Vikublaðið


Vikublaðið - 18.03.1993, Qupperneq 5

Vikublaðið - 18.03.1993, Qupperneq 5
VIKUBLAÐIÐ 18. mars 1993 5 RITHÖND VIKUNNAR Þórunn Björnsdóttir kórstjóri, fulltrúi ABK í lista- og menningarráði. Eðlilegt að leiðbeina öðrum Samkvæmt skriftinni ertu örlynd og virk manngerð. Þú leynir ekki hugsunum þínum eða skoðunum, mundir líklega ekki geta það þótt þú reyndir. Sem sagt mjög hrein- skilin, sumir mundu segja um of. Þú ert sjálfstæð og óhrædd við að ganga á móti straumn- um. Að hinu leytinu ertu hrifnæm og hjartahlý, tilfinningar ríkar og næmar. Þess vegna verða sveiflur og átök í lífi þínu, skapgerð þín kallar á það. Skáldgáfu muntu annað hvort hafa sjálf eða eiga hana í ættum. Líklega finnst þér gaman að hafa margt í takinu, vinna á mörgum stöðum. Þér finnst gaman að vinna, leggur sál þína í verkið. Vinahópur þinn virðist mjög sundurleitur, þar er allskonar fólk. En þér virðist þykja jafnvænt um allar manngerðir nánast. Þú ert gestrisin og þér er eðlilegt að leiðbeina öðrum, ekki síst unglingum. Þú leggur áherslu á að vekja hjá þeiin inetnað. Þú hefur stjórnunarhæfileika og næðir góðum árangri á hvaða sviði sem þú tækir að þér. En kennsla og listræn störf ættu að líkindum best við þig. Einnig hvers konar stjórnunarstörf. Þér finnst lfka gaman að gefa, halda jól og afmæli í heiðri, gera þér og öðr- um dagamun. Þú ert lagin að ftnna útvegi í hverju máli, ráðagóð. Varast: að sökkva þér svo í annríki að þú notir ekki hæftleika þína vegna hversdagsanna. Gangi þér vel. önujUL^ SPURT í SKÓLA * 5. bekkur L í Digranesskóla var spurður hvort væri betra að búa í Kópavogi eða Kaupmannahöfn. Uppréttar hendur mæla með Kópavogi. Á KAFFIHÚSINU Rassþrekið er ómetanlegt Enn er hún á hausnum út- gerðin, alveg sama hvað gert er. Nú vantar finnn millj- arða. Hvar á að taka þá? Jú, með- al annars af launafólki og reynd- ar landsmönnum öllum, þó ekki með hátekjusköttum og ekki á að lækka vexti, eða hvað? Er nema von að spurt sé. Menn hafa rætt þelta á fundum fyrir og eftir mat og þá veltir maður því fyrir sér hversu feiknalegt rassþrek þessir rnenn hafa. Og hvað kemur út úr þessu öllu? Jú, ríkisstjórnin er að hugsa málið, skoða frá öllum hliðum, sjálfsagt má auka at- vinnuleysið, það gæti orðið þjóð- hagslega hagkvæmt. Öngvar kauphækkanir, helst að lækka það. Þetta getur rnaður lesið um í blöðunum á kaffihúsum og þegar maður er orðinn þreyttur á öllu staglinu les rnaður bara erlendu blöðin, þau fjalla sem betur fer ekki um ástandið hér heinia fyrir. (Mynd/texti: ÓÞ) RMsstjómarromsa Allir tala um afreksmenn sem fsa-landi stýrá, næga visku eiga enn, oft nteð hugsun skíra. Úti í Viðey áttu fund, ört var skrifuð blokkin. Annar þeirra átti hund en hinn drullusokkinn. Dabbi klingir glösum glatt, gefur Jonna að drekka, en hann er sá sem seldi hatt og sífellt platar rekka. Á útlandsferðum aldrei hlé enda bættur skaðinn. Langhala hann lét í té, loðnu fékk í staðinn. Situr Jón á sjóða-bing, sjaldan hreyfir tappann, en Álversdrauma umþenking er að sliga kappann. Sagan af því - sú er ljót sífellt strekkir plankann, en ætti að verða á því bót ef hann kemsl í bankann. Frikki Sóp við fjármálin fleslum sýnist loppinn, niðurskurðar nöldrarinn - nú þarf hann á koppinn. Þorsteinn minn með þorskinn sinn þarf nú fleiru að sinna. Fangamála faktorinn finnst mér líka vinna. Dóri vísur kveða kann, kúm og ánum fórnar, fjallagötum fjölgar hann og flóabátum stjórnar. Hanna litla um hlutverkin heldur langa tölu, lét svo hanna húsbréfm og hefur þau til sölu. Sighvatur með sjúkraskatt sýnist flestum stúrinn. Svona er honum sífellt att í sama lyfjakúrinn. Allvel dafnar Eiður minn, upp hann hreinsar klessur. svíkur ekki sendlinginn og sækir Ríó messur. Þá er bara eftir einn, um hann fáa varðar: skólamála skutulsveinn, skinnið Óli Garðar. Ef á liðið öðlast trú örugg Hólmsteins klíka, sínar greinar semja nú á salerninu líka. Verjum nafnalögin Islendingar bjuggu við óbreytt nafnalög frá árinu 1925. Þeim lögum var aldrei framfylgt og sennilega hafa fá lög verið jafn- oft brotin á Islandi. í fjórðu til- raun náðist loks ágætt samkomu- lag á Alþingi um ný nafnalög sem tóku gildi 1991. Nú heyrast háværar raddir um það að nafna- lögin verði að endurskoða og breyta. Ósjálfrátt hvarflar að manni í ljósi samninga um Evrópskt efna- hagssvæði, lagabreyt- inga og laga sem Al- þingi verður að sam- þykkja af því tilefni, auk kröfunnar um óskert frelsi til sem flestra hluta nú um stundir, að krafan um endurskoðun og breyt- ingar á nýju íslensku nafnalögunum sé málhornið krafa um breytingar breyting- anna vegna. Ekki sé hugsað um afleiðingarnar. Lögin segja að nafn megi ekki brjóta í bág við fslenskt málkerfi. Þetta ákvæði virðist fara fyrir brjóstið á frjáls- hyggjusinnum samtfmans og vilja þeir því breytingar á lögun- um og hafa frelsi til að velja barni hvaða nafn sem er. Mannanöfn eru hluti af orða- forða og málkerfi hverrar þjóðtungu. Ég vara eindregið við miklum breytingum á nýsettum nafnalögum. Beygingarkerfi tung- unnar á í vök að verjast og má síst við því að ýtt sé undir beygingar- leysi með breytingum á lögum um mannan- öfn. Sig. Jóns. ÆT A flækingi Bitlinga- kapalliim Það er flókið líf hjá krötunum þessa dagana. Og þeim er ekki vorkunn. Helmingurinn af fylginu er farinn. Og það sem eftir er skipt- ist í tvennt, helmingurinn á móti ríkisstjórninni. Það er 0,6 % fylgi við hvern ráðherra Alþýðu- flokksins um þessar mundir. Þess vegna er brostinn flótti í liðið og Jón Baldvin og Jóhanna leggja bitlingakapal á hverju kvöldi; kapal sem gengur aldrei upp. Fyrst leggst kapallinn svona: Jón Sigurðsson fer í Seðla- bankann. Eiður verður sendi- herra. Karl Steinar verður for- stjóri Tryggingastofnunar ríkis- ins. En hverjar verða afleiðingarnar? I staðinn fyrir Jón kemur Guð- mundur Árni inn í þingflokkinn. I staðinn fyrir Karl Steinar kemur annar varamaður krata á Reykja- nesi inn í þingflokkinn. I staðinn fyrir Eið kemur bæjarfulltrúi af Akranesi, Gísli. Hann er í óró- legu deildinni í Alþýðuflokkn- um. Þar með yrði þingflokkurinn orðinn til vandræða. Hægra liðið veikara - en órólega liðið of sterkt. Bæði að mati Jóns og Jó- hönnu. Jóhönnu líka, vegna þess að þá yrði hún ekki lengur vemd- ari félagshyggjunnar í Alþýðu- flokknum. Þessi kapall gengur ekki upp. Svo leggst kapallinn aftur eins, en hverjir eiga þá líka að verða ráðherrar? Össur vill, en enginn vill hann. Guðntundur Ámi vill, en enginn vill hann nema Gunnlaugur bróð- ir hans. Rannveig vill. Sighvatur vill flytja sig í annað ráðuneyti. Allir vilja flytja Sighvat í annað ráðuneyti. Helst erlendis. En enginn þorir að segja það upphátt sem allir vilja; Sighvat út svo hann geti tekið aftur við Norræna félaginu. Þessi kapall gengur heldur ekki upp svo Jón Baldvin leggur kapalinn í þriðja sinn: Sighvatur fer í annað ráðu- neyti, Jóns Sig. Guðmundur Árni kemur inn. Karl Steinar verður ráðherra og fer í félagsmálaráð- uneytið. Jóhanna fer í staðinn í heilbrigðisráðuneytið. Jóhanna skipar svo Sighvat forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins rétt fyrir næstu kosningar. Jón Bald- vin skipar Eið sendiherra ein- hvers staðar rétt fyrir næstu kosn- ingar. Þetta gengur upp: 1. Sighvatur býður sig aldrei fram aftur. 2. Karl Steinar verður ráð- herra. 3. Guðmundur Árni vinnur efsta sætið á Reykjanesi vegna næstu alþingiskosninga. 4. Jón Sigurðsson stjórnar Seðlabankanum. 5. Eiður Guðnason býður sig aldrei fram aftur. 6. Það er hægt að bjóða Össur fram á Vesturlandi í næstu kosn- ingum eða Suðurlandi. 7. Bjössi og presturinn tapa sínum þingsætum. Já. Þetta gengur upp ög þó: Hægri vængurinn er farinn af Jóni Baldvin. Hvorki fugl né flugvél fljúga án þess að hala vængi báðum megin. Hægri vængurinn er Jón. Eiður, Sig- hvatur. Þessi kapall gengur held- ur ekki upp. Þess vegna munu þau enn um sinn leggja kapal sern gengur aldrei upp - nenta nteð því að svindla. Við bíðurn eftir að sjá svindlið. Börkur

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.