Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 16.01.1960, Síða 3

Frjáls þjóð - 16.01.1960, Síða 3
<jCcMgarJaginn !6. janáar 1960, þjóö AFGREEÐST.A: INGÓLFSSTRÆTI 8 RtMT 19985 PÓSTHÓLF 1419 Otgefandl: ÞjóCxxtmarflokkur Ialanda. Ritstjóri: Tón Belgason, sbni 1-6169. Framkvæmdarst jóri: Jón A. Ouðmtmdaaon. A»krii!aTg>ald kr. 9.00 á mámiSi. drsiald 1319 kr. 108X0. V«B 1 laaraaðta kr. 3X0. FélassprentsBiiSjan b.f. Mannfélagsslys "l^ið hátíðleg tækifæri eru * oft fluttar snjallar ræð- ur og skrúðyrtar um hina miklu framför, sem orðið hefur í landinu — atvinnu- tækin, ræktunina, húsa- kynnin, þægindin. Allt er þetta svo myndarlegt, að vel má á það minnast. Breyting sú, sem átt hefur sér stað síðustu þrjátíu eða fjörutíu árin, er stórfengleg. En samhliða því, sém þessi stakkaskipti hafa orð- ið, hefur þjóðin líka breytzt. Að sumu leyti á sama veg: Hvarvetna sjáum við vel búið,. myndarlegt fólk. En breytingin hefur lika að sömu leyti orðið á annan veg og ekki jafnánægjulegan. Um þá nýlundu lesum við í fréttum, þar sem segir frá alls konar fjárdrætti, gjald- eyrissvikum og yfirhylm- ingu. Af slíku hefur íslenzkt þjóðfélag aldrei yerið svo tröllriðið sem nú. Tjetta er ekki tilviljun. Mannfólkið á íslandi er að sönnu ekkert verr gert að innviðum nú en það hefur verið. En það stendur í þeim sporum, að hætt er við, að margir misstigi sig. Höfuðorsakirnar eru tvær. Annars vegar er sá andi, sem kom í landið á stríðsár- unum og síðan hefur dafn- að í skjóli hernámsins fram á þennan dag. Hin stórkost- legu afbrot, sem átt hafa sér stað meðal þeirra, er nesta hafa umgengni og nánast samstarf við setulið- ið, eru rökrétt afleiðing þess. Hermangið ber í sér hættuna. Landið var upp- runalega opnað bandaríska hernámsliðinu með því hug- arfari að hafa það að féþúfu, og það hefur síðan verið um- gengizt með þvi hugarfari í raxandi mæli. Það er í eðli sínu ósiðleg afstaða og hefur leitt til meiri fjár- jlæfra en okkar litla þjóð- élag hefur áður komizt í kynni við. Og þessi bitru sannindi hafa fleiri reynt en við’. Kringum útlendan her Irottnar ævinlega spilling. Vegna hermangsins standa nú fjölmargir íslendingar, sem engar líkur eru til, að svo hefðu farið að öðrum kosti, uppi ærulausir menn. Vegna hersetunnar mega konur og börn, ættingjar og vinir, horfa upp á þessa menn með afbrotanafn við sig loðandi, en áhrifin frá þessum anda hernámsins kvíslast eins og banvænt eitur út um þjóðarlíkamann, leynt og lpóst. Það afhroð, sem við mun- um bíða í mönnum og heið- arleika vegná hersetunnar, er mikið og því miður er það ekki allt komið á daginn enn«, v v‘ TTin höfuðorsök þess, hve ** báglega við stöndum í þessu efni, er að því leyti í tengslum við hersetuna sem hún hefur raskað fjárhags- kerfi okkar. Til þess að forð- ast um stundarsakir full- komna upplausn vegna þess- arar röskunar, hafa verið sett margs konar vandræða- lög, meðal annars um fjár- öflun, uppbætur, niður- greiðslur, rekstrarstyrki og margt fleira. Þessi lög og þetta skipulag er með þeim einkennum, sem lög eiga ekki og mega ekki hafa. Þau freista til svika og pretta í ótal myndum, og það er örð- ugt, ef ekki ógerlegt, að hafa með því umsjá, að þau séu ekki misnotuð. Það eru einmitt þess konar lög, sem ekki er hægt að setja í neinu þjóðfélagi, án þess að ófarnaður hljótist af. Það er auðvelt að krækja sér í uppbætur á vöru, sem aldrei hefur verið til, ef reikningum er hagrætt. Það er auðvelt að sýna ofháa rekstrarreikninga, með til- búnum tölum, þegar sérstök atvinnutæki eru ár eftir ár höfð til hliðsjónar við á- kvörðun, rekstrarstyrkja. Söluskatturinn innheimtist misjafnlega og remiur stundum j vasa þeirra, sem ekki eiga að hafa skattstofna að tekjulind. Til þess þarf að falsa uppgjör, og það fals verður líka að ná til fram- tals tekna á skattskýrslu, svo að saman beri. Ein synd- in býður annarri heim. Þannig mætti lengi telja í þjóðfélagi með jafnskrýtna löggjöf og okkar þjóðfé- lag. En þess gerist ekki þörf. Staðreyndin er: Alþingi hef- ur. ekki kunnað að greina á milli hvers konar löggjöf formandi er að samþykkja og hvað ekki má gera að lögum. - ★ TTandafólk þeirra, sem nú " dingla fyrir aðra augum, flæktir í netinu, stendur hnípið álengdar og kysi helzt að fara huldu höfði. Þeir, sem finna hringinn þrengjast um sig, neyta allra ráða til þess að sleppa við opinberan afbrotastimpil. En meðan við nemum ekki burt hinar tvær meginor- sakir þeirrar óheillavænlegu öldu misferlis, sem gengur yfir þjóðfélagið, mitt í öll- utn lífsþægindunum og ný- mælunum á sviði athafna, munu fleiri og fleiri ganga í gildruna og verða að bráð því ástandi, sem komið hefur verið á í þessu landi. . Menn dæma þá hart, sem brotlegir eru, þegar þeir eru orðnir uppvísir, 'en þá er skammt skyggnzt, ef menn láta sér . nægja steinkastið Miðstjórn Þjóðvarnarflokksins — Frh. af 1. síðu. kosnir: Magnús Bjarnfresson, Haraldur Henrýsson, Halldór Magnússon og Kristmann Eiðs- son. Miðstíórnarfulltrúar ungra þjóðvarnarmanna utan Reykja- víkur voru kosnir; Eysteinn Sigurðsson úr Suður-Þingeyj- arsýslu, Ari Einarsson af Suð- urnesjum, Jóhannes Sigmunds- son úr Árnessýslu, Hjörtur Tryggvason úr Suður-Þingeyj- arsýslu, Jafet Sigurðss.on úr Kópavogi og Bjarni Böðvars- son úr Borgarfjarðarsýslu. — Varamenn þeirra eru: Sigurð- ur Bárðarson af Akureyri, Ævar Jóhannesson úr Eyjafjarðar- sýslu, Ragnar Böðvarsson úr Rangárvallasýslu, Viðar Þói'ð- arson af Húsavík, Sigui'ður Tryggvason úr Norður-Þing- eyjarsýslu og Jón A. Guðmunds- son úr Borgarfjarðai'sýslu. Úr kjördæmum voru þessir kosnir: Vesturlandskjördæmi: Þórður, Kristjánsson, bóndi, Hi'eðavatni, Helgi Guðmunds- son, skipstjóri, Akranesi, Guð- mundur Benjamínsson, bóndi, Gi'und. Varamenn: Jón Kr. Guðmundsson, Borgarnesi, Þór- hallur Þórarinsson, rafvirki, Hvanneyn, Sigmundur Einars- son, bóndi, Gróf, Reykholts- dal. Vestfjarðakjördæmi: Sigui'ður Elíasson, tilrauna- stjjói'i, Reykhólum, Þorvaldur Thoroddsen, hreppstj., Patreks- firði, Árni Einarsson, bátasmið- ur, Flatey. Varamenn: Birgir Hallgrímsson, Brekku, Geira- dal,, Guðlaug Guðmundsdóttir, Skáleyjum, Valdimar Gislason, Mýrum, Dýrafirði. Norðurlandskjördæmi vestra: Stefán Sigurðsson, fulltrúi, Sauðáxkróki, Andrés Guðjóns- son, kaupmaður, Höfðakaup- stað, Þói'ður Pálsson, bóndi, Sauðanesi. Varamenn: Krist- mundur Bjarnason, bóndi, Sjáv- arborg, Eiríkur Guðlaugsson, trésmiður, Blönduósi, Ai'nór Sigurðsson, sýsluskrifari, Sauð- árkróki. Norðurlandskjördæmi eystra: Björn Halldórsson, lögfr., Akui'eyri, Hjörtur E. Þórarins- son, oddv., Tjörxi, Svai'faðardal, Ingi Tryggvason, kennari, Laug- um, Guðjón Kristjánsson, Þórs- höfn, Langanesi. Vai'amenn: Hjalti Haraldsson, bóndi, Ytra- Garðshorni, Guðmundur Hall- dói'sson, bóndi, Kvíslai'hóli, Tjöi’nesi, Tryggvi Stefánsson, bóndi, Hallgilsstöðum, Fnjóska- dal, Þór Jóhannesson, Þórs- mörk, Svalbarðsströnd. Austurlandskjördæmi: Árni Stefánlson, Höfn, Horna- eitt og dómana, en gefa því engar gætui’, hvað firnunum veldux’. Það er reynt að leita orsaka umferðarslysa, ef bifi'eiðum hlekkist oft á á svipuðum slóðum. Skyldi þess síður þörf að gera gang- skör að því að finna og nema burt orsakir hinna miklu mannféiagsslysa, sem um . þessar mundir . hrjá okkar fámennu þjóð? fix’ði, Björn Sveinsson, bóndi, Eyvindará, Sævar Sigbjörnsson, bóndi, Rauðholti. Varamenn: Helgi Þórðarson, bóndi Ljósa- landi, Kjartan Ólafsson, læknir, Seyðisfii'ði, Sigurður Magnús- son, bóndi, Hjartai'stöðum. Suðurlandskjördæmi: Ólafur Guðmundsson, bóndi, Hellnatúni, Böðvar Stefánsson, skólastjóri, Ljósafossi, Haraldur Guðnason, bókav., Vestm.eyj- um, Þórarinn Helgason, bóndi, Þykkvabæ. Varamenn: Magnús Finnbogason, bóndi, Lágafelli, Andrés Pálsson, Hjálmsstöðum, Jóhann Árnason, Oddgeirshól- um, Baldur Teitsson, símstjóri, Stokkseyri. Reykjaiieskjördæmi: Sigmar Ingason, Jón Bijarna- son, Jón úr Vör, Hafsteinn Guð- mundsson. Varamenn: Eiríkur Eiríksson, -ðxarum íjOrao.a, Baiö'-fi Bjai'ni Sigurðsson, Bjai’ni F. Halldórsson. Tií áskrifenda FRJALSRAR ÞJÓÐAR! í desemberbyrjun var lokið að senda út innheimtubréf til áskrifenda blaðsins utan Reykjavíkur. — Síðan hafa greiðslur borizt til blaðsins mjög ört, svo að numið hefur jafnvel tugum greiðslna daglega. Skal nú brýnt fyrir þeim, sem enn eiga ógreitt blaðgjald 1959, kr. 108,00, að senda greiðslu hið allra fyrsta. Eins og kunnugt er, er engum nú sent blaðið, nema hann standi í skilum með áskriftargjaldið. Blaðstjórnin. ITTSALA Kvensundboiir — Barnahúfur Manchettskyrtur — Sportskyrtur Bómullarpeysur, barna og ungiinga. Peysur, kvenna og barna og fleiri vörur. Asg. G. Gunnlaugsson & Austurstræti 1. Co. Hinn 31. desember, 1959, hætti ég rekstri Hótel Borgar, sem ég hefi nú rekið um 30 ára skeið, en við stai'frækslu hótelsins hefur nú tekið hlutafélagið Hótel Borg. Um leið og ég þakka hinum mörgu starfsmönnum mínum fyrr og siðar gott og ánægjulegt samstarf, vil ég einnig þakka við- skiptamönnum mínum ánægjuleg samskipti á undanförnum árum og óska þess, að hinir nýju aðilar, sem við rekstri hótelsins hafa nú tekið, fái að njóta hinnar sömu vinsemdar og viðskipta, sem ég hefi notið. Reykjavík, 2. jan. 1960. Jóhaniies Jósefsson. Samkvæmt framanritixðu hefur hlutafélagið Hótel Borg tekið við öllum rekstri hótelsins frá og með 2. jan. 1960. Framkvæmdastjóri hótelsins hefur verið ráðinn hr. Pétur Daníelsson hótelstjóri. Það er ósk og von félagsstjórnar- tnnar og hins nýja framkvæmdastjóra félagsins, að hótelið megi njóta þeirra vinsælda, sem það hefur notið frá fyrstu tíð undir ti'austi'i stjórn hinna dugmiklu stofnenda þess. Hótel Borg h.f. óskar öllum viðskiptavinum sínum góðs og gleðilegs árs og býður þá alla hjartanlega velkomna til viðskiptanna á nýja árinu. Reykjavík, 2. jan. 1960. Aron Guðbrandsson, * r Jón J. Fannberg, Ragnar Guðlaugsson, Pétur Daníelsson.

x

Frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.