Eintak - 26.05.1994, Blaðsíða 27
Dýrið komið í
nýföt
uninni en innan skamms má einn-
ig sjá þar fatnað frá ferskum og
frumlegum, frönskum hönnuðum.
Að sögn Dýrleifar Örlygsdóttur,
sem er annar eigandi Frikka og
Dýrsins, er mjög mikið af ungum
hönnuðum í stórborgunum er-
lendis sem eru að reyna að koma
vöru sinni á framfæri. „Stóru nöfn-
in í tískuheiminum eru jafnvel far-
in að leita til ungu hönnuðanna til
að fá hugmyndir. Það eru þessir
Fyrir nokkrum vikum voru
Frikki og Dýrið ásamt versluninni
Spútnik í fararbroddi með sölu á
notuðum fatnaði. Síðan var Frikka
og Dýrinu lokað og óttuðust marg-
ir að kaffibararekstur eigendanna
heíði heltekið þá. Sá ótti reyndist
ástæðulaus því að í síðustu viku
opnaði breytt og betrumbætt búð
sömu eigenda við Smiðjustíginn.
Nýja búðin selur tískufatnað frá
ungum hönnuðum sem starfa í
London og París. Enn sem komið
er er aðeins hægt að fá fatnað frá
London í versl-
Snæbjörn Arngrímsson
„Póstkortaformið ersvo knappt og svo ermynd hinum megin."
Póstkortasam-
keppni hleypt af
stokkunum
Tímaritið Bjartur og frú Emilía gengst nú fyrir afar nýstárlegi
bókmenntasamkeppni sem á sérlega vel við að sumri til; póstkorta-
samkeppni.
„Hugmyndin kom þegar ég fékk póstkort frá Braga Ólafssyni. Þau voru
svo skáldleg að ég sá að þarna var komið nýtt bókmenntaform,“ segir Snæ-
björn Arngrimsson, ábyrgðarmaður tímaritsins.
Hvúð hefurpóstkortið umfram önnur bókmenntaform?
„Það er svo knappt og svo er mynd hinum megin.“
Fólk má hafa alla sína hentisemi varðandi myndina á kortinu.
Það má bæði teikna hana sjálft og kaupa tilbúið kort. Tímarit
ið birtir svo 40 bestu kortin í haustheftinu. Framhlið korts-
ins verður á hægri síðu og þegar síðunni er flett blasa
póstkortaskrifm við.
Hverjir verða í dómnefnd?
„Einhverjir frægir menn,“ svarar Snæbjörn. „Helst
einhverjir útlendingar. Það er svo flott.“
Fyrstu verðlaun í samkeppninni er helgarferð
til Parisar og 15.000 kr. í farareyri.
Afhverju varð Parísfyrir valinu?
„I fyrstu var ætlunin að hafa það helgar
ferð til New York en við sáum að ekki tæk-
ist að bjarga inn peningum í þá ferð. Svo
er París náttúrlega afar skáldlegur stað-
ur. Okkur fannst líka afar móðurlegt að
senda fólk með 15.000 kr. í farareyri.0
Þeir sem ætla að leggjast í póst-
kortaskrif í sumar og taka þátt í
keppni Bjarts og frú Emilíu verða að
senda þau í pósthólf 447 fyrir 15. ág-
úst í sumar.
Verður verðlaunahafinn svo að
senda Bjarti ogfrú Emilíu póstkort úr
Parísarferðinni, Snœbjörn?
„Absalút." ©
ungu sem eru hvað frumlegastir.
Það eru þeir sem fá hugmyndirnar
og fara sína eigin leiðir í tísku-
heiminum.“
Þess vegna er það ekkert undar-
legt að vinsælustu búðirnar í stór-
borgum erlendis eru þær sem selja
föt eftir þessa ungu og fersku
hönnuði. Þannig verslanir eru í
þúsundatali og því þarf enginn að
óttast að fara á kaffihús og upp-
götva þar að annar hver maður er í
eins fötum. Óneitanlega
eru ákveðnir tísku-
straumar ráðandi en
hver hönnuður þróar
sinn persónulega stíl
og stelur hugmyndum
og breytir eftir eigin
höíði.
Að sögn Dýrleifar eru
þau í sambandi við
nokkuð marga
hönnuði og
hafa valið
fj: þann kost-
inn að taka
inn fá föt
frá
mörgum hönnnuðum í stað þess
að taka mörg föt frá fáum hönnuð-
um. Hver flík er aðeins seld í fáum
eintökum, í mesta lagi fjórum til
fimm eintökum, þannig að ólíklegt
er að rekast á einhvern sem er ná-
kvæmlega eins klæddur og maður
sjálfur.
Frikki og Dýrið var áður þekkt
fyrir lágt vöruverð en af óviðráðan-
legum orsökum hefur verðið
hækkað eftir breytingarnar. Frikki
og Dýrið verður þó seint talin dýr
verslun miðað við aðrar verslanir í
Reykjavík, sérstaklega ef haft er í
huga að allur fatnaður sem seldur
er í búðinni er gerður eftir pöntun-
um en ekki verksmiðjuframleidd-
ur.
Dýrleif stendur ekki ein í rekstr-
inum því Friðrik Weishappel á
og rekur Frikka og Dýrið og Kaffl-
barinn með henni. Dýrleif heldur
mikið til í versluninni en Frikki er
oftast á bak við barinn. Málið er
samt ekki svo einfalt að hún sjái
um rekstur verslunarinnar en hann
um rekstur Kaffibarsins heldur er
þetta samtvinnað og samstarfið
gengur vel. „Við Frikki treystum
hvort öðru það vel að allt ann-
að gengur mjög vel,“ segir
Dýrið. ©
er leikstjóri, Alfred Walter er hljómsveitarstjór-
inn og Sigurjón Jóhannsson hannar leikmynd-
ina.
L E I K H Ú S
Gleðigjafar á Stóra sviði Borgarleikhússins kl.
20:00. Guðrún Ásmunds er eiturfín í hlutverki
hjúkrunarkonunnar.
UPPÁKOMUR
Klúbbur Listahátíðar opnar á Sólon Islandus
með tilheyrandi skemmtunum.
F U N P I R
Peroxidasi úr Hydrogenebacter thermo-
philus og hugsanleg nýting hans erefni
fyrirlestrar Guömundar Óla Hreggviðssonar sem
hefst kl. 12:15 í stofu G6 að Grensásvegi 12.
í Þ R Ó T T I R
Fótbolti Síðasti leikur annarrar umferðar f
fyrstu deild á íslandsmótinu i knattspyrnu er
leikur Fram og (A en liðin mætast á Laugardal-
svelli og hefst viðureign þeirra klukkan 20.00.
F E R Ð I R
Ferðafélag Islands - Reykjanes - jarð-
fræðiskoðun Jaröfræðiskoöunarferð um
Reykjanesskagann í samvinnu við Hið íslenska
náttúrufræðifélag. Leiöbeinendur verða jarð-
fræðingarnir Sigmundur Einarsson og Magnús
Sigurgeirsson. Brottlör frá BSÍ, austanmegin,
og Mörkinni 6.
SJÓNVARP
RIKISSJONVARPID 18.15 Táknmálstréttir
18.25 Boltabullur Teiknimyndaflokkur um
körfubolta 18.55 Fréttaskeyti 19.00 Sovétríkin
Lokaþáttur um sögu Sovétríkjanna 20.00 Fréttir
20.35 Veður 20.40 Feðgar Gamanmynda-
flokkur um Frasier sem var einn fastagestanna í
Staupasteinilt .10 Gengið að kjörborði Um-
ræðuþáttur í beinni útsendingu med borgar-
stjóraefnunum Ingibjörgu ogÁrna. Úrslitin ráó-
ast í þessum þætti 22.35 Hinir vammlausu Al
Capone og co díla búsi og munda vélbyssur
sínar23.25 Perry Mason Bíómyndumþann
gamla fýr sem rúllar upp andstæðingum sínum I
réttarsalnum00.30 Dagskrárlok
STÖÐ 217.05 Nágrannar 17.30 Myrkfælnir
draugar 17.50 Listaspegill 18.15 NBA tilþrif
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn 19.19 19.19
20.15 Eiríkur 21.30 Vogun vinnurWorth
Winning Gamanmyndum kvennabósa 23.10
Ofursveitin Universal Soldier Steraveisla meó
Van damme og Dolph Lundgren. Bönnuð börn-
um 00.55 Svik á svik ofan Double Crossed
Dennis Hopper ieikur dópsmyglara sem gengur
í lið með iöggunni. Bönnuð börnum 02.40
Ólga og ástríður Hot Spot Nútíma film-noir
með Don Johnson en Dennis Hopper leikstýrir.
Iskaldur blús undir. Bönnuð börnum 04.45
Dagskrárlok
SÝNÍ Vesturbæ og Miðbæ með borgarstjóra.
Kynningarþáttur sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík. Sýnt kl. 22.00 og 22.40. Áróðurmaskínan
malar hátt.
Laugardagur
P O P P
Hljómsveitin Blackout spilar fyrir gesti á
Tveimur vinum. Það verður frítt inn og gestum
verður boðið upp á Two for one tilþoð af Viking
bjórtil miðnættis.
Á Gauki á Stöng stfgur fólk dans við dynjandi
tónlist frá hljómsveitinni Undir tunglinu og
verður ef að líkum lætur dansað uppi á borðum
og stólum.
Papar veröa attur á Café Amsterdam. Fær-
eyski blökkumaðurinn James Olsen er sjáll-
sagt þekktastur Papanna. Hann situr við trom-
musettið og syngur einnig sitthvað.
BAKGRUNNSTÓNLIST
Þeir sem ekki hafa enn heyrt í Gylfa Gunnars
og Bubba (ekki þessum eina sanna) ættu að
dríta sig á Kringlukrána þar sem þeir félagar sjá
umtónlistina. '
Hermann Ara fær frf í kvöld og hljómsveitin
Gleðigaukarnir sjá þess í stað um að engum
leiðist á Fógetanum.
Síðasta kvöldiö hans Paul Banks á Blúsbarn-
um. Stelpur, mætiö, hann erallmyndarlegur
samkvæmt Ijósmyndum sem EINTAK hefur
undir höndum. Ekki amalegt að fá eiginhandar-
áritanir á sitjandann, það er að segja að fá að
gefa þær sjálfar á hans.
L E I K H Ú S
Gleðigjafarnir kl. 20:00 á Stóra sviði Borgar-
leikhússins. Guðmundur Ólafsson, Bessi og
Árni sýna meistaratakta.
Galdrakarlinn í Oz kl. 17:00 ÍTónabæ. Gunn-
ar Gunnsteinsson leikstýrði hópnum og þykir
hafa tekist vel upp.
Gauragangurá Stóra sviði Þjóðleikhússins kl.
20:00. Bókin var frábær og leikritið ekki síðra.
UPPÁKOMUR
Kosningavaka á Sólon islandus. Olafur
Stephensen leikur og svo verða tíöindi úr kosn-
ingunum kölluð upp! Þau sem kfkja út á lífið til
að losna við kosningalætin eru hér með vöruð
við.
Skaparastemmningin sem menn muna frá
blómatfmabili Tunglsins og Borgarinnar í
skemmtanalítinu verður endurvakin á Skapara-
kvöldi í Venus. Staðnum verður umturnað til
að fá rétta andrúmsloftið og á slaginum 00:30
helst tískusýning frá Skaparanum. Robbi spilar
rapp, hipp-hopp, funk og acid-jazz á neðri hæð-
inni en þeir Hólmar og Margeir sjá til þess að
House tónlistin ómi á efri hæðinni.
O P N A N I R
Sýning Siguröar Guðmgndssonar opnar á
kaffihúsinu Sólon íslandus við gankastræti.
Sýningin er hluti af Listahátíð f Reykjavík.
Sýning Helga Þorgils opnar i Listasafni ASÍ
með tilheyrandi pompi og prakt.
F U N P I R
Ráðstefna hefst í Norræna húsinu um náttúru-
lækningar. Christian Osike frá Svíþjóð hefur
umsjón með henni. Ætli Guðrún Bergmann
verði á svæðinu?
í Þ R Ó T T I R
Golf Það er f nógu að snúast hjá golfurum þvf i
dag fara fjögur opin mót fram. Á Hvaleyrarholt-
T ó n 1 i i s t C a u k s ins næstu v i k u
FIMMTUDAGUR 26. maí FÖSTUDAGUR 27. MAÍ LAUGARDAGUR 28. maí SUNNUDAGUR 29. maí MÁNUDAGUR 30. maí ÞRIDJUDAGUR 31. maí MIÐVIKUDAGUR 1. júní
N 1 + N 1 + UNDIR SSSÓL PLÁHNETAN PLÁHNETAN VINIR VORS
TUNGLINU OG BLÓMA
FIMMTUDAGUR 26. MAÍ1994
27