Vikublaðið


Vikublaðið - 04.02.1993, Blaðsíða 4

Vikublaðið - 04.02.1993, Blaðsíða 4
4 VIKUBLAÐIÐ 4. febrúar 1993 „Á árinu 1995 hafi allir skólar í landinu komið á innra eftirliti (gœðastjórnun) sem nœr til helstu þátta skólastarfsins,“ segir í áfanga- skýrslu nefndar um mótun menntastefnu. Svo mikil var eftirspurnin eftir áfangaskýrslu stóru menntanefndar Ólafs G. Einarssonar menntamála- ráðherra að í lok síðustu viku varð ráðuneytið uppiskroppa með eintök og menn urðu að skrá sig á lista til að fá skýrsluna. Hafi áhugi á skýrslunni komið ráðuneytinu á óvart er það kannski vegna þess að nefndin var hálfgert leyndó og virtist ekki ætlast til að umræða yrði mikil um störf hennar. í mótun menntastefnu Páll Vilhjálmsson Ráðherra skipaði nefndina án tilnefningar sem þýðir að hvorki stéttarfélög kennara né almannasamtök á borð við verkalýðshreyfinguna fengu sína fulltrúa í þessa 18 manna nefnd. Kennarasambandið sendi fleiri en eitt bréf til ráð- herra síðast liðinn vetur þar sem farið var fram á að kenn- arasamtökin fengju sína full- trúa í nefndina en ráðherra hafði óskirnar að engu. Beiðni um að samtökin fengju að fylgjast með störfum nefndar- innar og umræðu innan henn- ar var sömuleiðis hafnað. Ráðherra hugsaði sér að nefndin ynni sínar tillögur og síðan yrði leitað til hags- munaaðila og þeim gefinn kostur á að segja álit sitt. Þetta kallar ráðherra að „hafa sam- ráð“, en kennarar skynja málatilbúnaðinn þannig að ætlunin sé að stilla þeim upp við vegg. Það varð ekki til að draga úr tortryggni kennara að Kennarasambandið fékk aðeins fjórar vikur til að mynda sér álit á áfangaskýrsl- unni, en ráðherra vill fá um- sögn Kennarasambandsins inn á borð til sín fyrir 25ta febrúar. Kennarar hafa bent á fleiri atriði sem hníga í þá átt að sjónarmið samtaka þeirra eigi ekki upp á pallborðið hjá nefnd um mótun mennta- stefnu. í ítarlegri heimilda- skrá sem fylgir áfangaskýrslu nefndarinnar er ekki að finna rit Kennarasambandsins, Mennt er máttur, en þar er skólastefna sambandsins sett fram og útskýrð. Fjórða út- gáfa ritsins leit dagsins ljós á liðnu ári en grunnurinn að innihaldinu var lagður árin 1984-1987 og komu fjölmarg- ir kennarar að þeirri vinnu. Skilaboðin til kennara og samtaka þeirra er að framlag þessara aðila verðskuldi ekki athygli nefndarinnar. Upplýsingar Vegna þess hvemig staðið var að skipun nefndarinnar um mótun menntastefnu eiga kennarar erfitt með að taka sumar tillögur nefndarinnar alvarlega. Þetta gildir til dæmis um tillögur er lúta að upplýsingamiðlun. Nefndin leggur til að „upplýsingamiðl- un til almennings um skóla- starf, framkvæmd þess og ár- angur, verði aukin“ og enn- fremur að „skilgreind verði upplýsingaskylda stjóm- valda“. Þetta kemur ekki al- veg heim og saman við starfs- háttu nefndarinnar sem ber tillögumar fram. I greinargerð segir að upplýsingamiðlun sé forsenda fyrir því að foreldrar og aðrir geti lagt mat á skóla- starfið. En það er líka sagt (og skáletrað) að það sé „álitamál hvaða upplýsingar og hversu miklar samfélagið þarf á að halda um skólastarfið". Ekki kemur fram að nefnd- in hafi séð mótsögn felast í því að mæla með aukinni upplýsingamiðlun, en halda starfi sjálfrar nefndarinnar sem mest til hlés og hafna óskum um upplýsingar. Nefnd um mótun mennta- stefnu er ætlað að gera tillög- ur um breytingar á lögum og nýmælum til laga um gmnn- og framhaldsskóla og það get- ur varla verið álitamál að sam- félagið hefur þörf fyrir upp- lýsingum um þær umræður sem eru undanfari lagafmm- varpa. Starfshættir nefndar- innar ganga reyndar þvert á þá ábyrgðarskyldu sem nefndin boðar skólamönnum og skil- Breytingar verður að gera í sátt segir Svanhildur Kaaber formaður Kennarasambands íslands - Það skapar tortryggni þegar menntamálaráðherra neitar okkur um að tilnefna fulltrúa í nefnd um mótun mennta- stefnu í grunn- og framhaldsskólum, segir Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasamhandsins. - Ég veit ekki hvers vegna hagsmunaaðilum var ekki leyft að tilnefna fulltrúa í nefndina. Svörin sem við fengum voru þau að það yrði haft samráð við okkur á síð- ari stigum málsins. Það á eft- ir að koma í ljós hversu mik- ið tillit verður tekið til okkar sjónarmiða, en það er aug- ljóst að veigamiklar breyt- ingar verða ekki gerðar á skólastarfinu nema í samráði við samtök kennara. Annars þarf skólastarfið ekki á gagngerum breyting- um að halda núna og ekki heldur er þörf á nýjum áætl- unum. Það er hinsvegar kom- inn tími til að framkvæma þá hluti sem búið er að sam- þykkja. Ég nefni það sérstak- lega að Alþingi samþykkti samhljóða í mars 1991, með grunnskólalögum, að auka vikulegan kennslutíma á hvern nemanda næstu þrjú árin á eftir. Núverandi menntamálaráðherra hefur frestað gildistöku þessa ákvæðis í tvígang. Nefndin um mótun menntastefnu tal- ar núna eins og þetta sé áætl- un fyrir framtíðina en ekki eitt af brýnustu forgangs- verkefnum skólastarfsins. Þetta er afturför að okkar mati. Svanhildur segist líta svo á að skólarnir séu hluti af vel- ferðarkerfinu og öll umræða um hlutverk þess sé af hinu góða. Það hafi einkennt þessa umræðu að þjóðarsátt sé um skólakerfið. - Og ég sé ekki betur en að niðurstaða nefndarinnar staðfesti þá al- mennu sátt sem er í þjóðfé- laginu um skólalöggjöfina, segir Svanhildur. En hitt skiptir ekki síður máli, að áliti Svanhildar, að samfella fáist í skólastarfið. - Það verður að vera framtíðarstefnumörkun, sem breytist ekki þó að nýr ráð- herra komi í menntamála- ráðuneytið. I áfangaskýrsl- unni finnst mér eins og verið sé að endurtaka margt af því sem áður hefur komið fram, til dæmis í framkvæmda- áætlun menntamálaráðuneyt- isins frá árinu 1991, Til nýrr- ar aldar. Það sem skiptir máli núna er að tryggja fjármagn til að framkvæma það sem þegar hefur verið samþykkt, segir Svanhildur Kaaber.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.