24 stundir - 25.06.2008, Side 10

24 stundir - 25.06.2008, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir Eftir Andrés Inga Jónsson andresingi@24stundir.is Öryggi margra þeirra hundruða kjarnorkusprengja sem Banda- ríkjamenn geyma innan Evrópu er ábótavant. Þetta kom í ljós þegar varnarmálaráðuneytið lét gera at- hugun á ástandi kjarnorkuvopnab- úrs landsins. Síðan hryðjuverkaárásir voru gerðar á Bandaríkin 11. september 2001 hefur milljörðum dala verið varið til að tryggja öryggi kjarn- orkuvopna á bandarískri grundu. Skýrslan leiðir í ljós að það fé hafi ekki skilað sér til allra kjarnorku- vopna Bandaríkjanna utan land- steinanna. Því hafi vopnin í reynd verið ógn við öryggi Evrópu und- anfarinn áratug. Sprengjurnar sem týndust Innri endurskoðun varnarmála- ráðuneytisins fór í gang í ágúst 2007. Ástæðan var sú að flugherinn missti sjónar á sex kjarnorku- sprengjum í einn og hálfan sólar- hring. Þrátt fyrir alla varnagla og öryggisráðstafanir var sprengjun- um komið fyrir í flugvél sem flaug yfir Bandaríkin þver og endilöng, án þess að þeir sem tryggja áttu ör- yggi sprengjanna vissu af því. Skýrslan sem nú hefur litið dags- ins ljós lýsir áhyggjum af ástandi vopna sem geymdar eru á erlend- um herstöðvum. „Hvað eftir annað var það sama ljóst,“ segir í skýrslunni. „Á flestum stöðum vantaði töluvert upp á að aðstaðan stæðist öryggiskröfur varnarmálaráðuneytisins.“ Þrátt fyrir að umgengni við gereyðing- arvopnin eigi að vera stöðluð segja skýrsluhöfundar vandamálin afar ólík á hverjum stað. Þýskir vilja sprengjurnar burt Nákvæmri staðsetningu og fjölda kjarnorkusprengjanna er haldið leyndum. Samtök banda- rískra vísindamanna, sem fengu skýrslu varnarmálaráðuneytisins í hendurnar, telja sig þó hafa komið sér upp nokkuð ljósri mynd af stöðunni. Á fjórum evrópskum herstöðv- um – í Belgíu, Þýskalandi, Hollandi og á Ítalíu – hafa heimamenn um- sjón með vopnunum. Þessar evr- ópsku herstöðvar valda skýrsluhöf- undum sérstökum áhyggjum og leggja þeir til að þegar í stað verði kjarnorkuvopn flutt frá einni þeirra. Almennt leggja þeir til að vopnin verði færð á færri hendur og öryggi þeirra bætt. Í Þýskalandi hefur stjórnarand- staðan gripið skýrsluna á lofti og hvetur Angelu Merkel kanslara til að semja við Bandaríkjamenn um brotthvarf sprengjanna. „Kjarn- orkuvopnin eru kaldastríðsrestar. Þau verða að fara,“ segir Guido Westerwelle, formaður FDP. Ótryggar kjarn- orkusprengjur  Bandarískra kjarnorkuvopna í Evrópu ekki nægjanlega vel gætt  Lagt til að kjarnorkuvopnavæddum herstöðvum verði fækkað ➤ Þegar Kalda stríðið stóð semhæst skiptu bandarísk kjarn- orkuvopn í Evrópu þús- undum. ➤ Bandaríkin eiga nú á milli 200og 350 kjarnorkusprengjur í Evrópu. ➤ Þær dreifast á Belgíu, Þýska-land, Holland, Ítalíu, Tyrkland og Bretland. ➤ Að auki búa þrjú Evrópuríkiyfir eigin kjarnorkuvopnum; Bretland, Frakkland og Rúss- land. ATÓMBOMBUR Í EVRÓPU Kjarnorkuþotur Síðast- liðið sumar fóru sex kjarn- orkusprengjur á flakk með B-52H sprengiþotum. Ríkisstjórn Írans hefur mótmælt auknum efnahagsþvingunum Evr- ópusambandsins harðlega. Á mánudag frysti ESB eignir stærsta banka Írans, Melli-bankans, og fjölgaði þeim Írönum sem ekki mega ferðast til Evrópu. Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans segir aðgerðirnar aðeins munu gera þjóðina enn staðráðn- ari í að verða sér úti um kjarnorku. Hann segir jafnframt að skjóti skökku við að ESB auki þvinganir á sama tíma og sáttaboð frá ýmsum þjóðum til Írana liggi enn á borð- inu. andresingi@24stundir.is Auknar efnahagsþvinganir Íran ósátt við ESB Bandarískur dómstóll hefur kveð- ið upp úrskurð í máli manns sem situr í fangabúðunum við Guant- anamo-flóa, þess efnis að stjórn- völd geti ekki skilgreint hann sem „óvinveittan bardagamann.“ Sú skilgreining hefur gert stjórnvöld- um kleift að sneiða hjá Genf- arsáttmálanum og bandarískum lögum. Er þetta fyrsti dómur þessa efnis sem fellur á borgaralegu dómstigi, eftir að hæstiréttur úrskurðaði fyrr í mánuðinum að fangar hefðu rétt á að áfrýja varðhaldsúrskurði sínum. Huzaifa Parhat, kínverskur múslími, hefur verið í haldi Bandaríkja- manna frá því þeir handsömuðu hann í Afganistan árið 2001. „Rétturinn úrskurðaði að ríkisstjórnin skyldi þegar leysa Parhat úr haldi, flytja hann á annan stað, eða að halda ný herréttarhöld hið fyrsta,“ segir í tilkynningu frá dómstólnum. andresingi@24stundir.is Fanga dæmt í vil Fíkniefna- og afbrotamálaskrif- stofa Sameinuðu þjóðanna telur að ópíumrækt í Afganistan hafi veitt talíbönum röska átta millj- arða króna á síðata ári. Segir Antonio Maria de Costa í samtali við breska ríkissjón- varpið að velta ópíumræktenda í Afganistan hafi numið einum milljarði Bandaríkjadala á síðasta ári og tíundi hluti þess fjár hafi ratað í vasa talíbana. aij Milljarðagróði af ópíumrækt Bæjarstjórnin í Kota Bharu í Malasíu hefur gefið út þau til- mæli að konur beri ekki á sig varalit og klæðist ekki háum hæl- um. Meirihluti bæjarstjórnar er skipaður með- limum íslamsks stjórnmála- flokks, sem hefur ýmiss konar siðgæðisboðskap á stefnuskrá. Mega pör sem sitja of nærri hvort öðru á almannafæri til dæmis eiga von á sekt. Segja yfirvöld að með því að fara að varalitsráði sínu geti konur viðhaldið virðingu sinni og kom- ið í veg fyrir nauðganir. aij Forðist varalit og háa hæla Fyllirístúrar ungs fólks smita út frá sér í vinahópi þess, þannig að þeir apa óhófið hver eftir öðrum. Þetta eru niðurstöður breskrar rann- sóknar á drykkjusiðum fólks á aldrinum 18 til 24 ára. Þeim 504 ein- staklingum var skipt í tvo hópa – hófdrykkjufólk og ofdrykkjufólk. Til að teljast drekka í óhófi þurftu þátttakendur að drekka sig fulla að minnsta kosti vikulega, eða innbyrða 10 drykki eða fleiri í viku. Um 85% þeirra sem féllu í óhófshópinn sögðu flesta vini sína vera óhófs- menn, en aðeins 41% hófdrykkjumannanna höfðu sömu sögu að segja. Í tísku að detta í það STUTT ● Sjórán Fjórir þýskir ferða- langar eru í haldi sjóræningja í Puntlandi, sjálfstjórnarhér- aði í Sómalíu. Þjóðverjarnir – tveir karlmenn, ein kona og barn – sigldu út af norður- strönd Sómalíu þegar þeir voru teknir höndum. ● Jersey Lögregla hefur handtekið tvennt í viðbót vegna rannsóknar á ofbeldi á barnaheimilinu Haut de la Garenne á eynni Jersey. Sjö- tugur maðurinn og 69 ára konan störfuðu á barna- heimilinu á 7. og 8. áratugn- um. ● Talan hækkar Herfor- ingjastjórnin í Mjanmar, sem einnig er þekkt sem Búrma, áætlar nú að 138.000 manns hafi látist eða sé enn saknað eftir að fellibylurinn Nargis reið yfir landið. Allt til rafhitunar Olíufylltir rafmagnsofnar Norskir hitakútar Fyrir sumarhús og heimili. Yfir 30 ára reynsla hérlendis. Brenna ekki rykagnir• Auðveld uppsetning á vegg• 250 - 400 - 750 - 800 - 1000• - 1600 - 2000 wött Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.