Frjáls þjóð - 07.05.1960, Page 6
RÉTTUR MANNSINS Á JÖRÐUNNI
„Hver maður er borinn frjáls og jafn öðrum að virðingu
og réttindum. Menn eru gæddir vitsmunum og samvizku,
og ber [xdm að breyta bróðurlega hverjum við annan.
-Hver maður skal eiga kröfu á réttindum þeim og því
frjálsræði, sem fólgin eru í yfirlýsingu þessari, og skal þar
- engan greinármun gera vegna kynþáttar, litarháttar,
■ kynferðis, tungu, trúar, stjórnmálaskoðana eða annarra
skoðana, þjóðernis, uppruna, eigna, ætternis eða annarra
aðstæðna.
Allir menn eiga rétt til lífs, frelsis og mannhelgi. Engan
inann skal hneppa í þrældóm né nauðungarvinnu. Enginn
maður skal sæta pyndingum, grimmilegri, ómannlegri
'eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.
Allir menn skulu jafnir fyrir lögunum og eiga rétt á jafnri
vernd Jreirra, án manngreinarálits. Ber öllum mönnum
réttur til verodar gegn hvers konar misrétti, sem í l)ág
bi ýtur við vfirlýsingu þessa, svo og gagnvart hvers konar
áróðri til þess að skapa slíkt misrétti.
Ekki má eftir geðþótta taka menn fasta, hneppa þá í
fangelsi eða varðhald né gera útlæga. Hvern þann mann,
sem borinn er sökum fyrir refsivert athæfi, skal telja
• saklausan, unz sök hans er sönnuð lögfullri sönnuii fyi'ir
- opinberum dónrstóli, enda hafi tryggilega verið buið um
vörn sakhornings.
• Eigi má eftir geðþótta raska heimilisfriði nokkurs manns,
hnýsast í einkamál hans eða bréf, vanvirða hann eða spilla
mannorði hans. Ber hverjum manni lagavernd gagnvart
-slíkum afskiptum eða árásum. Frjálsir skulu menn vera
- ferða sinna og dvalar innan landamæra hvers ríkis. Rétt
skal mönniun vera að fara af landi hurt, hvort sem er af
. sínu landi eða öðru, og eiga afturkvæmt til heimalands síns.
Rétt skal mönnum vera að ieita og njóta griðlands erlendis
gegn ofsóknum.
Konum og körlum, sem hafa aldur til j)ess að lögum, skal
heimilt að stofna til hjúskapar og fjölskyldu, án tillits til
kvnþáttar, þjóðernis eða trúarbragða.
Allir menn skulu lrjálsir hugsana sinna, sannfæringar og
trúar. 1 þessu fehst frjálsræði til að skipta um trú eða
játningu og enn fremur til að láta i ljós trú sína eða
- játningu, einir sér cða í félagi við aðra, opinherlega eða
i einslega, með kennslu, tilbeiðslu, guðsþjónustum og
lielgihaldi.
Hver maðitr skal frjáls skoðana sinna og að því að láta þær
í Ijós. Felur slíkt frjálsræði í sér réttindi til jtess að leita,
taka við og dreifa vitneskju og hugmyndum með hverjum
hætli sem vera skal og án tillits til íandamæra. Hverjum
manni skal frjálst að eiga þátt í friðsamlegum
fundahöldum og félagsskap.
Vilji þjóðarinnar skal vera grundvöllur að valdi
ríkisstjórnar. Skal hann látinn í ljós með reglubundnum,
óliáðum og almennum kosningum, enda sé kosningaréttur
jafn og leynileg atkvæðagreiðsla viðhöfð eða jafngildi
hennar að frjálsræði.
Hver jjjóðfélagsþegn skal fyrir atheina hins opinhera eða
■ alþjóðasamtaka og í samræmi við efnahag og skipulag
hvers ríkis eiga kröfu á félagslegu öryggi og jteim
efnahagslegiun, félagslegum og menningarlegum réttindum,
sem honum eru nauðsynleg til þess að virðing hans og
ju'oski fái notið sín.
Hver maður á rétt á atvinnu eftir frjálsu vali, á réttlátum
og hagkvæmum vinnuskilyrðum og á vernd gegn
atvinnuleysi. Hverjum manni her sama greiðsla fyrir sama
verk, án manngreinarálits. Allir menn, sem vinnu stundu,
skulu hera úr hýtum réttlátt og hagstætt endurgjald, er
tryggi þeim og fjölskyldum jjeirra mannsæm lífskjör.
Þeim her og önnur íelagsleg vernd, ef þörf krefur. Hver
maður má stofna til stéttarsamtaka og ganga i þau til
verndar hagsmunum sínum.
Hverjum manni ber réttur til hvíldar og tómstunda, og
telst þar til hæfileg takmörkun vinnutíma og regluhundið
orlof að óskertum launum. Hver maður á kröfu til
lífskjara, sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og vellíðan
lians sjálfs og fjölskyldu hans. Mæðrum og börhum her
sérstök vernd og aðstoð.
Ilver maður á rétt lil menntunar. Skal hún veitt ókcypis,
að minnsta kosti harnafræðsla og undirstöðumenntun.
Börn sladu vera skólaskyld.
Hverjum manni her réttur til ])ess að taka frjálsan ])átt í
menningarlífi jjjóðfélagsins, njóta lista, eiga ])átt í
framförum á sviði vísinda og verða aðnjótandi þeirra gæða,
er af þeim leiðir. Hver maður skal njóta lögverndar þeirra
hagsmuna, í andlegum og efnalegum skilningi, er leiðir af
vísindaverki, ritverki eða listaverki, sem hann er höfundur
að, hverju nafni sem nefnist.“
(Úr mannréttindayjirlýsingu Sameinuðu þjóðanna)
Ég heimsótti Keflavák-
-*-• urflugvöll ásamt Ólafi
Pálmasyni á - sumardaginn
fyrsta. Við höfðum hug á að
kynnast þróun mála á staðn-
um, en líka langaði okkur að
heilsa upp á liðþjálfann Ge-
org, sem bandaríski landher-
inn skildi eftir til að annast
fyrir sína hönd varnir Is-
lands í félagi við flugher og
flota. Við héldum upp veg-
inn til byggðarinnar í heið-
inni og hittum tvo íslend-
inga.
„Hvar er hægt að finna
Georg liðþjálfa?“ spurðum
við.
„Hafið þið pantað viðtal?"
spurðu þeir.
„Nei,“ sögðum við.
„Þá getur orðið erfitt fyrir
ykkur að finna Georg lið-
þjálfa.“
„Einhvers staðar hlýtur
hann þó að hafa höfuðstöðv-
Flugvélaskemma flughersins, mesta hús á íslandi. Þarna voru ís
ast á magann í fyrra. — í forgrunni: Vatnsgeymir á súlum, sen
ar.“
„Höfuðstöðvar Georgs lið-
þjálfa eru flugvallarsvæðið
allt,“ sögðu þeir. „Hann gæt-
ir þess að vera jafnan alls
staðar, og vera þó jafnan
hvergi. Það er hans hernað-
arlist. En hugsazt getur að
þið rekizt á hann af tilvilj-
un.“
„Þá verðum við að þekkja
hann,“ sögðum við. „Hvern-
ig er Georg ásýndum?“
„Hann er mókjömmóttur,“
sögðu þeir. „Annars grár.
Dálítið einkennilega grár.
Sögur herma að hann hafi
verið hvítur fyrir mörgum
árum, þegar hann byrjaði
h;á Hamilton, en hann hafði
mikinn áhuga á vélum og
varð af því snemma grár.
Það gerði smuroMan.“
„Verður Georg þekktur af
nokkru fleiru en þessu?“
spurðum við.
„Já,“ sögðu þeir. „Hann
er mjög loðinn. Hann er svo
loðinn, að það sér ekki í
augun á honum.“
Við þökkuðum fyrir upp-
lýsingarnar og héldum á-
fram veginn upp í byggðina
í heiðinni.
C\ Byggðin í heiðinni er
‘l“J • orðin mikil að hæð og
víðáttu. Stórar íbúðarblokk-
ir standa í löngum röðum,
og skemmur margar gnæfa
við loft. Einnig eru tvö
kvikmyndahús og fimm aðr-
ir skemmtistaðir, sem nefn-
ast klúbbar. í einum þeirra
er samkomusalur, sem rúm-
ar 600 manns í sæti, eða á-
lika og Þjóðleikhúsið. I
klúbbunum geta menn keypt
áfengi eins og þeir hafa ráð
á. Það eru svona margir
klúbbar af því óbreyttir og
yfirmenn mega ekki fara
áða saman. Það gæti spillt
heraganum. Og slæmur her-
agi mundi draga úr varnar-
mættinum. Klúbbai'nir eru
opnaðir þegar liður á daginn,
JONAS ARNASON:
flestir um og upp úr klukkan
fimm. Okkur var bent á
klúbb sem væri aðallega
ætlaður liðþjálfum og öðr-
um foringjum af svipaðri
gráðu. Kannski Georg sé
hér inni að fá sér hressingu,
hugsuðum við. Okkur var
leyft að koma í anddyrið og
sjá sem snöggvast í salinn.
Það var mikið fjör og hávaði.
Það var meðal annars hávaði,
sem gat bent til þess að
Georg liðþjálfi væri hér
staddur, og væri búinn að
fá sér einum of mikið, og
væri orðinn reiður. En við
nánari athugun reyndist
þetta vera liðþjálfi úr flug-
hernum.
O Og enn er byggt. Það
'-*• er til dæmis verið að
byggja allstóra spennistöð
til að taka við því rafmagni,
sem ríkisstjórn vor samdi
um að herstöðin fengi frá
nýrri Sogsvirkjun. Einnig er
verið að byggja tvær stórar
íbúðarblokkir til viðbótar
öllum hinum. Það eru svo-
nefndir Suðurnesjaverktak-
ar, sem annast þessar fram-
kvæmdir. Suðurnesjaverk-
takar eru allir traustir og
góðir Sjálfstæðis og Alþýðu-
flokksmenn. Það er sagt að
þeir hafi borgað mestallt öl-
ið sem drukkið var á Suður-
nesjum í síðustu kosningum.
Þessi spennistöð á að taka við rafmagni bví, sem herstöðin fær
frá nýju Sogsvirkjuninni.
Veldi Framsóknarfyrirtækja
á vellinum má heita úr sög-
unni síðan núverandi ríkis-
stjórn tók við. Bækistöðvar
þeirra standa mannlausar
með brotna glugga, eins og
gömul höfuðból sem eru far-
in tí eyði, og sorgin drúpir af
upsum. Sic transit gloria
mundi. Suðurnesjaverktakar
hafa brotizt til valda. Þeir
eru d öllu. Þeir eru jafnvel
í sorpinu. Það eru þeir sem
aka öllu sorpi, samkvæmt
sérstökum samningi við
Bandaríkjamenn, út á haug-
ana fyrir vestan flugvallar-
byggðina. Hins vegar hafa
þeir enn ekki náð samningi
um sjálfa haugana. Það
standa verðir á haugunum
dag og nótt og reka burt ó-
viðkomndi menn, af því það
er bannað að hirða þar nokk-
urn skapaðan hlut. Nema
flöskur. Það hefur verið gerð
undantekning með flöskur.
Það eru þó ekki Suðurnesja-
verktakar sem hafa fengið
leyfi t'.l að hirða flöskurn-
ar, heldur viss einstakling-
ur sem starfar hjá flug-
vallaþjónustunni. Sá maður
gengur í einkennisbúningi.
En einkennisbúninginn ber
hann vegna starfs síns í þágu
lislenzka ríkisins, en ekki
vegna þess að hann hefur
fengið einkarétt til að hirða
flöskur af haugum Banda-
ríkjamanna.
/f Fyrir tveim-þrem ár-
* • um var flutt á Alþingi
frumvarp um að banna er-
lend nöfn á islenzkum fyrir-
tækjum og forða þannig
þjóðerni voru frá þeirri spill-
ingu sem stafar af slíkum
nöfnum. Frumvarp þetta
vakti verðskuldaða athygli,
og meðal annars hratt það af
6
Frjáls þjóð — Laugardaginn 7. maí 1960'