24 stundir - 25.06.2008, Síða 22

24 stundir - 25.06.2008, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir Ekki búa allir svo vel að hafa garð en hafa ef til vill svalir í stað- inn. Ýmiss konar sniðugar lausnir eru til fyrir litlar svalir þannig að allt komist haganlega fyrir. Morgunmaturinn úti Sniðug hönnun er til eftir þýska hönnuðinn Christian Lessing og ætti að bjarga hverjum þeim sem finnst svalirnar sínar vera allt of litlar. Hægt er að festa ýmsa auka- hluti á grunn eininguna, t.d. sæti, hillu fyrir blómapott og lítið borð. Síðan má leggja þetta allt saman ef þörf er á meira plássi á svölunum. Mínígrill Bruce svalagrillið var hugsað og hannað fyrir þá sem vilja grilla á litlum svölum og er fest með því að setja það á svalahandriðið. Grillið er í raun lagað eins og blómakassi sem eru hentugir á svalir og passar því afar vel. Hægt er að fá skjól- veggi, blómakassa og lítil borð sem smellpassa á svalirnar. Á mynd hér til hliðar má meðal annars sjá felli- borð frá IKEA sem fest er á hand- rið og kostar aðeins 1690 krónur. Sniðugir hlutir á litlar svalir Púsluspil Eining sem hægt er að festa á hillur, sæti og borð. Pláss þarf ekki að þýða ráðaleysi Fallega og rómantíska stemningu má skapa í garðinum með litríkum luktum og ljóskerum. Ljóskerin má hengja í trjágreinar og dreifa luktunum um garðinn. Einnig er hægt að fá kyndla til að stinga nið- ur í grasið. Lítil þörf er á birtunni eins og stendur en þá má nota luktir og ljósker til skrauts og tendra síðan á þeim þegar skyggja tekur síðar í sumar. Til víða Vart þarf að taka fram að varlega skal gengið um þegar kertaljós loga, sérstaklega í garði þar sem gras og viður brennur glatt. Luktir og ljósker má kaupa víða í blóma- búðum og stórmörkuðum á góðu verði fyrir alla. Luktir og ljósker fallegar til skrauts og birtu Rómantískt Luktir fegra Í rósagarðinum De Tuinen í hol- lenska bænum Demen má sjá meira en 800 rósir sem plantað hefur verið eftir litasamsetningu í þremur mismunandi görðum. Sá appelsínuguli og guli er hugsaður til upplyftingar, sá fjólublái til íhugunar og hvíti til slökunar. Vel lyktandi til að heimsækja. Meira en 800 hollenskar rósir Hagstætt Felliborð frá IKEA. Bruce Grill á litlar svalir. Það getur verið gott að fá sér einn kaldan bjór eða kalt hvítvíns- glas í sólinni en sumum finnst slíkt óþægilegt og syfjar eða fá jafnvel höfuðverk. Langi mann samt að dreypa á víni í góðum félagsskap getur verið gott að fríska, t.d. upp á hvítvínið og gera það léttara með því að blanda því saman við safa eða gos. Hér kemur ein slík upp- skrift. Frískandi hvítvínsdrykkur Kaupið flösku af ávaxtakenndu hvítvíni og blandið varlega saman við 400 ml af límónaði í fallega könnu, en gera má heimatilbúið límonaði. Setjið síðan út í handfylli af bláberjum, nóg af klaka og nokkrar greinar af myntu. maria@24stundir.is Með bláberjum og límonaði Frískandi hvítvínsdrykkur Mæla má með að garðáhugafólk á leið um England leggi leið sína í The Romantic Garden Nursery sem finna má í Norfolk-héraði, nánar tiltekið í bænum Swann- ington. Í þessari sérhæfðu gróðr- arstöð má finna eitt besta úrval landsins af formklipptum runn- um, plöntum og ýmiss konar gróðri. Þar má einnig kaupa skapa- lón til að klippa til eigin runna og alls kyns blómapotta og vörur sem búnar eru til af handverksfólki á svæðinu. Þá gefa starfsmenn gest- um einnig góð ráð er varða trjá- klippingar og gróðurrækt. Keyrsla til Norfolk frá London tekur um tvær klukkustundir. maria@24stundir.is Sérhæfð gróðrarstöð Ástæða þess að bera þarf áburð á gróður er fyrst og fremst sú að ekki er nægjanlegt magn næringarefna í jarðveginum til að uppfylla kröfur plantna. Þó vaxa hér plöntur sem má setja í afar rýrt land. Lúpína getur sjálf unnið áburð, þ.e. köfn- unarefni úr andrúmslofti með hjálp af rótargerlum (Rhizobíum). Um flestan annan gróður sem sett- ur er í slíkt land þá gildir að vöxtur og þrif eru ákaflega léleg nema borið sé á hann. dista@24stundir.is Áburður nauðsynlegur Næringarríkur jarðvegur til ræktunar

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.