Alþýðublaðið - 18.11.1972, Side 1
„MAÐUR KLÆÐIR SIG BARA VEL,
OG SVO ER HLÝTT í SKÚRNUM"
Hún lætur ekki frostiö á sig fá
hún Salóme Jakobsdóttir, en
hjálpar ótrauð börnunum yfir
gangbrautina á Sundlauga-
veginum við sundlaugina
hvernig sem viðrar, og ekki
sagðist hún kviða fyrir vetrin-
um. „Maður klæðir sig bara vel,
og svo er hlýtt i skúrnum”,
sagði hún þegar við stoppuðum
hjá henni i gærdag til að spjalla
við hana.
Og hún Salóme er yngsti
gangbrautarvörðurinn, hún er
ekki nema 18 ára gömul, — en
það var eiginlega aðal ástæðan
fyrir þvi, að við brugðum
myndavélinni á loft, þegar við
sáum hana.
Hún trúði okkur fyrir þvi, að
hún ætlaði að vera þarna við
gangbrautina i allan vetur, —
reyndar ekki nema hálfan
daginn, — hinn helminginn
ætlar hún að vera heima hjá
barninu sinu.
Ekki sagði Guttormur
Þormar i Umferðarmála-
deildinni, að mikil ásókn væri i
þetta starf, en þó sagði hann, að
tvær konur hefðu ekki komizt að
siðast þegar var auglýst.
albýðu
BRETAR TOKU
30,000 TONNUM
BETUR í FYRRA
„Með hliðsjón af aflaþróun I
áranna 1969 og 1970, olli árið 1971
nokkrum vonbrigðum”, segir i
yfirlitsgrein um islenzkan sjávar-
útveg 1971 i nýjasta hefti Ægis,
rits Fiskifélags tslands.
Greinir Ægir mjög ýtarlega frá
sjávarútveginum og afkomu hans
i fyrra, en hér er aðeins hægt að
stikla á þvi stærsta.
í yfirlitinu segir, að búist hafi
verið við nokkrum samdrætti árið
1971, en ekki eins miklum og raun
varð á. Orsakirnar megi að
nokkru leyti rekja til meiri
sóknar erlendra veiðiskipa á
miðin.
Þannig hafi t.d. afli Breta á
Islandsmiðum aukist um liðlega
30 þúsund lestir, á sama tima og
afli tslendinga sjálfra dróst
saman um tæpar 50 þúsund lestir.
Þessi samdráttur nemur 6,8%
frá fyrra ári. Hins vegar jókst
KRAG SÆKIR UH
LEKTORSSTÖDU
Jens Otto Krag, fyrrverandi
forsætisráðherra Danmerkur,
hefur nú sótt um stöðu við
háskólann i Arósum.
— iiMWIr T
verðmæti aflans upp úr sjó um
15%, eða um tæpar 750 milljónir
króna.
Síðan segir i greininni i Ægi, að
erfitt sé að gera sér grein fyrir
framtiðarhorfum fiskveiðanna
við tsland. útfærsla land-
Framhald á bls. 4
NORÐANÁTTIN
A UNDANHALDI
Veðurstofan spáði þvi i gær-
kvöld, að norðanáttin, sem
rikt hefur um gjörvallt iandið
að undanförnu, gengi niður
um helgina. Sagði Jónas
Jakobsson veðurfræðingur i
samtaii við biaðið, að nú drægi
til austanáttar, frost minnkaöi
og jafnframt myndi þykkna
upp.
Jónas sagði að orsakir
veðrabrigðanna framundan
væru þær, að háþrýstisvæði
sem var við Grænland teygir
sig nú austur á bóginn yfir
tsland. Jafnframt teygði
lægðarsvæði við Suður-Græn-
land sig i austurátt.
Þá sagði Jónas, að jafnvel
mætti búast við einhverri
snjókomu sunnanlands yfir
helgina, en fyrir norðan yrði
bjartara, og þar væri óliklegt
að þiðnaði.
Sunnlenzkir skiðaáhuga-
menn mega þvi jafnvel búast
við skiðafæri yfir helgina,
einkum þó á Bláfjallasvæðinu.
RAFMAGN SKAMMTAÐ
NORÐURLANDI (VETUR
Aktuelt, aðalmálgagn
jafnaðarmanna i Danmörku,
skýrir frá þvi siðastliðinn
íjtnmtudag, að Krag hafi sótt um
stöðu lektors eða adjunkts i þjóð-
félagsfræðum við háskólann i
Árósum. Fullyrðir blaðið að Krag
verði veitt staðan.
Meðal þeirra kennslugreina,
sem hinn fyrrverandi forsætis-
ráðherra kemur til með að kenna,
er alþjóðastjórnmál.
Þegar Aktuelt sneri sér til hins
fyrrverandi forsætisráðherra i
siðustu viku, kvaðst hann aðeins
vilja segja þetta:
„Ég neita þvi ekki, að ég er ein-
mitt að skrifa umsóknina”.
Það er fyrirsjáanlegur
rafmagnsskortur á Norðurlandi
i vetur, eða á svæði Laxár-
virkjunar, frá Raufarhöfn aö
Dalvik, og sjálfsagt verður
gripið til skömmtunaraðgerða,
sagði Ingólfur Arnason, raf-
veitustjóri á Akureyri i viðtali
við blaðið i gær.
Stjórn Laxárvirkjunar hefur
ritað bréf þar sem þetta kemur
ótvirætt fram. Segir þar að
stöðin sé nú keyrð á fullum
afköstum til að anna rafmagns-
þörfinni, en með vetrinum,
þegar vatn fari að minka i Laxá,
dragi óhjákvæmilega úr af-
köstum stöðvarinnar, sem hafi
þá rafmagnsskort i för með
sér.
Ingólfur sagði, að þegar til
skömmtunar kæmi, yröi hún
látin ganga jafnt yfir Norður-
landið.Reyntverður að halda at-
vinnurekstri i gangi með að
taka rafmagn af ibúðarhverf-
um.
Nokkrar diesel-rafstöðvar,
svonefndar varastöðvar, eru á
Norðurlandi, en þær munu engu
bjarga þar sem þær eru nú
þegar keyrðar á nær fuílum
afköstum.
Bjóst Ingólfur við að ástandið
gæti orðið mjög slæmt, ef eitt-
hvað bilaði i kerfinu, og bætti
við, að þar væri allra veðra von
sem kerfið væri viða veikt.
Það er ekki lengra siðan en i
fyrradag, að stór spennir
skammt frá Akureyri brann yfir
með þeim afleiðingum, að allt
svæðið frá Akureyri til Hjalt-
eyrar varð rafmagnslaust, auk
Hörgárdals, Þelamerkur og
öxnadals. Vonir stóðu til að við-
gerðum lyki i dag.
Við þessa bilun urðu móttakari
og sendir Landssimans að
Björgum i Hörgárdal
rafmagnslausir, og þó að þar sé
varastöð, var ekki nema ein
simalina opin á milli Reykja-
vikur og Akureyrar um tima i
fyrradag og var samband mjög
slæmt.
Sagði Ingólfur að spennir
þessi væri aðeins einn veikur
hlekkur i rafkerfinu nyrðra, en
þeir væru miklu fleiri. Kerfið
væri viða veikt og þvi mætti
búast viö hverskyns skakkaföll-
um i Aðalástæðan fyrir þessum
fyrirsjáanlega rafmagnsskorti
er seinkun á framkvæmdum við
Laxárvirkjun. Búizt var við að
viðbótin við stöðina þar yrði
komin i gagnið nú i haust, en
vegna ófyrirsjáanlegra tafa
taldi Ingólfur liklegt, að það
yrði ekki fyrr en i vor. —
SKORTUR FYRIRSJAANLEGUR KERFID ViÐA VFik-