétt- islíkan á evrópskum vettvangi,“ segir hún. Skólinn verður fyrsti jafnréttis- skóli Sameinuðu Þjóðanna en ætl- unin er að sækja um inngöngu að Háskóla Sameinuðu Þjóðanna. „Við munum leggja áherslu á miðlun, útgáfu, ráðstefnur og fundi, en ætlunin er að vera með öfluga heimasíðu,“ segir Irma. asab@24stundir.is Stofnun jafnréttisskóla- og seturs á alþjóðlegri ráðstefnu í haust Rannsóknir í þágu jafnréttis

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.