Vikublaðið


Vikublaðið - 18.03.1993, Qupperneq 4

Vikublaðið - 18.03.1993, Qupperneq 4
4 VIKUBLAÐIÐ 18. mars 1993 Tilveran og ég - Ég var nú aldeilis á fínni ráðstefnu hér um daginn, sagði einn fastagesturinn í laugunum við mig. - Nú, var það eitthvað um fjárfestingu og skattsvik? spurði ég. - Nei, nei ekkert svoleiðis hallærisvesen, maður. Held- urðu að maður sé einhver við- skiptafræðingur eða hvað, fast- ur á analstiginu? - Ég spurði bara. - Nei, þessi ráðstefna var um mál málanna, maður minn. Atvinnuleysið! Hvert stefnir at- vinnuleysisdraugurinn? hét þetta. Alls konar pótentátar sem töluðu. Það voru nú samt ekki nema tveir sem sögðu eitt- hvað af viti. - Já, þessir sem Vikublaðið sagði frá? - Stefán og Halldór? Pró- blemfræðingamir? Ekki aldeil- is, maður minn. Nei, nei, það voru þeir Pétur og Hannes. Þar voru sko lausnirnar. Pétur benti nú til dæmis á að allavega þriðj- ungur af þessu liði sem er á bót- um væri annaðhvort svindlarar eða aumingjar. Hann ætti nú að þekkja þetta, forseti Alþýðu- sambands Vestfjarða og krata- höfðingi til margra ára. Það er bara að hreinsa þetta lið af skránni og þá er nú afrekaskrá ríkisstjórnarinnar ekki svo slæm. Kannski gæti einhver siðvæðingarkratinn fengið vinnu við þetta. Heldurðu að hefði nú verið nær að fá hann sem forseta ASÍ? - Ja, það hefði trúlega ekki verið Jóni Baldvini á móti skapi. Ekki hefði það slegið á gleðina á Ömmu Lú. - Þegi þú nú bara, slordóni! Þá var þetta nú ekki laklegra hjá honum Hannesi mínum bless- uðum. Alltaf getur maður nú treyst á hann með einfaldar og alþýðlegar lausnir. Verðið á vinnuaflinu er of hátt, sagði hann. Lækka bara launin þang- að til atvinnurekendur treysta sér til að ráða. Þá er atvinnu- leysið auðvitað búið. Heldurðu að það væri nú munur, maður lifandi. Ráða sér fólk á 20- 25.000 á mánuði. En þetta vilj- ið þið kommarnir ekki. Frekar á allt að fara í hund og kött. En hann Hannes minn var nú Iíka með lausnina á því vandamáli. Stoppa bara þessi verkalýðsfé- lög. Banna ban helst D ^ __ ____ •* v V/j. •• ll sko ekki lengur atvinnuleysi á íslandi. - En ég hélt að hans kenn- ing væri að verkalýðsfélögin væru gagnslaus fyrir verkafólk. - Já, auðvitað eru þau það. Allt sem hindrar eðlilegan framgang markaðarins er til ógagns fyrir alla. Það er ekki fyrr en allt er til sölu sem við erum orðin frjáls til að njóta. Þess vegna eru verkalýðsfélög- in helsi á fólk eins og einhver sagði í ljósrauð eyru Hannesar einhvem tíma. Ekki man ég nú hver hann sagði að það hefði verið, kannski Guð eða jafnvel Hayek. - Þeir hafa þá náð ágætlega saman, Pétur og Hannes. - Já, það held ég bara. Þeir voru að minnsta kosti alveg búnir að fá sig fullsadda af þessu Ögmundarrugli að eitt- hvað sé að sækja til svokallaðra „fjármagnseigenda". Nei, nei skera „bæturnar" og þrengja „réttindin", það var lausnin enda mennirnir báðir stuðn- ingsmenn ríkisstjórnarinnar. ÚTVARP OG SJÓNVARP r Eg er fjölmiðlafíkill og „bes- serwisser“ að eðlisfari og því höfðar það til mín að skrifa fjölmiðlapistil þessarar viku. Ég hlusta fyrst og fremst á Rás tvö og horfi nær einvörðungu á útsendingar Ríkissjónvarpsins. Ég á ekki afruglara enda glápi ég nóg á þessa einu stöð. Stöð tvö ber þó að meta að verðleikum. Fréttaþátturinn 19/19 er það eina sem ég sé á þeirri sjónvarpsrás og mér sýnist að Stöðvarmenn hafi yfirburði yfir fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Það er stundum eins og hin dauða hönd leiðans leggist þungt á fréttatíma hinna síðarnefndu. Ég hef lengi átl mér þann draum að koma á fót frjálsu út- varpi, lýðræðislegu og virku. En reynslan segir mér að slik út- varpsstöð lognist annað hvort út af eins og Rótin sáluga eða láti nægja að miðla okkur kjaftasög- um um náungann og viðlíka létt- meti milli popplaga. Dægurmála- útvarp Rásar tvö komst þó einna næst þessum markmiðum undir stjórn Stefáns Jóns Hafstein þótt Að neyta en ekki njóta ríkisútvarp væri. Þær manna- breytingar sem orðið hafa þar á bæ síðan hann hvarf úr embætti hafa leitt til þess að dofnað hefur yfir Rásinni. Að vísu standa þeir Leifur og Sigurður G. alltaf fyrir sínu en þar blása nú hægari vind- ar en áður. Það er fátt annað en Dægur- málaútvarpið sem freistar mín í hljóðvarpsdagskrám helgarinnar framundan. Helst væru það þó þættir á Rás eitt, Úr Jónsbók og Sjónarhóll. Sjónvarpsdagskrá helgarinnar í Ríkissjónvarpinu einkennist einna helst af úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í hand- knattleik. Sjálfur var ég hálfpart- inn alinn upp í gamla Háloga- landsbragganum, vöggu íslensks handknattleiks, svo vafalaust verð ég límdur við skjáinn mest- allan laugardaginn. Reyndar vekur fátt annað sér- staklega athygli mína í sjón- varpsdagskrá helgarinnar. Ég hef þó alltaf gaman af Gettu betur sem Stebbi Hafstein stjórnar af röggsemi á föstudagskvöldið. Fátt höfðar til mín laugardags- kvöldið, hvorki kroppasýningar- þátturinn Strandverðir né hinn blóðlausi þáttur um Indiana Jon- es. Blóðsugumyndina Skugga- sveina, sem sýnd verður seinna um kvöldið, sá ég fyrir allnokkru. Hún þykir ekki hæfa áhorfendum yngri en 16 ára en höfðar þó aðal- íega til þeirra. A sunnudaginn eru það eink- um tveir þættir sem vekja athygli mína, íslenskar kvikmyndir og Norræna kvikmyndahátíðin. Þá vek ég athygli á nokkuð merki- legum sögulegum sjónvarps- þætti, Stórviðburðum aldarinnar. Að lokum þetta: Við njótum ekki menningar og lista í hefð- bundinni merkingu þeirra orða með því að horfa á sjónvarp og hlusta á útvarp. Það sem fram fer er neysla. Sú neysla er ágæt flóttaleið og stundum hvfld. Spumingin er hins vegar sú hvort hægt sé að snúa dæminu við. Ég hef einnig þá tilfinningu, einkurn þegar ég horfi á utnræðu- þætti í sjónvarpinu, að þar ríki ekki raunverulegt skoðanafrelsi. Flestir viðtalsþættir koðna niður vegna þess að engu er líkara en að stjómendur leitist við að bera' vatn á eld mismunandi skoðana. Það er næstum aldrei rifist í ís- lensku sjónvarpi. Skyldi svo vera annars staðar í þjóðfélaginu? Vonandi ekki. Við þurfum átök til að komast af. Skafti Þ. Halldórsson STARFIÐ r Akvað átta ára að verða bifvélavirki Okkur lék forvitni á að vita hvemig það væri að vera bifvélavirki og skmppum því á verkstæði Bifreiða og Landbúnaðarvéla við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Við hittum fyrir Atla Vilhjálmsson verk- stæðisformann og spurðum hvenær hann hefði fengið áhuga á bflum og vélum. - Ég ólst upp úti á landi og við vomm tveir félagamir sem ákváðum það átta ára gamlir að verða bifvélavirkjar og setja upp verkstæði á Borðeyri. Félagi minn átti að verða verkstjóri og ég að vinna hjá hon- um. Þetta gekk eftir, hann er enn á Borðeyri og ég hér hjá Bifreiðum og Landbúnaðarvélum. Ég kom hingað suður sextán ára gamall og fékk strax vinnu hjá þessu fyrirtæki, kláraði svo fjögurra ára nám við Iðnskólann og hef unnið hér síðan - í fjórtán ár. - Hvemig vaknaði þessi áhugi á vélum? - Það var nóg af vélum í sveitinni og ég gerði mér það til dundurs að setja saman og lagfæra gamla Farmal Cub dráttarvél. Það tókst og ætli áhuginn hafi ekki komið þá. - Hvemig er að eiga við þessa bfla sem þið þjónustið? - Ladan er góð, einföld og góð smíði og gott að komast að hlutun- um. Hún er að vísu mjög frábmgðin Hyunday-bflunum sem em allir rafknúnir, en tæknin er orðin það mikil að maður setur bara mæli á þann bfl og sá mælir segir manni hvað er í lagi og hvað ekki. - Hefur þá starf bifvélavirkjans breyst í gegnum árin? - Já, biddu fyrir þér, þetta er allt annað. Verkfærin sem við notum eru orðin mun fullkomnari, starfið er allt miklu hreinlegra en var hér áður fyrr, fjölbreyttara og skemmtilegra á allan hátt. Hreinlætið fer reyndar eftir því hvemig starfsmennimir vilja hafa í kringum sig. Hér gilda ákveðnar hreinlætisreglur, það er hvorki gott né gaman að vinna á subbulegum verkstæðum. Hér er góður mórall og gott starfsfólk og fyrirtækið hefur reynst okkur afarvel. - Hvemig er vinnutíminn og launin? - Vinnutíminn er frá 7.45 til hálfsex og launin em allgóð. - En hvert er hlutverk verkstæðisformanns? - Ja, ætli ég sé ekki einhverskonar stuðpúði á milli kúnna, fyrirtæk- isins og starfsmanna hér á verkstæðinu. Þetta er krefjandi og stundum mikið álag, en vinnustaðurinn er góður og hér líkar mér vel. (mynd/texti: ÓÞ) Skalla-Pétur skúrar ekki Guðmundur Ólafsson er einn þeirra sem verða í sviðsljósi Borg- arleikhússins um helgina. Guðmundur er löngu landsþekktur fyrir hlutverk sín í ýmsum leikritum í áranna rás. Hann er líka þekktur rithöfundur, einkum fyrir bækur sínar um Emil og Skunda, sem á að kvikmynda á komandi sumri undir nafninu „Skýjahöllin" og svo er hann með enn eina bókina um þá félaga í smíðum. Hún er væntanleg á jólamarkaðinn. Við gripum Guðmund þar sem hann var að skúra heima hjá sér. Hann sagðist hafa beðið eftir því lengi að geta tekið til hendinni við heimilisstörfin og það væri eitt af hans hlutverk- um að skúra gólf. Sá starfi er að vísu öðruvísi en að bregða sér í gervi Skalla-Péturs í Ronju ræn- ingjadóttur eða í hlutverk Cléan- te í Tartuffe, en bæði þessi hlut- verk eru í hans höndum á sviði Borgarleikhússins um helgina. Guðmundur hóf leikferinn í heimabyggð sinni Ólafsfirði og hefur leikið með Alþýðuleikhús- inu, Leikfélagi Akureyrar, í Þjóð- leikhúsinu og auðvitað hjá LR. Guðmundur segir erfitt að gera upp á milli hlutverka, en þau sem hann hefur leikið í vetur eru ofar- Iega í huga hans. Hann segist ekki taka með sér heim þær per- sónur sem hann leikur, skilur þær eftir á sviðinu þegar sviðsljósið slokknar. Hinsvegar þarf hann eins og aðrir leikarar að sökkva sér ofaní persónurnar þegar verið er að æfa hlutverkin. Guðmundur „deyr“ í hverri sýningu á Ronju. Blessaður gamli maðurinn sem hann leikur lognast útaf í sýningunni og oft segist Guðmundur heyra athugasemdir frá börnunum í salnum t.d. þegar leikaramir eru kallaðir fram í lok sýningar. Þá verða sum börnin hissa á því að hann skuli ekki vera með vængi eins og engill, var hann ekki dáinn? (mynd/texti: ÓÞ) f SVIDSLJÓSINU

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.