Vikublaðið


Vikublaðið - 04.02.1993, Side 16

Vikublaðið - 04.02.1993, Side 16
4- VIKUBLAÐIÐ S. TÖLURLAÐ • 2. ÁRGANGUR 4. FEBRUAR 1993 Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi 30. janúar 1993 STJÓRNMÁLAÁLYKTUN Ríkisstjórn úreltrar Meðal brýnustu verkefna í íslenskum þjóömálum er bar- áttan gegn vaxandi atvinnuleysi og fyrir réttlæti í dreifingu skatta og opinberra gjalda. Ríkisstjóm Sjáffstæðisflokksins og Alþýðuflokksins er að framkvæma úreftar kenningar um hagstjóm og efnahagslíf sem draga kjark og kraft úr þjóðinni og auka mlsréttið á fjölrnörgum sviðum. Á sama tíma og hina hörðu frjáLshyggju er að daga uppi í Bandaríkjunum er forystusveit Sjálfetæðisflokksins og Alþýðuflokksins heltekin af slíkum gamaldags hugmyndum. Alþýðubandalagið er eini stjórnmálaflokkurinn sem á undanförnum mánuðum hefur sett fram ítarlegar tillögur um nýjar sóknarlínur í efnahags- málum og atvinnulífi Islend- inga. Þessar tillögur Alþýðu- bandalagsins hafa hlotið sterkan hljómgrunn meðal samtaka Iaunafólks og margir forystumenn í atvinnulífi hafa lýst yfir stuðningi við slíka stefnubreytingu. Það er því raunhæfur möguleiki að skapa breiða samstöðu um nýja sáttagjörð í efnahags- og atvinnumálum sem tekur mið af grundvallarþáttunum í til- lögugerð Alþýðubandalagsins. Kjaminn í tillögum Alþýðu- bandalagsins er þríþættur: Langtímauppbygging I fyrsta lagi komi ný leið samhæfingar og samvinnu í stað hinnar gömlu leiðar frjálshyggjunnar sem núver- andi ríkisstjóm hefur að leið- arljósi. Afleiðingar hinnar hörðu frjálshyggju eru af- skiptaleysi stjómvalda, áherslur á verðbréfamarkað í stað framleiðslu á vörum og þjónustu, skjótfenginn gróða í stað markvissrar uppbygging- ar, hnignun í samgöngum, kreppu í heilbrigðiskerfi og menntakerfi. Leið samhæf- ingar og samvinnu sem AI- þýðubandalagið boðar felur hins vegar í sér að stjómvöld samhæfi aðgerðir sínar við áherslur fyrirtækjanna og sóknarlínur atvinnulífsins séu ávöxtur samræðna og sam- starfs. Framleiðsla vöru og þjónustu, útflutningur og gjaldeyrissköpun njóti for- gangs í fjármögnun og skatta- lögurn. Langtímauppbygging og þróun fyrirtækjaneta, sam- eiginleg sókn á erlenda mark- aði, traustar samgöngur og öflugt heilbrigðiskerfi, menntun, rannsóknir og starfsþjálfun, séu sameiginleg verkefni stjórnvalda, atvinnu- lífs og samtaka launafólks. 1200 til 1800 ný störf í öðru lagi hefur Alþýðu- bandalagið sett fram ítarlega skrá yfir marga tugi nýrra hugmynda sem fela í sér að á næstu 8-12 mánuðum verði sköpuð 1200-1800 ný störf í íslensku atvinnulífi. Þau verði í ferðaþjónustu, skipasmíða- iðnaði, viðhalds- og bygging- arframkvæmdum, við úrbætur í samgöngumálum og á ferða- mannastöðum, við land- græðslu og aðrar umhverfis- umbætur, við fullvinnsluverk- efni í fiskvinnslu og sjávarút- vegi, við framleiðsluiðnað og matvælaiðnað, við velferðar- þjónustu og á fjölmörgum öðrum sviðum. Margfeldis- áhrifin af þessum nýju störf- um myndu hafa í för nteð sér aukna sókn í atvinnulífinu sem gæti tvö- til þrefaldað þann fjölda starfa sem slík stefnubreyting hefði í för með sér í fyrstu umferð. Skattur á fjármagnstekjur I þriðja lagi fela tillögur Alþýðubandalagsins í sér að meginbyrðarnar af þessum víðtæku aðgerðum verði bomar af fjármagnseigendum og hátekjufólki sem nú leggja ýmist ekkert eða hverfandi lít- ið í hinn sameiginlega varnar- sjóð þjóðarinnar. Það er bæði efnahagslega skynsamlegt og siðferðilega réttlætanlegt að þeir þjóðfélagshópar sem best eru settir og minnst hafa lagt til samfélagsins beri megin- byrðamar í þeirri vamarbar- áttu sem nú að háð. Alþýðu- bandalagið leggur því til að fjármagnstekjuskattur og af- gerandi hátekjuþrep í tekju- skatti verði burðarásinn í breytingum á íslenska skatt- kerfinu. Núverandi stjómar- flokkar hafa hafnað slíkum tillögum. Tillögur Alþýðubandalags- ins fela í sér víðtæka stefnu- breytingu sem hefur í för með sér almenna sókn í atvinnulífi íslendinga og einnig sérstakar áherslur til að útrýma at- vinnuleysi á þeim svæðum þar sem það er mest. Aðalfundur Kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Reykja- neskjördæmi telur því að slík stefnubreyting þjóni hagsmun- um þjóðarinnar allrar og stuðli einnig að lausn á þeim sérstöku vandamálum sem um nokkurt skeið hafa verið áberandi í Reykjaneskjördæmi. Aðgerðaleysi í atvmnumálum Það er sláandi dæmi um af- skiptaleysisstefnu ríkisstjórn- arinnar að nú eru senn fjórir mánuðir síðan forsætisráð- herra og utanríkisráðherra Iof- uðu að hálfur milljarður yrði útvegaður sérstaklega til at- vinnumála á Suðumesjum. Niðurstaðan er hins vegar sú að í fjárlögum 1993 er ekki ein króna til þessa verkefnis. Vísað er á Islenska aðalverk- taka sem setja allskonar skil- yrði fyrir framlagi og ráðherr- arnir segja að svo verði Suð- umesjamenn sjálfir að koma með 200 milljónir. Ráðherrar Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins gátu á einni helgi ákveðið milljarða álögur á hina breiðu, ungu millistétt sem er að koma sér upp húsnæði og ala upp börn og leggja einnig margvíslegar álögur á sjúkl- inga og aldraða. Þá var hægt að taka hinar stóm ákvarðanir á fáeinum sólarhringum. En þegar kemur að raunhæfum aðgerðum til að draga úr at- vinnuleysi á Suðurnesjum líða margir mánuðir án nokk- urrar niðurstöðu. Gerræðisákvarðanir og hroki I heilbrigðismálum rekur hver gerræðisákvörðunin aðra. Nauðsynleg lyf kosta sjúklinga nú þúsundir króna í hverjum mánuði og algengar aðgerðir em verðlagðar á tugi þúsunda. Venjulegt launafólk, hvað þá heldur þeir mörgu sem eingöngu lifa á atvinnu- leysisbótum, hafa ekki lengur efni á að kaupa nauðsynleg lyf eða fara í minniháttar læknisaðgerðir. Sams konar gerræðisandi einkennir viðhorf stjórnvalda til sameiningar sveitarfélaga. Því er nauðsynlegt að ítreka rétt íbúa sveitarfélaganna til - að fá sjálfir að dæma um sam- eininguna í almennri at- kvæðagreiðslu í hverju sveit- arfélagi. Sameiningin á ekki að koma sem þvingunarað- gerð að ofan. Það er sama hvert litið er. Stefna og stíll ríkisstjómar- innar bera svipmót gerræðis, hroka og harðrar og úreltrar frjálshyggju. íslenskt þjóðfélag þolir ekki sljka landsstjórn til lengdar. í vaxandi mæli er það krafa fólksins í landinu að rík- isstjórnin segi af sér og ný rík- isstjóm með nýja, raunhæfa og nútímalega stefnu í at- vinnumálum taki við völdum. Alþýðubandalagið er reiðu- búið að hafa forystu um mynd- un slíkrar ríkisstjómar. AUGLYSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1984 -1.fl. 01.02.93-01.08.93 kr. 59.940,16 *)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, janúar 1993. SEÐLABANKI ÍSLANDS Styrkur til háskólanáms í Noregi Norsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslenskum stúdent eða kandídat til háskólanáms í Noregi námsárið 1993-94. Styrktímabilið er níu mánuðir frá haustmisseri 1993. Til greina kemur að skipta styrknum ef henta þykir. Styrkurinn nemur um 5.500 n.kr. á mánuði. Umsækjendur skulu vera yngri en 35 ára og hafa stundað háskólanám í a.m.k. 2 ár. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást t mennta- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknum, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skal skilað í ráðuneytið fyrir 26. febrúar nk. Menntamálaráðuneytið, 28. janúar 1993. i

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.