24 stundir - 25.06.2008, Qupperneq 40
24stundir
Sumarfríið hefst í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Í verslunum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar færðu allt sem þú þarft fyrir ferðalagið: Sólarvörn,
myndavél, strandtösku, sólgleraugu, stuttbuxur, i-Pod, tímarit og ekki má gleyma gjald-
eyrinum. Njóttu þess að gera góð kaup í upphafi ferðarinnar og vertu klár á ströndina um
leið og þú lendir á áfangastað.
www.airport.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
L
E
40
91
7
06
.2
00
8
? Ég hef ráðamenn þessa lands grunaðaum að beita okkur almennu borgarannablekkingum með dyggri aðstoð fjöl-miðla. Undanfarna mánuði hefur alltverið að fara til fjandans í efnahagslífinu.Þetta hefur varla farið fram hjá neinum.Nú á allra síðustu dögum varð svo met-lækkun á krónunni, methækkun á bens-
íni, Íbúðalánasjóður varð að koma
bönkunum til bjargar, Icelandair til-
kynnir um fjöldauppsagnir og Eimskip
afskrifar einhverja milljarða – sem sagt
allt í fokki. Og ég hef stjórnvöld sem sagt
grunuð um að nota eitt elsta trixið í bók-
inni til að bregðast við þessu. Í stað þess
að gera eitthvað af viti og reyna að taka á
vandanum er sjónum almennings bara
beint eitthvað annað. Ráðamenn vita
eftir Lúkasarmálið margfræga að fátt
kveikir meira í þjóðarsálinni en ofbeldi
gagnvart ferfætlingum. Þannig hefur
einhverjum spunameistaranum dottið
það snjallræði í hug að fá hingað til
lands nokkra ísbirni, sleppa þeim laus-
um og skjóta þá. Svo var einn hvolpur
grafinn lifandi undir grjóti til að halda
umræðunni örugglega frá hinum raun-
verulegu vandamálum í smá tíma til við-
bótar. Og það sorglega er að þetta geng-
ur 100% upp. Fjölmiðlar og
almenningur kokgleypir þetta enda flest-
ir komnir með ógeð af krepputali. Þann-
ig beinist pirringur landans frekar að
meintum hundaníðingi og bjarn-
armorðingjum í stað ráðherra.Við meg-
um ekki láta ferfætlingana stela senunni
alveg – við þurfum að halda áfram að
láta ráðamennina heyra það líka.
Stóra ferfætlingasamsærið
Ágúst Bogason
Finnst ferfætlingar fá
fullmikla athygli
YFIR STRIKIÐ
Eru birnirnir
á vegum
Bjössa Bjarna?
24 LÍFIÐ
Gagnrýnanda blaðsins fannst nýj-
asta mynd Aarons Eckhart og Jes-
sicu Alba síðri útgáfa af
American Beauty.
Meet Bill aðeins
tveggja stjörnu virði
»34
Mikið ósætti er á milli fjölskyldu
leikarans Heaths Ledgers og barns-
móður hans varðandi
eignir leikarans látna.
Rifist um erfðaskrá
Heaths Ledgers
»36
Stjórnvöld í Bandaríkjunum finnst
Boy George ekki nægilega góður
pappír til að hleypa
honum inn í landið.
Boy George getur
ekki farið á túr
»34
● Veislunni að
ljúka „Mér þykir
svo gaman að
hitta þá Pétur og
Auðun þannig að
ætli ég reyni ekki
að bjóða þeim í
hádegismat til að
halda sambandi,“
segir Þorsteinn Joð sem hefur
ásamt þeim Pétri Marteinssyni og
Auðuni Helgasyni séð um umfjall-
anir í kringum leiki á Evr-
ópumótinu í knattspyrnu. Almenn
ánægja hefur ríkt á meðal fólks
með samstarf þremenninganna
sem senn líður undir lok. „Að
vinna með flottu fólki er það sem
gerir útslagið,“ segir Þorsteinn.
● Engin upp-
hitun „Paul Sim-
on vildi ekki hafa
neina upphitun og
tónleikarnir byrja
því stundvíslega
klukkan átta.
Hann ætlar nefni-
lega að spila í
rúmar tvær klukkustundir lög af
öllum ferli sínum,“ segir Guð-
bjartur Finnbjörnsson tónleika-
haldari um væntanlega tónleika
stórstjörnunnar í Laugardalshöll á
þriðjudaginn kemur. Simon er bú-
inn að panta Höllina í tvo daga þar
sem hann ætlar að nýta þann fyrri
til að æfa með hljómsveit sinni.
Nær uppselt er í stúku og miðar í
stæði hreyfast vel.
● JJ Soul band
snýr aftur „Ég var
akkúrat að fá plöt-
una í hendurnar
áðan frá Tékkó-
slóvakíu,“ segir
Ingvi Þór Kor-
máksson lagahöf-
undur JJ Soul
Band sem gefur senn út sína fyrstu
plötu í ein sex ár en sjálfur fagnar
hann 25 ára útgáfuafmæli í ár.
Söngvari og textahöfundur sveit-
arinnar, JJ Soul, fluttist héðan af
landi brott fyrir um 11 árum en
kom hingað í fyrra til þess að
hljóðrita nýju skífuna. Platan heitir
Bright Lights.
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við