24 stundir - 25.06.2008, Side 13

24 stundir - 25.06.2008, Side 13
24stundir MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 13 Ýmislegt fremur óhugn-anlegt má lesa á virtumbloggsíðum um íslenska banka. Þannig segist Pétur Gunnarsson, rit- stjóri Eyjunnar, hafa fengið bréf frá vel upplýstum lesanda sem bendir á að bankarnir séu búnir að vinna gríðarlegt efna- hagslegt hryðjuverk á Íslandi. „Það byrjaði með einkavæðing- unni, þegar ljóst varð að engin siðferðisleg ábyrgð fylgdi kaupum á bönkunum. Menn skyldu ekki vanmeta þann þátt. Menn fóru í glannalegan fjárfestingaleik með viðskiptabanka og komust upp með það, því enginn sló á puttana á þeim, sem hefði svo sannarlega átt að gera,“ segir í bréfinu. Áfram heldur hið þungorðabréf: „Bankarnir eru viðþað að tortíma sjálfum sér með viðskiptavinum sínum. Og á meðan spila þeir á lýruna og horfa á eldinn og halda áfram að bjóða í partí í Lond- on. Dæmi um lýru- leikinn: Það hefur verið í fréttum undanfarið að fyr- irtæki eitt sé á barmi gjaldþrots. Skuldir langt á fimmta tug millj- arða króna. En – bíðum við, skuldir þess eru í íslenskum krón- um. Þegar krónan verður komin í 180, verður skuldunum breytt í erlendan gjaldeyri, svo styrkist krónan með samstilltu átaki bankanna sem þá hafa veðjað á styrkingu hennar, bankinn slepp- ur við að afskrifa skuldir fyrirtæk- isins og fyrirtækið fer ekki á haus- inn. Snjallt? Hver borgar? Hvar er ríkisstjórnin? Hvar er Fjármála- eftirlitið? Hvar er löggjafinn? Hvar í fjáranum er eiginlega lögg- an!!!???“ Jónas Krist-jánsson rit-stjóri er einnig harðorður og segir: „Til að bjarga sér úr kreppu, sem þeir bjuggu til, gera þeir nú hvert áhlaupið á fætur öðru á gengi krónunnar. Gengishagnaðurinn bætir stöðu þeirra. Eru að laga stöðuna fyrir uppgjör annars ársfjórðungs. Eru hættir að lána, enginn tímir að borga vextina þeirra. Reyndu að drepa Íbúðalánasjóð, er nú stendur sem klettur í hafinu. Bankastjórarnir eru landráða- menn og Litla-Hrauns-matur.“ elin@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ Ég hef verið svo heppin að hafa fengið að fylgjast með dóttur minni spila fótbolta frá því hún var tæp- lega sex ára gömul. Nú er hún orðin níu og spilar með 6. flokki í Þrótti þar sem starf yngri flokkanna er öfl- ugt og skemmtilegt og leikgleðin og skemmtunin ráða för. Ég er því orð- in eins konar fótboltamamma sem mæti á öll mót og leiki til að fylgjast með og veita stuðning og hvatn- ingu. Það er gaman að sjá hversu foreldrar taka almennt mikinn þátt á öllum helstu mótum sumarsins og óhjákvæmilega er maður farin að þekkja foreldra annarra stelpna, hvort sem er úr eigin liði eða ann- arra félaga. Það myndast sérstök stemning þar sem sömu foreldrarn- ir standa saman á hliðarlínunni stundum heilu dagana og fylgjast með sínum stelpum í sætu og súru. Oftast er þetta skemmtileg samvera þar sem fólk spjallar kumpánlega saman og allir eru frekar „ligeglad“. Nema einstaka sinnum kemur það fyrir að maður verður vitni að sér- kennilegri hegðun foreldra sem sumir hverjir tapa sér á hliðarlín- unni og æpa miður uppbyggilegar athugasemdir inn á völlinn. Þannig gerðist það á dögunum að fram fór yngri flokka mót stelpna á Þrótt- armótinu þar sem ég fylgdist með mínu liði. Mótið gekk vel og skipu- lagning var með ágætum. Leikgleð- in var í fyrirrúmi og allir fóru glaðir heim – eða allavega flestir. Mig langar að deila með lesendum lítilli sögu sem gerðist á þessu móti og situr enn í mér. Í einum leiknum gegn ónefndu liði gerðist það að einn pabbinn þaðan lét svo til sín taka á hliðarlínunni að hann var farinn að segja dómaranum til syndanna og kalla inn athugasemd- ir um vankunnáttu dómarans og dómaraskandal. Það skal tekið fram að oftast eru dómarar í þessum leikjum unglingskrakkar sem gera sitt besta og taka leikjunum álíka hátíðlega og leikmennirnir sjálfir. Í þessu tilfelli gekk umræddur pabbi svo langt að hann skipaði dómaran- um að dæma vítaspyrnu! Sem og var gert enda dómarinn farinn á taugum undir sífelldu gjammi föð- urins. Það var sem sagt tekið víti í leik 6. flokks kvenna þar sem að sjálfsögðu kom mark – sem í þessu tilfelli réði úrslitum. Þetta er ekki eina dæmið sem ég hef orðið vitni að, en þetta er það nýjasta, og ekki þarf að taka það fram að litlu stelp- urnar voru náttúrlega algerlega miður sín að fá dæmt á sig víti. Það sem krakkarnir þurfa er hrós og hvatning og að þau fái að spila eftir sínu höfði án of mikilla afskipta af hliðarlínunni. Við sem foreldrar verðum að átta okkur á að við erum fyrirmyndir barnanna okkar þegar kemur að hegðun hvort sem það er inni á fótboltavellinum eða utan hans. Það hefur verið gaman að fylgjast með landsliði kvenna í knattspyrnu að undanförnu. Ekki bara það að leikgleðin og stemn- ingin lýsi langar leiðir heldur spila þær frábæran fótbolta á heims- mælikvarða. Ég finn það á þeim fót- boltastelpum sem í kringum mig eru að Margrét Lára og stöllur hennar í landsliðinu eru nokkurs konar „idol“ og flottar fyrirmyndir. Nú á íslenskt landslið raunhæfa möguleika, og vel það, á að komast í úrslitakeppni stórmóts í knatt- spyrnu. „Stelpurnar okkar“ eru í 18. sæti heimslistans og hafa í hendi sér að klára dæmið. Þær þurfa ekki að treysta á óvænt úrslit eða klúður hjá keppinautunum. Það eina sem gæti mögulega skort upp á er hressilegur og viðeigandi stuðningur okkar. Kvennalandsliðið er heldur betur búið að gera sitt. Nú er komið að okkur hinum. Þess vegna skiptir stuðningurinn við landsliðið miklu máli og að við sýnum þeim og okk- ar eigin dætrum að við stöndum við bakið á landsliðsstelpunum. Síðasti leikur gegn Slóvenum var frábær og fín stemning á vellinum. Á fimmtu- dag er svo leikur gegn Grikkjum þar sem stuðningur okkar er mikils virði. Mætum öll á völlinn og hvetj- um stelpurnar áfram. Notum já- kvæða hvatningu og hrós og verum þannig þær fyrirmyndir sem börn- um okkar er svo mikilvægt að sjá. Áfram Ísland. Höfundur er alþingismaður. Fótboltamamma og fyrirmyndir VIÐHORF aSteinunn Valdís Óskarsdóttir Nema ein- staka sinnum kemur það fyrir að mað- ur verður vitni að sér- kennilegri hegðun foreldra sem sumir hverjir tapa sér á hliðarlínunni og æpa miður uppbyggilegar at- hugasemdir inn á völlinn. Silfurarmband verð 64,900 kr. Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 í dag Miðvikudagur 25. júní 2008  Ásdís Hjálmsdóttir á leið á Ólympíuleikana í Peking » Meira í Morgunblaðinu Met eftir aðgerð  Ekkert er fullkomið, forð- umst of miklar væntingar » Meira í Morgunblaðinu Góð ráð í fríinu  Skilin og engin hisp- ursmey í kynferðismálum » Meira í Morgunblaðinu Madonna og ástin  Erum við skeytingarlaus um menningarfjársjóðinn? » Meira í Morgunblaðinu Að gæta arfsins  Meðalheimilið hefur tap- að 17 þús. kr. úr veskinu » Meira í Morgunblaðinu Minni kaupmáttur - kemur þér við AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 íþróttir útivist pólitík heilsa fréttir fé&frami golf 24fólk veiði neytendavaktin golf dagskrá menning viðtöl ferðalög viðskipti garðurinn grill 24lífið bílar neytendur umræða

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.