24 stundir - 25.06.2008, Side 30
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Um þessar mundir er unnið að
kortlagningu umhverfisvænnar
þjónustu og náttúruverðmæta hér
á landi. Kortið getur til dæmis nýst
vel þeim neytendum sem vilja vita
hvar hægt er að nálgast umhverf-
isvottaðar vörur eða þjónustu.
„Það er löngu kominn tími á að
gefa út svona kort og þau eiga fyrst
og fremst að vera á netinu,“ segir
Anna Karlsdóttir, landfræðingur
og lektor við Háskóla Íslands.
Kortagerðin er samstarfsverkefni
ferðamálafræði við HÍ og vefjarins
Náttúrunnar.is.
„Náttúran.is hefur verið að safna
og miðla upplýsingum um ýmiss
konar flokka sem tengjast grænum
fyrirtækjum eða framleiðslu þann-
ig að það samræmdist nokkuð vel,“
segir hún.
Alþjóðleg kortlagning
Kortagerðin er jafnframt liður í
alþjóðlegu samstarfsverkefni
grænna korta sem er haldið úti á
síðunni www.greenmap.org. Þar er
hægt að nálgast hundruð grænna
korta hvaðanæva úr heiminum.
„Grænkortakerfið er orðið mjög
stórt og nú er verið að tengja það
inn í GoogleMaps þannig að það
verði aðgengilegt fyrir alla, bæði
borgara og ferðamenn,“ segir Anna
en bendir jafnframt á að mikill
kostnaður fylgi því að útbúa þess
háttar gagnvirkt kort fyrir Ísland.
„Í fyrstu lotu verður þetta bara
staðlað kort á pdf-formati en síðar
meir viljum við náttúrlega að þetta
verði miklu gagnvirkara,“ segir
Anna og bætir við að þá yrði kortið
notendavænna og samhæft þeim
kortum sem fyrir eru í kerfinu.
Ekki í ágóðaskyni
Fyrsta útgáfa kortsins verður
opnuð á www.natturan.is á næstu
dögum og mun síðan þróast með
tíð og tíma. „Til þess að þetta geti
orðið almennilegt köllum við eftir
því að fólk láti okkur vita ef það
telur að það eigi erindi á svona
kort. Við viljum að þetta gefi sem
réttasta mynd af ástandinu,“ segir
Anna og áréttar að líkt og önnur
grænkort sé þetta ekki unnið í
ágóðaskyni. „Það kom upp mál í
Kaupmannahöfn þar sem kona
seldi fyrirtækjum staðsetningu á
korti. Hennar markmið var að sýna
alla sem voru að versla með lífrænt
vottaða vöru og hún lét þátttak-
endur í raun og veru borga launin
sín. Þeir sem ekki borguðu komust
ekki á kortið og þannig er ekki
hægt að vinna ef maður ætlar að
gefa rétta mynd af ástandinu,“ seg-
ir Anna Karlsdóttir að lokum.
Græna Ísland Anna Karlsdóttir
landfræðingur vinnur að gerð
græns korts fyrir Ísland í samstarfi
við vefinn natturan.is.
Umhverfisvottuð þjónusta á Íslandi kortlögð
Ísland kemst á
græna kortið
Grænt kort fyrir Ísland
verður senn aðgengilegt
á netinu. Slíkt kort getur
til dæmis nýst þeim neyt-
endum sem vilja velja
umhverfisvottaðar vörur
og þjónustu.
➤ Samstarfsverkefnið hefurþróast frá árinu 1995 og nær
nú til 475 borga og sam-
félaga í 54 löndum.
➤ Kortagerðarmennirnir komaúr ýmsum áttum en þar er
meðal annars að finna hönn-
uði, landfræðinga, listamenn
og hugsjónafólk.
GRÆNKORTAKERFIÐ
30 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir
Nú þegar landsmenn flykkjast í
sumarfrí og ekkert lát virðist vera á
verðhækkunum leiða margir hug-
ann að því hvernig megi njóta lífs-
ins í fríinu á ódýran hátt. Það er
sem betur fer hægt að gera sér
margt til skemmtunar í fríinu án
þess að eyða stórfé. Sumt kostar
jafnvel ekki neitt.
Ókeypis safnaferð
Sum listasöfn innheimta engan
aðgangseyri og það sama má segja
um vel flest gallerí. Þá er ókeypis á
ýmis önnur söfn einn dag í viku og
margt vitlausara en að nýta sér það.
Útivist í nágrenninu
Í stað þess að eyða stórfé í ferða-
lög til útlanda eða landshorna á
milli er upplagt að kynna sér hvaða
möguleikar bjóðast til útivistar og
ferðalaga í næsta nágrenni. Áhuga-
verðir sögustaðir og náttúruperlur
leynast oft rétt handan við bæjar-
mörkin.
Fjölskyldan saman
Opin svæði innan bæjarmark-
anna bjóða einnig upp á möguleika
til skemmtilegra samverustunda
fyrir alla fjölskylduna. Þá er alltaf
gaman að skella sér saman í hjóla-
túr eða á línuskauta.
Bóklestur á sumrin
Sumarfríið hentar vel til bóklest-
urs hvort heldur er úti í garði á sól-
ríkum degi eða uppi í sófa þegar
verr viðrar. Það kostar ekkert að
endurnýja kynnin af bókaskápnum
og bókasafnsskírteini eru ekki
heldur sérlega dýr.
Veisla heima
Í stað þess að sækja veitinga- og
kaffihús í fríinu er hægt að bjóða
fólki heim í mat og kaffi. Það er
ekki aðeins ódýrara heldur oft mun
skemmtilegra.
Hægt er að njóta frísins á ódýran hátt
Afþreying sem kostar lítið
IKEA hefur innkallað BARNS-
LIG-svefnpoka og biður þá sem
hafa keypt slíka poka um að skila
þeim aftur í verslunina gegn fullri
endurgreiðslu. IKEA hefur fengið
tvær tilkynningar frá viðskiptavin-
um erlendis þar sem botninn á
rennilásnum hefur losnað frá sem
gerir mögulegt fyrir sleðarofann að
losna frá. Báðir hlutirnir geta skap-
að hættu á köfnun fyrir lítil börn.
Svefnpokarnir eru framleiddir í
Indónesíu og hafa verið seldir síð-
an í apríl á þessu ári. Viðskiptavinir
sem hafa keypt BARNSLIG svefn-
poka með dagsetningarstimplun-
um 0745 upp í 0824 eru beðnir um
að skila þeim til IKEA gegn fullri
endurgreiðslu. Dagsetningarstimp-
illinn er á merkimiða sem er saum-
aður innan á pokanum.
IKEA innkallar svefnpoka fyrir börn
Skapa hættu á köfnun
55% efnavara í byggingarvöru-
verslunum hér á landi voru rétt
merktar á íslensku samkvæmt
könnun sem Umhverfisstofnun
og heilbrigðiseftirlit stóðu að
víða um land. Í 28% tilfella vant-
aði alfarið íslenskar merkingar en
í 17% tilvika voru vörurnar
merktar á íslensku en á ófull-
nægjandi hátt.
Vanmerktar efnavörur fundust í
öllum verslunum sem heimsóttar
voru en alls voru kannaðar 2.272
vörutegundir í 16 verslunum. Ör-
yggisblöð á íslensku voru ekki til
staðar í neinni verslun sem könn-
unin náði til og þá fundust eitur-
efni og bannvörur í nokkrum
verslunum.
Skýrsla með niðurstöðunum er
nýkomin út og er aðgengileg á vef
Umhverfisstofnunar www.ust.is.
Misbrestur á merkingum
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Grænkortakerfið er orðið mjög stórt og nú er
verið að tengja það inn í GoogleMaps þannig
að það verði aðgengilegt fyrir alla, bæði borgara
og ferðamenn. neytendur
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Fuerteventura
frá kr. 29.990 m.v. 2
Heimsferðir bjóða ótrúlegt sértilboð á síðustu sætunum til
Fuerteventura 1. júlí. Þessi skemmtilega eyja í Kanaríeyjaklasanum
hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Njóttu lífsins
á þessum vinsæla sumarleyfisstað í fríinu. Þú bókar flugsæti og 4
dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Bjóðum einnig frábært sértilboð á hinu vinsæla Maxorata Beach
íbúðahóteli sem er einstaklega vel staðsett í Corralejo.
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. 2 - 4 saman í íbúð.
1. júlí í 2 vikur
Örfá sæti laus!
Ótrúlegt tilboð
- 2 vikur