Vikublaðið - 21.01.1994, Qupperneq 1
Jafnréttið á
Akureyri
Jíureyri er í fararbroddi sveit-
arfélaga hvað gerð jafnréttisá-
ætlana og starf jafnréttisfulltrúa
snertir. Vikublaðið ræðir við
lykilkonurnar þrjár á bls. 8-9
Roðinn í NATO
Aðild Mið- og Austur-Evrópu-
ríkja að NATO og utanríkisstefha
Islendinga er ofarlega á baugi. I
blaðinu í dag eru tvær greinar um
utanríkis- og örj'ggismál frá
ólíkum sjónarhóli. Bls. 4 og 10
Susan Faludi og
bakslagið
Höfundur einnar umdeildustu
kvennabókar síðustu ára ræddi
við blaðamann Vikublaðsins um
tilefni bókarinnar og stöðuna í
kvennabaráttunni. BIs. 6
3. tbl. 3. árg.
21. janúar 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Östjórn og upplausn í
sj ávarútvegsr áðuney tinu
Stór og smá mál stranda í sjávarútvegsráðuneytinu eða er
klúðrað þar. Mikilvægasta fagráðuneytið er rúið trausti. For-
sætisráðherra auðmýkir Porstein Pálsson með því að leita
ráða hjá fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.
Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra, útgerðar-
menn, íjármálaráðu-
neytið, samtök sjómanna, Har-
aldur Haraldsson í Andra og
fleiri eiga það sameiginlegt að
vantreysta Þorsteini Pálssyni
sjávarútvegsráðherra og ráðu-
neytinu sem hann stýrir. Þor-
steinn og ráðuneytið hafa
klúðrað hverju málinu á fætur
öðru. Stefnumörkun er í mol-
um og ákvarðanir ýmist teknar í
bráðræði eða alls ekki.
A fimmtudag í síðustu viku
sýndi Davíð Oddsson forsætisráð-
herra hvaða hug hann ber til Þor-
steins Pálssonar sjávarútvegsráð-
herra með því að boða Halldór
Asgrímsson fyrrverandi sjávarút-
Félags-
dómur á _
bandi VSÍ
vegsráðherra á sinn fund í stjórn-
arráðinu til að ræða við hann um
sjómannaverkfallið. Davíð sá til
þess að fjölmiðlum var gert aðvart
til að tryggja að alþjóð yrði vitni
að auðmýkingu Þorsteins Pálsson-
ar sem var á sama tíma að funda
útí Færeyjum.
Það féll ekki í góðan jarðveg að
Þorsteinn skyldi fara úr landi í
miðju sjómannaverkfalli og láta
eins og sér kæmi ekki við stöðvun
fiskveiðiflotans. Hann þótti sýna
pólitískt og siðferðilegt ábyrgðar-
leysi að fara af vaktinni hér heima
þegar í óefni var komið.
Skömmu áður en sjómanna-
verkfallið skall á stóð Þorsteinn
fyrir umdeildri sölu á SR-mjöli.
Nokkrir fjárfestar fengu þar ríkis-
eigur á gjafverði og á vafasömum
forsendum því hæstbjóðandi,
Haraldur Haraldsson í Andra, var
útilokaður frá útboðinu. Akvörð-
un um að selja fyrirtækið var tekin
í flýti og áhugasömum kaupend-
um, Akureyrarbær þar á meðal,
var ekki gefinn frestur til að gera
tilboð. Þorsteinn koin frain í fjöl-
miðlum, barði sér á brjóst og full-
yrti að salan á SR-mjöli væri
stærsta einkavæðing ríkisfyrir-
tækja til þessa. I fjármálaráðuneyt-
inu ofbauð mönnum meðferð
málsins í sjávarútvegsráðuneytinu
og láku útreikningum til frétta-
stofu Sjónvarps sem sýndu að SR-
mjöl var ekki selt heldur gefið.
Haraldur í Andra hefur höfðað
mál fýrir dóinstóium til að fá söl-
una dæmda ógilda.
Stefnuleysi Þorsteins og ráðu-
neytis hans kemur glöggt fram í
úthafsveiðum Islendinga. Ráðu-
neytið stendur eins og þurs á með-
an gerbreyting hefur orðið á sókn-
armynstri flotans. Utgerðarmenn
senda skip sín á fjarlæg mið til að
vega á móti aflabresti hér heima
en Þorsteinn og ráðuneyti hans
standa í vegi fyrir eðlilegri þróun
þessara veiða með því að ríghalda í
sjónarinið og reglugerðir sem
miða að fækkun fiskiskipa. Út-
|gy Sjávarútvegsráðuneytið er fitli Ijóti
andarunginn í stjórnarráðinu. Davíð
Oddsson sýndi fyrirlitningu sína á Þorsteini
Pálssyni með því að auglýsa í fjölmiðlum fund
sinn með Halldóri Ásgrímssyni
fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.
gerðarmenn úthafsveiðiskipa eru
langþreyttir á aðgerðarleysi sjáv-
arútvegsráðuneytisins og sjá þann
kost einan að gera út undir henti-
fána.
I síðustu viku greindi Vikublað-
ið ffá afdrifum Rýnis hf. sem var
stofnað á rústum Ríkismats sjávar-
afurða og alfarið undir stjórn sjáv-
arútvegsráðuneytisins. Fyrirtækið
tapaði peningum allt síðasta ár og
var selt fyrir litla upphæð í árslok.
Skjölin um Rýni eru stimpluð sem
trúnaðarmál í ráðuneytinu og þeir
sem bera ábyrgð á málinu svara
ekki fyrirspurnum fjölmiðla.
Samtök sjómanna telja að Þor-
steinn hafi gefið LIÚ loforð um
að setja bráðarbirgðalög á verkfall
þeirra og því beri hann ábyrgð á
því að LIÚ var hvergi hnikað í
samningaviðræðum til að binda
endi á kvótabrask útgerðarmanna
á kostnað sjómanna.
Sjávarútvegsráðuneytið er mik-
ilvægasta fagráðuneytið og óá-
nægja í ríkisstjórn og í stjórnkerf-
inu með frammistöðu Þorsteins
og hans fólks á eftir að taka á sig
aðrar og alvarlegri myndir en þá
táknrænu sem fólst í því að Davíð
bað Plalldór Asgrímsson að ráð-
leggja sér um málefni sjávarút-
vegsins.
Félagsdómur dæmdi Vinnu-
veitendasambandinu í hag
með því að úrskurða verk-
fallsboðun bflstjóra Strætisvagna
Reykjavíkur ólögmæta.
Dómurinn er áfall fyrir Starfs-
mannafélag Reykjavíkurborgar sem
ekki cr talið hæft til að fara með
kjaramál bílstjóranna eftir að SVR
varð hlutafélag og gekk í VSI. I á-
lyktun stjórnar Starfsmannafélags-
ins segir að hún muni beita sér fyrir
því að lögum félagsins verði breytt
þannig að það verði fullgildur
samningsaðli vagnstjóra.
Væringar hafa verið með ASI og
BSRB vegna þessa máls enda hefur
ASÍ ekki legið á þeirri skoðun sinni
að starfsmenn hlutafélagsins SVR
eigi heima í aimennum verkalýðsfé-
lögum cn ekld í samtökum opin-
berra starfsmanna. Eina ASI-félag-
ið sem hefúr sýnt strætisvagnabíl-
stjórum samúð er Dagsbrún og
kannski er það skýringin á því að
einir 20 bílstjórar hafa óskað eftir
inngöngu í Dagsbrún.
Sjá leiðara á bls. 2.
Bráðabirgðalögin gerræði
Ríkisstjómin og útgerðar-
menn tóku höndum sam-
an unt að brjóta á bak aft-
ur baráttu sjómanna sem sést
best á því að bráðabirgðalög um
bann við verkfalli sjómanna vom
sett um nótt og útgerðum gert
mögulegt að lögskrá áhafiiir og
halda úr höfit nánast í sömu
mund og bráðabirgðalögin vom
fengin forsetanum til staðfest-
ingar.
Þetta kemur fram í ályktun þing-
flokks Alþýðubandalagsins þar sem
gerræðislegri framkomu ríkis-
stjórnar Davíðs Oddssonar við sjó-
mcnn er mótmælt harðlega.
„Það undirstrikar lítilsvirðingu
núverandi valdhafa fj'rir leikregl-
um lýðræðis og þingræðis að grípa
til setningar bráðabirgðalaga við
þessar aðstæður nokkrum dögum
áður en Alþingi hefur störf eftir
jólaleyfi. Ríkisstjórn Davíðs Odds-
sonar grípur nú í þriðja sinn á
valdaferli sínum til bráðabirgða-
laga. Þetta gerist þrátt fyrir ákvæði
nýrra þingskapa sem gera það að
verkum að Alþingi situr allt árið og
getur hvenær sem er komið til
fundar með injög skömmum fyrir-
vara," segir í ályktuninni.
Þingflokkurinn segir málefni at-
vinnuveganna og ekki síst sjávarút-
vegsins hafa goldið átaka og ill-
deilna innan stjórnarflokkanna og
milli þeirra. Fullri ábyrgð er lýst á
hendur rfldsstjóminni vegna verk-
fálls sjómanna og átalin eru fráleit
vinnubrögð við endurskoðun laga
um stjórn fiskveiða.
„Verkfallið er afleiðing af þeim
fyrirætlunum rfldsstjórnarinnar að
festa kvótakerfið í sessi að tillögu
Tvíhöfðanefiidar með öllum þeim
göllum og annmörkum sem á því
eru. Sjómenn mótmæltu þessum
fýrirætlunum og sendu frá sér yfir-
lýsingu þar sem þeir lýstu andstöðu
sinni við ffjálst framsal aflaheim-
ilda og hverskyns brask með kvóta
sem kæmi niður á kjörurn sjó-
manna, einnig að þeir gæm aldrei
sætt sig við sölu á óveiddum fiski.“
Þingflokkurinn ítrekar að aldrei
gemr orðið sátt með þjóðinni um
fýrirkomulag sem felur í sér ígildi
eignarréttar á óveiddum fiski.
Stálsmiðjudeilan leyst
Verkalýðsfélög hafa náð
samkomulagi við Stál-
smiðjuna hf. en for-
ráðamenn fýrirtækisins reyndu
að þvinga fram launalækkun hjá
starfsfólki og rufú dómssátt
sem gerð var í haust fýrir Fé-
lagsdómi. I síðustu viku var
verkalýðshreyfmgin tilbúin að
fara í hart og hugðist leita eftir
verkfallsheimild.
Að sögn Ilalldórs Björnssonar,
varaformánns Dagsbrúnar, náðist
sainkomulag síðast liðinn fösm-
dag Jtar sem fýrirtækið hætti við
fýrirhugaðar launalækkanir. Fyrir
sitt leyti samþykkm verkalýðsfé-
lög að deildaskipting í fyrirtækinu
yrði einfölduð og að starfsmenn
tækju út í fríum tiltekið hlutfall af
yfirvinnu.
I samkoinulaginu er einnig gert
ráð fýrir að Gylfi Páll Hersir verði
endurráðinn en hann hefúr beitt
sér í réttindamálum starfsmanna
og þess vegna sögðu forráðamenn
Stálsmiðjunnar honum upp í
haust. I dómssátt sem var gerð
fýrir Félagsdómi þann 23. nóvent-
ber var kveðið á um að Gylfi Páll
skyldi hafa forgangsrétt til endur-
ráðningar þegar verkefúastaðan
batnaði. Þrátt fýrir næg verkefúi
síðusm vikur og mánuði lém for-
ráðamenn Stálsmiðjunnar það
undir höfúð leggjast að endurráða
Gylfa Pál, en með samkomulag-
inu á fösmdag virðist inálið kornið
höfn.