24 stundir


24 stundir - 25.06.2008, Qupperneq 18

24 stundir - 25.06.2008, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@24stundir.is „Ég er forfallinn golfáhugamaður og þegar kom að því að taka garðinn í gegn hjá okkur hjón- unum kom hugmyndin því í raun af sjálfu sér. Okkur langaði til að minnka grasið og hafa það snyrti- legra. Einnig vildum við að garð- urinn yrði viðhaldsléttur en það má segja að það hafi endaði á hinn veginn. Síðan hef ég afar gaman af ógerlegum verkefnum en þetta var í fullu samráði við konuna,“ segir Björn aðspurður um hvernig þessi vitleysa hafi eig- inlega byrjað. Góður hraði Grasið í garðinum er slegið eins og púttflöt og mælt reglulega en golfflatir eru mældar á sér- stökum staðli sem kallast stimp- staðall og er til marks um hrað- ann á flötinni. Björn segir að markmið sitt hafi verið að halda sér í sama hraða og golfvellirnir hér séu á og er hann nú kominn upp í 7,2 sem þykir nokkuð gott á íslenskan mælikvarða. Stefnt er að því að flötin sé eins uppsett og á golfvöllum, en þeir eru gjarnan gerðir á tiltölulega hörðu und- irlagi og ekki hægt að hafa ein- ungis mold undir eins og tíðkast með hefðbundnar túnflatir á Ís- landi heldur verður að blanda mold og sandi saman. Að lokinni þessari undirbúningsvinnu eru síðan næg verkefni fyrir höndum. Sérmenntaðir grasfræðingar „Eftir undirbúning undirlags- ins þarf annaðhvort að leggja þökur með sérstöku golfvall- argrasi ofan á eða sá. Miklu fín- gerðari grastegundir eru notaðar á golfvöllum heldur en í hefð- bundnum íslenskum görðum þar sem ekki finnast jafnþykk strá heldur mjó og fín strá sem slást miklu betur niður. Það finnast nokkrir sérmenntaðir grasfræð- ingar hér á landi og ég er svo heppinn að þekkja nokkra þeirra og hafa fengið hjá þeim góð ráð. Þökurnar er farið að selja hér og keypti ég mínar hjá fyrirtæki sem heitir Grasþökur. Þegar búið er að leggja þökurnar kemur síðan að því verkefni að reyna að ná flötinni sæmilega sléttri og þá þarf að sanda yfir og sá í aftur. Þetta er gert nokkrum sinnum á ári og örugglega búið að bera í þetta fleiri hundruð kíló af sandi. Það er gert annars vegar til að herða yfirborðið og hins vegar til að jafna misfellur í flötinni. Ef þú vilt að grasið endurnýi sig stöðugt þarf síðan að sá í grasið tvisvar til þrisvar sinnum yfir sumarið. Þá má ekki gleyma áburðargjöf og að vökva ef þurrt er í veðri eins og hefur verið hér upp á síðkastið. Loks er komið að því sem flestir hrylla sig sjálfsagt við en púttflöt- ina þarf að slá á hverjum degi. Ekki má vera mikill misbrestur á því að um leið og þú leyfir gras- inu að vaxa taka grófari stráin yf- ir og þau fínu hverfa þar sem hætta að fá sólina,“ segir Björn sem þrátt fyrir alla vinnuna hefur gaman að stússinu. Hann segist hafa gaman af verkefninu og sé ekki nema 10 mínútur að hlaupa í gegn með sláttuvélina eftir að börnin séu sofnuð. Þá þýði ekkert að amast við því þó börnin hlaupi um garðinn og lemji í grasið, það sé einfaldlega eitthvað sem hann sjái um að laga. Púttmót Reglulega er púttað í garðinum hjá Birni en hann segir að þó verði að viðurkennast að mun meiri tími fari í að halda grasinu við heldur en að æfa sig. Þó sé ætíð gripið í kylfu þegar gesti beri að garði í góðu veðri og púttað smávegis. „Ég ætla að halda stórt púttmót í haust og ætti kannski að nota tækifærið og skora á Jón- as Ólafsson, nágranna minn, að drífa sína púttflöt upp. Ég veit ekki hvernig honum gengur með framkvæmdina en við ætluðum að keppa um hver myndi ná meira hraða fyrir haustið og ég held að hann eigi ekki séns eins og stendur,“ segir Björn í léttum dúr að lokum. 24stundir/Brynjar Gauti Björn Víglundsson er með púttflöt í garðinum Mikil vinna en skemmtileg ➤ Nánari upplýsingar um upp-setningu púttflata má finna á vefslóðinni http://www.putt- ing-greens.com/. ➤ Til að ná flötinni sæmilegasléttri þarf að sanda yfir og sá í aftur nokkrum sinnum á ári. ➤ Slá þarf púttflötina á hverjumdegi til að grasið haldist fín- gert. PÚTTVÖLLURDraum margra golfara má finna í garðinum hjá Birni Víglundssyni en þar hefur hann komið upp 50 fm púttflöt. Hann segir mestan tíma fara í við- hald fremur en æfingar en hefur gaman af verk- efninu engu að síður. Sameinast Börnin hafa lika gaman af púttinu. Einbeiting Meira fer fyrir viðhaldi en æfingum. Golfáhugi Björn heldur stórt púttmót í haust. GARÐÚÐUN - GEITUNGAR - ROÐAMAUR - MÝS - KÖNGULÆR Veiðikortið veitir nú aðgang að 32 vatnasvæðum vítt og breitt um landið fyrir aðeins 5000 kr. Með veiðikortið í höndunum, ákveður þú hvar og hvenær þú veiðir! Frí heimsending þegar verslað er beint á www.veidikortid.is Garðurinn Umsjónarmenn: Svanhvít Ljósbjörg svanhvit@24stundir.is Kristjana Guðbrandsdóttir dista@24stundir.is María Ólafsdóttir maria@24stundir.is

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.