24 stundir - 08.08.2008, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Strætisvagnar Reykjavíkur var
stofnað í kreppunni árið 1931 sem
hlutafélag með styrk frá bæj-
arstjórn. Vagnarnir voru glæsilegar
stálgráar Studebaker bifreiðar 14
og 25 manna og sá fyrsti var í föst-
um ferðum milli Klepps og Kapla-
skjóls frá sex á morgnana til hálf
eitt á næturna. Almenningur í
Reykjavík notaði vagnana og upp-
bygging félagsins var með ágætum
fram að áttunda áratugnum.
„Á áttunda áratugnum og byrj-
un þess níunda eignumst við pen-
inga. Á þessum tíma tekur jafnt og
þétt að draga úr notkun
strætó,“segir Reynir. „Hún er
síðan þá á jafnri og þéttri niðurleið
og virðist svo sem ekki vera neitt
lát á,“ bætir Reynir við og bendir á
að sú þróun sé almenn þróun í
þeim löndum sem við berum okk-
ur saman við- þ.á.m í Danmörku.
En hefur hækkandi verð á olíu
ekki leitt af sér fjölgun farþega?
„Ef til vill gerist það á næstu
mánuðum en í dag er það ekki
merkjanlegt. Kosturinn við að eiga
einkabíl hér á landi er óumdeild
ur,“ segir Reynir og bendir á að
flestir telji ekki hægt að sinna dag
legu amstri án hans þrátt fyrir
hækkandi verð á eldsneyti og
minna framboði á lánum. „Al-
menningssamgöngur munu aldrei
koma í stað einkabílsins, jafnvel
þótt þær yrðu mjög fullkomnar.
Almenningssamgöngur og einka-
bílaeign eru ekki gagnkvæmt úti-
lokandi valkostir, eins og margir
vilja stilla málinu upp og að eina
leiðin sé sú að almennings-
samgöngur verði svo fullkomnar
að þú þurfir bara ekkert að eiga bíl.
Þetta er ekki raunhæft. Þeirri hugs-
un þarf að koma að, að nota eigi
báða samgöngumáta jöfnum
höndum, eins og vel þekkist er-
lendis.“
En hvað þarf til að breyta
áherslum í samgöngum svo almenn
ingssamgöngur verði veigameiri?
„Þessarri spurningu verður ekki
svarað á auðveldan máta en það
má gera sér í hugarlund ákveðnar
aðstæður þar sem almennings-
samgöngur blómstra,“ segir Reyn-
ir. Fyrst og fremst köllum við
stjórnendur Strætó.bs eftir sameig-
inlegri stefnu sveitarfélaganna í
samgöngumálum, hvað á að fram-
kvæma og hver á að sjá um fram-
kvæmdirnar? Þetta er afar mik-
ilvægt samfélagslegt verkefni sem
þarf að takast á við. Umræðan í
samfélaginu hefur ennfremur ein-
kennst af því að strætó sé ónýtur
og eina leiðin sé að koma á lest-
arkerfum. Neðanjarðarlest fer
beinar, ákveðnar leiðir og fer ekki í
úthverfin. Lest verður alltaf viðbót
á höfuðborgarsvæðinu.“
Hvað mætti byrja á að athuga?
„Til að byrja með má athuga sam-
keppnisumhverfið og breyta því
svo ekki halli á almennings-
samgöngur,“ segir Reynir og nefnir
sem dæmi að á höfuðborgarsvæð-
inu sé aragrúi bílastæða, um 800
stæði á hver 1000 störf og hlutfall í
öðrum borgum sé meira en helm-
ingi minna. Þá séu stöðumælasekt-
ir mun lægri en annars staðar, for-
gangur fyrir almenningsvagna sé
ekki til staðar og virðisaukaskattur
greiddur af öllum aðföngum.
Álögur burt
„Ef að bíll kallast strætó er
greiddur af honum virðisauka-
skattur, kallist hann hópbifreið
greiðist enginn. Þetta mætti til
dæmis færa til betri vegar.“ Reynir
nefnir að auki að forgangur í um-
ferð geti aukið verðmæti almenn-
ingssamgangna til muna. „For-
gangur í umferðinni, tíðari ferðir á
stærra svæði og bætt þjónustustig
eru atriði sem eru í framtíðarsýn
félagsins.“
24stundir/Frikki
Hækkun eldsneytisverðs skilar sér ekki í auknum farþegafjölda
Daglegt amstur án
einkabíls?
➤ Hér á landi eru 15% af rekstrifyrirtækisins fjármögnuð með
tekjum af fargjaldi.
➤ Annars staðar er hlutfalliðnær 40%-60%.
➤ Strætó bs. er í rekstrarvandaog sveitarfélög biðla til ríkis
um að taka þátt í rekstr-
arkostnaði.
➤ Forgangur í umferðinni, tíðariferðir á stærra svæði og bætt
þjónustustig eru atriði sem
eru í framtíðarsýn félagsins.
STAÐAN Í DAG
Strætó er ávallt eldfimt
umræðuefni og skiptar
skoðanir eru um hvaða
aðferðum sé best að
beita til að hann skili því
hlutverki sem honum er
ætlað. Reynir Jónsson,
framkvæmdastjóri
Strætó bs., svarar spurn-
ingum um framtíð fyr-
irtækisins.
Unnið að úrbótum
Stjórn fyrirtækisins
Strætó bs. vinnur
hörðum höndum að
bættum rekstri.
Erfitt verkefni fram-
undan Krafa um betri
þjónustu og hagkvæm-
ari rekstur.
Líf og fjör á Lækjartorgi Þegar al-
menningssamgöngur blómstra og
fólk stígur úr einkabílnum blómstrar
mannlífið sömuleiðis.
Taka lestina? Verið er
að kanna möguleika á því
að setja upp léttlest-
arkerfi á höfuðborg-
arsvæðinu.
Bílar
Umsjónarmenn:
Svanhvít
Ljósbjörg
svanhvit@24stundir.is
Kristjana
Guðbrandsdóttir
dista@24stundir.is
María
Ólafsdóttir
maria@24stundir.is
SJÁLFVIRK
6v / 12v / 24v 0,8A - 25A
HLEÐSLUTÆKI
Snilldartæki sem mega vera í sambandi allt árið
og geta hlaðið allar gerðir rafgeyma.
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
FJAÐRIR OG GORMAR
Í FLESTAR GERÐIR
JEPPA
Japan/U.S.A.