Vikublaðið - 04.02.1993, Side 15
VIKUBLAÐIÐ 4. febrúar 1993
15
RITHÖND VIKUNNAR
Lætur lítið uppi
Þú ert samkvæmt skriftinni stórhuga. Þú gerir þér ekki að
góðu lítilræði, nema því aðeins að það sé áfangi að stærra
markmiði. Þú vinnur hægt en markvisst, hefur ágæta sjálfsstjórn
og beygir þínar miklu skapsveiflur og virkjar þær jákvætt.
Hversdagslega ertu þægilegur en lætur ekki nema lítinn hluta
hugsana þinna
uppi. Þú munt
vera fróðleiks-
maður og þú telur
þekkingu nauð-
synlega, bæði
hverjum manni og
hvert sem verk-
efnið er.
Þú ert fjöl-
skyldumanngerð
og þér finnst sjálf-
sagt að bera
ábyrgð, a.m.k. til
móts við aðra. Þú
ert sennilega
vanafastur og
Benedikt Davíðsson, forseti ASl.
breytingum tekur þú jafnan með varúð, a.m.k. heinta fyrir og í
föstuin vinahóp. A suma verkar þetta þannig að þú skiljir þá
ekki. Verður þá e.t.v. óþarfa misskilningur. Annars ertu jákvæð-
ur og vingjarnlegur og það er engin uppgerð. Þú vilt engum
manni illt.
Þú munt hafa áhuga á heimspekilegum og guðfræðilegum
efnum, einnig félagsmálum, en að þeim sýnist þér aðrar fræði-
greinar alltaf stefna - fara í hring. Þú virðist hafa merki hrings-
ins (heildarhyggjunnar) í skriftinni. Skipulagsgáfu hefurðu all-
góða. Iþróttir og útivist sýnast einnig höfða til þín, líklega ertu
eða hefur verið skáti eða þvíumlíkt. Þú vilt hafa þínar eigin að-
ferðir við hvað eina. Þær eru stundum ólíkar aðferðum annarra -
en venjulega reynast þínar aðferðir góðar, jafnvel betri. Þú vilt
styðja ungt fólk og hefur ánægju af að sjá því ganga vel. Þú ert
lifandi persónuleiki og alltaf tilbúinn að sýna samúð, bæði þeg-
ar gengur vel og illa. Þér er einnig annt um að verja vel tíman-
um, þannig að hann eyðist ekki í fánýta hluti. Þú hefur góð tök á
tímanum. Þess vegna gengur þér vel næstum hvað sem þú tekur
þér fyrir hendur.
Varast: Að útskýra ekki fyrir vandamönnum þínum afstöðu
þína, þannig að þeir séu vissir um að þú skiljir þá.
Góða framtíð.
SPURTí SKÓLA
Þessi glaðværu börn úr 5. LBP í Hlíðaskóla voru spurð hvort veita ætti nemendum máltíðir í skólum.
Allir voru því samþykkir eins og sjá má.
LYKILLINN AÐ GÓÐU HJÓNABANDI BB
Imínum huga er svarið stutt og einfalt. Lykillinn að góðu
hjónabandi er að bera virðingu hvort fyrir öðru, segir Dóra
Þórhallsdóttir, móttökustjóri hjá Ríkisútvarpinu.
Skiljanlegur
fótaskortur
en . . .
r
Isíðustu viku nefndi ég
nokkur dæmi um ruglanda
og ranga meðferð orðtaka. Þar
kom m.a. við sögu afbökunin
að taka undir sama strenginn.
Þarna er slegið saman orðtök-
unum að taka í sama streng-
inn sem merkir að ,samsinna
einhverju eða styðja sama
málstað’ og að taka undir eitt-
hvað eða taka undir með ein-
hverjum og merkir eiginlega
það sama og að ,vera sammála
einhverjum eða einhverju’.
Orðtakið að taka í
sama strenginn er
þekkt frá 18. öld og
er erlent að upp-
runa. Líkingin er
dregin af dráttar-
dýrum sem toga í
sömu vagnól.
Merking orðtak-
anna er eiginlega
sú sama svo kann-
ski er skiljanlegt að
MÁLHORNIÐ
mönnum verði fótaskortur á
tungunni og byrji á öðru orð-
takinu og endi setninguna
með hinu. Það finnst mér hins
vegar ekki eftirbreytniverð
málnotkun, hvorki í gamni né
alvöru. Ef við viljum ástunda
fjölbreytni í málfari þá vinn-
um við tungumálinu ekki
gagn eða virðingu
með því að fara
rangt ineð gamal-
gróin orðtök. Hugs-
um um það og ver-
unt börnunum góð
fyrirmynd í mál-
farsefnum.
Sigurður
Jónsson-
frá Arn-
arvatni
w
A flækingi
Jafnréttisráð hyggur á
breytingar á útgáfu
fréttabréfs síns, Vogarinnar,
sem mælast misjafnlega fyrir.
A undanfömum árum hefur
Vögin komið út 4 sinnum á ári
og er dreift ókeypis til á fjórða
þúsund áskrifenda, en þar á
meðal eru starfsmannafélög
og stórir vinnustaðir, tann-
læknastofur og aðrir staðir þar
sem líklegt er að margir sjái
blaðið. Auk þess hafa ein-
staklingar getað gerst áskrif-
endur sér að kostnaðarlausu.
Nú er hinsvegar verið að
semja við Kvenréttindafélag
Islands um að Vogin verði
framvegis 8 síðna kálfur inni í
blaði þess, 19. júní. Helsta
röksemd þeirra sem styðja
þessa breytingu er að kven-
réttindafélagið sé þverpóli-
tískt og því ekki hægt að segja
að Jafnréttisráð sé að spyrða
sig saman við einhvern einn
væng hins pólitíska litrófs. Sá
hængur er þó á að 19. júní fer
einungis til áskrifenda sem
borga blaðið og því er sú
staða nú komin upp að burð-
arás í upplýsingamiðlun opin-
berrar stofnunar verður í
höndum frjálsra félagasam-
taka og vilji almennir skatt-
borgarar fá þessar upplýsing-
ar frá Jafnréttisráði þurfa þeir
væntanlega fyrst að borga
áskrift að 19. júní. Tilgangur
breytinganna er ekki síst að
spara útgáfukostnað og tíma
starfsmanna sem hefur farið í
Vogina. Hinsvegar hefur eng-
in fagleg úttekt farið fram á
því hvaða aðrar leiðir kynnu
að vera færar til að mæta þörf
Jafnréttisráðs í upplýsinga-
ntiðlun eða hvað sparast við
þessa sérkennilegu ráðstöfun.
Fundaherferð
í vaskinn
Ifrægu eintaki Alþýðu-
blaðsins - þar sem því var
slegið upp á forsíðu í tilefni
skoðanakönnunar DV á fylgi
stjórnmálaflokkanna að litli
flokkurinn mað langa nafnið
væri í stórsókn - birtist heil-
síðuauglýsing um væntanlega
fundaherferð ilokksins. Mein-
ingin var að halda sextán
fundi „með ráðherrum llokks-
ins“, en athygli vekur að Sig-
hvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra ætlar að halda
sig víðsfjani. Líklega hefur
hann rennt í grun fyrirfram
hvað fundirnir myndu helst
snúast um, eins og hefur kom-
ið á daginn á þeim tveim
fundum sem þegar hafa verið
haldnir.
Sá fyrri var á Akranesi 25.
janúar og voru framsögumenn
þeir Eiður og Össur. Fundur-
inn var rækilega auglýstur í
útvarpi en aðeins þrír mættu.
Næsti fundur, sem var í Ólafs-
vík 26. janúar með sömu
framsögumönnum, var eitt-
hvað fjölmennari, enEiður og
Össur voru teknir illilega í
karphúsið fyrir skattahækkan-
ir og álögur á hina efnaminni,
auk þess sem Sighvatur heil-
brigði l'ékk ískaldar kveðjur.
Hefur Alþýðublaðið ekki enn
treyst sér til að segja frá „stór-
sókn“ flokksins á þessum
vettvangi.