24 stundir - 25.06.2008, Síða 19

24 stundir - 25.06.2008, Síða 19
24stundir MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 19 KYNNING Fyrirtækið Jabo-hús selur fullein- angruð og fljótreist hús frá finnska fyrirtækinu Rosendahl og sænska fyrirtækinu Jabo. Bæði er hægt að kaupa sumar- og heilsárshús hjá fyrirtækinu. Bjálkaklæðningar „Húsin eru bjálkaklæðning- arhús einangruð með panel að innan. Einnig er hægt að fá hús með einingaveggjum. Hægt er að útvega allt upp í 200 fm heilsárs íbúðarhús en hingað til hefur þó frekar verið stílað inn á minni sumarhús sem eru allt upp í 100 fm stór en um 31 fm stór hús hafa verið einna vinsælust hjá þeim sem vilja byrja með lítinn bústað. Bæði fyrirtækin vinna úr mjög vönduðum við en finnsku húsin eru til að mynda úr greni og bjálkaklæðningu sem kemur fal- lega út þannig að húsið lítur út fyrir að vera úr gegnheilum bjálka,“ segir Sigurður Ingólfsson, eigandi Jabo-húsa, sem flutt hefur inn hús frá Jabo Wood Products í 10 ár. Húsin má finna um allt land en þau vinsælustu eru lítil sumar- hús og hús til ferðaþjónustu sem eru 20 til 32 fermetrar auk ver- andarinnar. Bjálkaklæðningin rað- ast upp bjálka fyrir bjálka en fyrir innan hana er einangrun og loks panell þar fyrir innan. Sigurður segir að líkt og með öll timburhús þurfi húsin sína fúavörn og við- hald á nokkura ári fresti. Auðvelt í uppsetningu Fermetrinn kostar yfirleitt um 65.000 krónur en Sigurður segir að yfirleitt margfaldi hann fer- metratöluna með 2,5 til að fá út endanlegt verð. Oftast setja menn húsin upp sjálfir en hafa þó smið sér til halds og trausts. maria@24stundir.is Vönduð hús frá Skandinavíu Minni sumarhúsin vinsælust Bjarkalundur Þrjú furuhús frá Jabo eru leigð út sem gistihús. Nokkra hluti er alveg nauðsynlegt að hafa í garðinum og einn þeirra er falleg vatnskanna til að vökva blómin. Þessi hér er í fallegum lit en þær má fá í margs konar litum og mynstrum í garðverslunum og sumum blómabúðum. Talsvert skemmtilegra en gamla, góða plastflaskan. Vatnskanna í fallegum lit Sumum finnst fínt að komast í ná- in tengsl við náttúruna með því að róta í mold með berum hönd- unum. Flestum þykir þó slíkt frek- ar hvimleitt þar sem moldin fer undir neglurnar og hendurnar verða skítugar. Því er gott að eiga hanska í garðinum sem auðvelt er að þrífa. Engin mold undir neglurnar Það vilja ekki allir hafa garðálfa á víð og dreif um garðinn en vilja þó gjarnan skreyta hann. Styttur af ýmsum stærðum og gerðum geta verið fínt garðskraut eða óróar til að hengja í trén svo og og ýmis konar öðruvísi blómapottar Ekki bara garð- álfar í garðinum Sumarbókin í ár Sjáið 12 af fallegustu görðum landsins í stórri og glæsilegri bók! Sumarhúsið og garðurinn – Síðumúla 15 – 578 4800 – www.rit.is

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.