24 stundir - 25.06.2008, Side 28

24 stundir - 25.06.2008, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir Upplýsingar í síma 517 2220 Bakverk - heildsala ehf, Tunguháls 10, 110 Reykjavík Rafmagns gólfkerra með fjarstýringu Vorum að fá mjög góðar rafmagns golfkerrur, með fjarstýringu, sem hægt er að beygja. Hverri kerru fylgir bolta og skorblaðahaldari. Getur farið allt að 20 km á hleðslunni. Fer lítið fyrir þegar búið er að leggja saman. Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is Velflestir áhugakylfingar, jafnvel þeir sem vel eru á sig komnir, finna fyrir nokkurri þreytu að loknum átján holu hring á krefjandi golf- velli. Til eru þeir sem láta sig þó ekkert muna um einn hring til við- bótar á góðum degi en þá er farið að draga talsvert af þeim allra hörðustu. En fjórir átján holu hringir á einum sólarhring? Það er akkúrat það sem sextán manna hópur frá Capacent hyggst gera á morgun í annað skiptið en í það fyrra voru menn svo aðframkomn- ir að 72 holum loknum að heita mátti að yfirstjórn fyrirtækisins lamaðist í viku á eftir. Golfaþon Þeir kalla þetta golfaþon sín á milli en þeir sextán útvöldu hefja leik eldsnemma í fyrramálið á golf- velli Odds í Hafnarfirði og leika þar tvo hringi áður en haldið verður til Keflavíkur að golfvelli Suðurnesja þar sem seinni tveir hringirnir verða teknir. Áætlað er að fyrstu menn dúndri af teig milli 5 og hálf- sex í nótt og síðustu menn klári 72. holuna milli 3 og 4 aðfararnótt föstudagsins. Hrannar Hólm, framkvæmda- stjóri fjárfestingasviðs hjá Capa- cent, er einn forsprakka þessa uppátækis ásamt forstjóranum sjálfum Skúla Þór Gunnsteinssyni, en Hrannar fullyrðir að tilurð golfaþonsins hafi verið nokkur til- viljun. „Upphaflega hugmyndin var að taka þátt í maraþonhlaupi nema hvað að menn komust fljót- lega að því þegar farið var að æfa sig að sumir voru aðeins eldri og verr á sig komnir en þeir töldu og ýmis meiðsl og tognanir fóru fljót- lega að gera vart við sig. Þá ákváðum við að salta málið aðeins þangað til okkur datt í hug að breyta maraþoni í golfaþon. Við komumst nefnilega að því að með- algolfhringur er þetta 10-12 kíló- metrar og með fjórum slíkum er- um við í raun að ganga heilt maraþon.“ Tuttugu tímar Fyrirtækið stóð fyrsta sinni fyrir golfaþoninu fyrir ári síðan og gekk það í alla staði vel þó Hrannar við- urkenni að lítið þrek hafi verið eftir í lokin fyrir veislu sem þá var hald- in í lokin. „Áhuginn er samt mikill og nú til dæmis er mótið orðið al- þjóðlegt því viðskiptavinir okkar frá Svíþjóð og Danmörku koma hingað til lands og taka þátt og það verður að viðurkennast að mun fleiri hafa sóst eftir því að vera með. Gjarnan vildum við hafa enn fleiri og við hugsuðum okkur að hafa 24 í stað 16 en það er bara miklu meira en að segja það. Skipulagningin er óheyrilega mikil kringum þetta og enginn einn golf- völlur lokar heilan sólarhring fyrir svona lagað. Svo er þetta þannig til að keyra mannskapinn ekki alveg út að þótt við göngum alla hring- ina þá eru kylfur okkar og pokar keyrðir um ásamt hressingu og þá skapast vandamál með fjölda þeirra því slíkur fjöldi golfbíla er ekki á lausu heldur hjá klúbbunum hér enn sem komið er.“ Hörð keppni Golfaþonið fer þannig fram að skipt er í tvö lið með átta í hvoru liði og keppa þau innbyrðis allan tímann. „Það kom hvað mest á óvart í fyrra hversu hörð sú keppni varð og kannski aðallega keppnis- skapið í hverjum og einum sem kom í veg fyrir að menn dytti út en vissulega vorum við afar heppnir með veður. Ég býð varla í 20 stund- ir ef það verður rigning eða leið- inlegt veður.“ Áfram veginn Hrannar segir að uppátækinu verði fram haldið og menn gæli við að í framtíðinni verði mótið að góðgerðarmóti og ákveðið verkefni eða stofnun styrkt af þessu tilefni. „Það er hugmyndin og það er að- eins vegna þess hve mikið verkefni það er að skipuleggja slíkt sem það hefur ekki gefist tími til að gera þetta að því sem við vonumst eftir. Það er hins vegar von okkar að við- burðurinn verði til góðs og við klárum það mál fyrir næsta golfa- þon að ári.“ Heitir bakstrar og nuddari Aðspurður um hvort ekki verði meira eða minna lokað hjá fyrir- tækinu næstu vikuna meðan yfir- stjórnin nær sér eftir þrekraunina segir Hrannar svo ekki vera. „Það er boðið upp á nuddara til að halda mönnum ferskum en eflaust verða menn stífir og aumir eitthvað næstu dagana. Annað væri óeðli- legt.“ Ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur hjá stjórnendum Capacent á Íslandi Fjórir hringir á tuttugu tímum Klukkan hálfsex í fyrra- málið hefst tuttugu klukkustunda stanslítið golfaþon hjá sextán ein- staklingum sem starfa hjá eða fyrir Capacent. Búast má við talsverðum töfum hjá yfirstjórn fyr- irtækisins út næstu viku vegna eymsla og þreytu yfirmanna. Hópurinn frá í fyrra Tuttugu klukkustunda golf er ekkert smáræði enda alhörðustu menn orðnir meðvitundarlitlir að því loknu. ➤ Snýst í grunninn um að gangasömu vegalengd og hlaupin er í venjulegu maraþon- hlaupi, u.þ.b. 42 kílómetra. ➤ Þó með þeim formerkjum aðspila golf á meðan en Hrann- ar og félagar hafa reiknað út að meðalgolfhringur er á bilinu 10-12 kílómetrar. Fjórir hringir jafngilda því vega- lengd maraþons. GOLFAÞON? Næturhúm Golfaþoninu lýkur þrjú um nóttina. „Það stefnir í að þátttakendur verði hátt í 30 að þessu sinni,“ sagði Ágúst Guðmundsson, for- sprakki Stjörnugolfsins, en það ágæta mót fer fram á Urriðavelli hjá golfklúbbnum Oddi í dag. Þar leiða saman hesta sína í golfinu vel þekktir Íslendingar til styrktar Neistanum, styrktarfélagi hjart- veikra barna. Ýmis þekkt nöfn eru á listanum að þessu sinni; grínistinn Laddi, Guðjohnsen-fótboltafeðgar, Sveppi, Jón Arnór Stefánsson, Pét- ur Pétursson og tónlistarfólkið Helga Möller og Eyfi ásamt fleir- um. Hefst mótið klukkan tíu en einnig verða fulltrúar frá Neistan- um á fjórum öðrum golfvöllum suðvestanlands allan daginn í dag og taka á móti framlögum. Er þetta í fimmta sinn sem Stjörnugolf er haldið en hugmynd- in gengur út á að einstaklingar eða fyrirtæki greiða 75 þúsund krónur fyrir að senda tvo keppendur til keppni móti stjörnunum heilan hring en mótið er fyrst og fremst til gamans og til að safna fé til þarfs málefnis. Hátt í 30 þekktir einstaklingar golfa fyrir gott málefni Stjörnufans í stjörnugolfi LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Það er boðið upp á nuddara til að halda mönnum ferskum en eflaust verða menn stífir og aumir eitthvað næstu dagana. Annað væri óeðlilegt. golf

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.