24 stundir - 25.06.2008, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir
Magnús Halldórsson
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
Lögbann hefur verið sett á framkvæmdir Kópavogsbæjar við Nýbýla-
veg.
Íbúar í lúxusblokkinni Lundi 1 fóru fram á vinnustöðvunina.
Íbúarnir segja veginn standa um sex metrum nær en gert hafi verið ráð
fyrir í deiluskipulagi. Forsvarsmenn Kópavogsbæjar eru ósammála og
segja svo ekki vera. Fyrir lögbannið kynntu þeir hugmyndir sínar um að
mjókka hringtorgið við blokkina og báðu verktakafyrirtækið að færa út-
keyrslu úr hverfinu fjær blokkinni, til að mæta kröfum íbúanna.
Íbúar sem 24 stundir hafa rætt við vissu ekki þegar þeir keyptu í blokk-
inni að Nýbýlavegurinn yrði færður svo nálægt húsinu. Gylfi Óskar Héð-
insson, annar eigandi byggingarfyrirtækisins BYGG, segir að þeir hjá fyr-
irtækinu hafi ekki verið upplýst um hvernig vegurinn yrði lagður.
Með lögbanninu er komin upp ný staða. Gunnar Gunnarsson aðstoð-
arvegamálastjóri segir í 24 stundum í gær að ekki sé annað hægt en að
hlíta lögbanninu. „Það er ekki mikið rými til þess að breyta miklu, það er
í raun ekki hægt að færa hringtorgið.“ Svo bætir hann við: „En það er ver-
ið að skoða hvort að ekki sé hægt að minnka það, en það gæti bitnað á
umferðarörygginu.“
Auðvitað er hægt að færa hringtorgið komi í ljós að ekki hafi verið farið
að deiliskipulaginu. Hins vegar kostar það sitt. En eins og 24 stundir
greindu frá er það mat Sigurðar Thoroddsen, unnið fyrir BYGG, að
kostnaðaraukinn við tilfærsluna gæti numið allt að fimm milljörðum.
Varla er réttlætanlegt fyrir tæplega þrjátíu þúsund manna bæjarfélag að
standa straum af slíku.
Þá er vert að velta því fyrir sér hvort rétt sé að minnka hringtorgið og
breyta þar sem það minnki umferðaröryggi íbúa bæjarfélagsins? Oft er
þung umferð um Nýbýlaveg og erfitt að sætta sig við skert öryggi þeirra
sem fara um veginn dag hvern.
Loks er sú leið fær að bæta þeim sem keyptu íbúðir
í blokkinni skaðann. Því fólkið situr nú uppi með
íbúðir, sem eru ekki eins söluvænar og fyrir færslu
vegarins. Íbúðir sem áttu að vera hágæða. Og við
gluggann hjá því stendur umferðarmannvirki, sem
verður ekki eins öruggt og til stóð verði það minnkað.
Verulega athyglisvert verður því að fylgjast með
málsframvindunni og hvað skorturinn á upplýsing-
um; jafnvel fljótfærnin, að ekki hafi verið farið að
deiliskipulaginu, kosti Kópavogsbúa þegar uppi er
staðið.
Hvar sem mistökin liggja er ljóst að skaðinn er
mikill, bæði fyrir íbúa blokkarinnar og bæjarbúa.
Klúður í Kópavogi
Einu skiptin sem hugur Geirs
virðist vera á Íslandi er þegar hann
er í útlöndum að tjá sig um mál-
efni Íslands – eins
og núna í Lund-
únum. Ekki einu
sinni viss um að
hugurinn sé á Ís-
landi heldur frek-
ar í Lundúnum –
þótt hann sé að
tala um Ísland.
Nú er þetta hug-
arflug Geirs utan Íslands og lang-
varandi aðgerðarleysi hans á Ís-
landi farið að hafa áhrif á fylgi
Sjálfstæðisflokksins sem er að tapa
því frumkvæði sem hann hefur
haft í íslenskum stjórnmálum frá
því fyrir síðari heimsstyrjöldina.
Hugur Geirs er kannski í Örygg-
isráðinu …
Hallur Magnússon
hallurmagg.blog.is
BLOGGARINN
Hvar er Geir?
Þrátt fyrir sífellt krepputal og
harðan hræðsluáróður um at-
vinnuleysi er afgerandi meirihluti
þjóðarinnar á
móti frekari
virkjunum fyrir
stóriðju. Þetta er
athyglisvert.
Það kveður við
kunnuglegan tón
í máli stór-
iðjusinna. „Ef
þjóðin heldur
ekki áfram að nýta orkuna í fall-
vötnum og iðrum landsins er hún
í vondum málum,“ segir Grétar
Mar. Það er ekki mikil trúin sem
þessir aðilar hafa á stærstu auð-
lind landsmanna – hugviti og
menntun. Sem betur fer höfum
við núna iðnaðarráðherra sem
gerir sér grein fyrir því …
Dofri Hermannsson
dofri.blog.is
Á móti stóriðju
Fólk sér fyrir sér tekjumissi,
jafnvel atvinnumissi. Sumir fá
martröð um sult og seyru. Fylg-
ismönnum stór-
iðju og orkuvera
ætti því að fjölga.
Samt sýnir skoð-
anakönnun
Fréttablaðsins, að
meirihluti þjóð-
arinnar hafnar
stóriðju og stór-
virkjunum.
Meirihlutinn er stærri úti á
landi, þar sem talið hafði verið
meira um óttaslegið fólk.
Kannski sér fólk núna í olíu-
kreppunni, að við þurfum alla
okkar raforku til að leysa olíu af
hólmi. Við höfum ekkert aflögu
fyrir niðurgreidda gæludýrið,
stóriðjuna.
Jónas Kristjánsson
jonas.is
Hafna stóriðju
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@24stundir.is
Í gær birtist forsíðufrétt í 24 stundum undir
fyrirsögninni: Markaðir „ónýtir“. Þar greinir
frá 40% samdrætti á hlutabréfamörkuðum, eða sem
nemur um 458 milljörðum króna á fyrstu fimm mán-
uðum ársins. Orðrétt segir: „Fjárfestar sem 24 stundir
hafa rætt við undanfarnar vikur segja ástandið á mörk-
uðum alvarlegra en af er látið. Einn þeirra sagði mark-
aðina „ónýta“ … Hann sagðist ætla að beita sér fyrir því
að félög honum tengd yrðu tekin af markaði til að losna
við „að þurfa að vakna á morgnana og hafa áhyggjur af
markaðnum“.“
Lesendum til hugarhægðar skal tekið fram að vansvefta
fjármálaspekúlantar hafa fundið það ráð við svefnleysi
og áhyggjum að leita inn í skuldabréfaviðskipti. Þar hafa
viðskipti aukist um rúma 600 milljarða á fyrrgreindu
tímabili að sögn 24 stunda „vegna hagstæðra vaxta“. Nú
skal játað að undirritaður hefur minni áhyggjur af vísi-
tölu stundargróðans en langtímahagsmunum íslensks
samfélags. Af hinu síðarnefnda er hins vegar ástæða til
að hafa verulegar áhyggjur. Vandinn sem við stöndum
frammi fyrir er nefnilega ekki skammtímavandi á hluta-
bréfamarkaði. Við horfum upp á langtímavanda, gjald-
þrot þeirrar peningafrjálshyggju sem hér hefur verið rek-
in í nær tvo áratugi. Ríkisbankarnir voru einkavæddir og
við þeim tóku silkiklæddir fjármálamenn sem reynst
hafa harðsvíraðir alheimskapítalistar sem einskis hafa
svifist á alþjóðavísu, ekki síst gagnvart fátækum þjóðum í
Austurvegi. Í lausafjárkreppunni lenda þessar fjár-
málastofnanir – sem skulda litla 15 þúsund milljarða – í
vandræðum þegar rúllettan stöðvast. Hundsaðar hafa
verið allar ábendingar og kröfur okkar í VG um að skilin
yrðu rækilega að annars vegar innlend viðskipti hinna
einkavæddu banka, sem byggðust á hefðbundinni lána-
starfsemi, og hins vegar fjárfestingarbraskið. Hlutverk
stjórnvalda er nú sem áður að reisa varn-
armúra fyrir okkur sem byggjum þetta
land. Það gerir ríkisstjórnin ekki. Þótt
menn sofi illa í Kauphöllinni hygg ég að
þjóðin sofi enn verr. Ekki vegna fregna af
hlutabréfamörkuðum heldur vegna þess
að þjóðin skynjar að hún hefur yfir sér
ríkisstjórn sem er nánast verri en engin
þegar á reynir, ónýt.
Höfundur er alþingismaður
Ónýt ríkisstjórn
ÁLIT
Ögmundur
Jónasson
Kraumandi
lesning í …
• sólbaðinu
• verslunar-
ferðinni
• flugvélinni
• sumar-
bústaðnum
• skútunni
• bílnum
• tjaldinu …
hvar sem er
og hvenær sem er!
einfaldlega