Vikublaðið - 04.02.1993, Qupperneq 11
VIKUBLAÐIÐ 4. febrúar 1993
MENNINGIN
11
• •
umsogn
Byltingin
hið innra
Gloria Steinem. A Book of Self-
Esteem. Revolution from with-
in. Corgi Books 1993, 446 bls.
r
Infu ár í röð hefur Gloria Steinem
verið á lista árbókarinnar World
Almanac yfir 25 áhrifamestu konur í
Bandaríkjunum. Hún var einn stofn-
enda bandaríska kvennablaðsins Ms,
sem hún ritstýrði í 17 ár, og er ein
þekktasta þarlenda baráttukonan á
sviði kvenfrelsis og mannréttinda-
mála. Áður hefur hún sent frá sér
bók um Marilyn Monroe og met-
sölubókina Outrageous Acts and
Everyday Rebellions.
Þessi nýja bók hennar, sem fjallar
um leit kvenna að sjálfsvirðingu,
kom fyrst út innbundin í fyrra og
hefur þegar sett sölumet. Hún er nú
fáanleg sem pappírskilja hjá Ey-
mundsson.
Bókin er til-
einkuð hverjum
þeim sem virðir
barnið í sjálfum
sér, eins og segir
á saurblaði bók-
arinnar. Hún er
einnig ætluð öll-
um þeim konum,
körlum, bömum
og jafnvel þjóð-
um sem vegna
skorts á sjálfs-
virðingu hafa
Með þessum orðum slær Gloria
grunntón bókarinnar sem er nokkurs
konar kynblendingur með litninga
frá minnst þremur bókmenntateg-
undum; kvenfrelsisritum, austrænum
heimspekiritum fyrir Vesturlandabúa
og loks sjálfshjálparbókmenntum
sem hafa lagt undir sig marga hill-
umetra í bókabúðum hin síðari ár.
Tónninn sem Gloria Steinem slær
er þó hvorki falskur né hjáróma,
enda vitnar sóknin í allskyns sjálf-
styrkingarnámskeið um djúpstæða
andlega þörf kvenna um allan hinn
vestræna heim fyrir að leita að sínu
eigin sjálfi eftir að hafa plokkað utan
af persónuleikanum aldagömul við-
horf sín og annarra til þess hvernig
konur þær eru eða ættu að vera. Bók
Gloriu er árangur hennar eigin leitar,
auk þess sem hún segir frá ferð ann-
arra kvenna í átt að nýrri sjálfsmynd.
Sú leið sem Gloria hvetur lesend-
ur sína til að fara er hvort tveggja í
senn könnunarleiðangur um æva-
forna austræna heimspeki og per-
sónuleg ferð hvers einstaklings
(konu) inn á við til þess barns sem
hann einu sinni var. Þetta er hringur
sem lokast þar sem hann byrjaði, eða
eins og segir í því búddíska orðtaki
sem hún byrjar bók sína á; þú hefur
náð hingað til að uppgötva það sem
þegar býr í þér.
Gloria Steinem hafnar þeirri við-
teknu túlkun að austræn heimspeki,
kristin trú þar á meðal, feli í sér
óvirka afstöðu til lífsins. Þvert á móti
segir hún að því eldri sem kennisetn-
ingarnar séu, því meiri áherslu leggi
þær á að sjálfsþekking og sjálfsvirð-
ing sé hin sanna uppspretta styrks og
þar með hæfni til að rísa upp gegn
aðstæðum sínum. í þessum fornu
kennisetningum felist einnig sú lífs-
sýn að einstaklingurinn sé hluti af
heild, að alheimurinn búi í honum
sjálfum. Þessi „hringlaga" lífssýn er
andstæð hverskyns valdapíramídum
sem síðari tíma feðraveldi, kynþátta-
kúgun og stéttaþjóðfélag innleiddu,
en forsenda þess að hægt var að
beygja fólk til hlýðni við valdhafa
var að rýra trú þess á eigin visku og
breyta Guðshugmyndinni.
- Guð tók æ meir á sig mynd
hinnar ríkjandi stéttar, hefur Gloria
sagt.
Hinn þátturinn í leit kvenna að
nýrri sjálfsmynd er leiðin inn á við
eins og áður sagði, leiðin til fortíðar
og þess bams sem allir eitt sinn vom.
Þegar það er fundið lokast hringur-
inn, verður heill. Og hið sama gildir
um þjóðir sem um einstaklinga; ef
heilu þjóðirnar alneita sögu sinni er
voðinn vís. Gloria finnur samsvömn
milli þessarar sameiginlegu afneit-
unar þjóða og háttemis þeirra við
barnauppeldi. í Rússlandi er til
dæmis til orðatiltæki sem hljóðar
svo: „Vilja barna skal brjóta sem
fyrst.“
Bók Gloriu er fyrst og fremst
kvenfrelsisbók, en kvenfrelsi sam-
kvæmt skilningi Gloriu er óaðskilj-
anlegt frelsun hvers einstaklings
óháð kyni. Stúlkur eiga mest á hættu
að verða andlegar vanmetakindur
vegna þeirra fjandsamlegu viðhorfa
til líkama síns, getu, eðlis og mögu-
leika sem þær verða að tileinka sér
frá unga aldri, eigi þær að verða að
„konum“.
hj.
I s' J J
V ‘A' S‘l . i '
íaA'>jí
Hfllx
Wé
5&V£/c
Osyy
m.
febrúar
Frestur til að skila
skattframtali
rennur út 10. febrúar
Síðasti skiladagur skattframtals
vegna tekna og eigna á árinu 1992
nálgast nú óðum. ítarlegur leiðbein-
ingabæklingur hefur verið sendur til
framteljenda sem kemur að góðum
notum við útfyllingu framtalsins.
Fylgiblöð með skattframtali liggja
frammi hjá skattstjórum sem jafn-
framt veita frekari upplýsingar ef
óskað er.
Mikilvægt er að framteljendur varð-
veiti launaseðla áfram eftir að fram-
talinu hefur verið skilað. Ef þörf
krefur eiga launaseðlarnir að sanna
að staðgreiðsla hefur verið dregin
af launum.
Skattframtalinu á að skila til skatt-
stjóra í viðkomandi umdæmi.
Forðist álag vegna síðbúinna skila!
GSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
’/drJ.
l.lf
lamað þrek sitt.