Frjáls þjóð - 02.07.1960, Síða 1
2, júlí 1960
laugardagur
26. tölublað
9. árgangur
Síðustu atburðir í landhelgismálinu
Brezkum landheigisbrjótum
sýnd furðuleg linkind
Atburður sá, sem gerðist úti fyrir Norðurlandi
síðastliðinn þnðjudag, þegar varðskipið Þór stóð brezk-
an togara að veiðum ínnan landhelgi og setti menn um
borð í hann, að því er virðist án þess að gera alvarlega
tilraun til að færa sökudólgmn til hafnar, vekur enn á
ný þá spurningu, hvort varðskipsmenn hafi fengið
ströng fyrirmæli frá yfirboðurum landshelgisgæzlunnav
um að sýna brezkum veiðiþjófum sérstaka linkind.
Það hefur að vonum vakið at- arann til hafnar. Nú virðist
hygli og undrun, að þrátt fyrir miklu linlegar hafa verið á mál-
vaxandi ásókn brezkra togara um haldið.
inn í íslenzka landhelgi síðustu í tilkynningu landhelgis-
vikurnar, hafa íslenzk varðskip gæzlunnar segir meðal annars:
sýnt litla tilburði til að hand- „Skipstjóri togarans lokaði sig
sama þá, aðeins reynt að stugga inni í brúnni og einnig var loft-
þeim út fyrir fiskveiðitakmörk- skeytaklefanum læst, þannig að
in, líkt og þegar sauðkindum varðskipsmenn komust ekki
er hóað úr túni. ! þangað inn.“ Þetta gerðist,
Frásögn landhelgisgæzlunnar meðan herskipið brezka var enn
af tilraun varðskipsins Þórs til fjarri* og virðist mönnum ætl-
að hafa hendur í hári landhelg- að að trúa því, að varðskips-
isbrjótsins Northern Queen, menn hafi verið ráðalausir
bendir eindregið í þá átt, að með að brjóta upp eina eða
varðskipsmenn starfi nú sam- tvær hurðir. Hvað myndi sagt
kvæmt öðrum fyrirmælum en um fréttatilkynningu frá lög-
áður, þegar brezkir togarar reglunni þess efnis, að því mið-
eiga í hlut. Er í því efni fróðlegt ur hefði hún ekki náð í þjófinn,
að bera saman atburðina nú og þar eð hann hefði læst sig inni
hina einbeittu framkomu yfir- ásamt þýfinu, meðan hann beið
manna á Þór haustið 1958 gagn- eftir hjálp? Engum dettur í hug
vart togaranum Northei'n Foam að varðskipsmenn séu deigari
og hei’skipinu Eastbourne, þeg-( við að gegna skyldustörfum sín-
ar skipherra þverneitaði að taka um nú en þeir voru fyrir tæp-
við mönnum sínum yfir í varð- um tveimur árum. Skýringin á
skipið aftur, þótt þeim væri breyttum starfsaðferðum þeirra
meinað með ofbeldi að færa tog-! Framh. á 8. síðu.
Hvers vegna
þegja þeir?
FRJÁLS ÞJÓÐ hefur að undanförnu veitt upplýsingar
um ýmis mál, er varða ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum og ekki hefur verið hreyft við í öðrum blöðum.
Til dæmis hefur blaðið bent á þá mikilsverðu staðreynd, að
100 milljón króna skekkjan í efnahagsútreikningunum, sem
kostað hefur mikil vandræði, var ekki hagfræðingum að
kenna, heldur sök fjármálaráðherra, Gunnars Thoroddsen.
Einnig hefur blaðið tvívegis drepið á þann nýja 100 milljón
króna skatt, sem á að leggja á íslenzkan iðnað. Dagblöðin í
Reykjavík hafa hins vegar þagað um málið og hvorki viljaö
styðja fréttina eða mótmæla henni. Nú hljóta menn að
spyrja: af hverju stafar bessi þögn? Hvers vegna mótmæla
stjórnarblöðin ekki, ef bau telja fréttina ranga. Eða skyldi
þeim líða illa að geta ekki borið til baka frétt iim nýjar
stórfelldar álögur á þjóðina eftir öll þau ósköp, sem dunið
hafa yfir?
Jafnframt þessu er rétt að minna á, að stjórnarblöðin
hafa einnig þagað sem steinar um upplýsingar FRJÁLSRAR
ÞJÓÐAR varðandi mismun á fiskverði hér á landi og í
Noregi, enda þótt það mál hafi vakið geysimikla athygli
og umtal seinustu vikurnar.
Happdrætti Frjálsrar þjóðar
Happdrætti FRJÁLSRAR
ÞJÓÐAR er hlaupið af stokk-
unum.
I því nær átta ár hefur
FRJÁLS ÞJÓÐ háð linnu-
lausa baráttu. Um það bil
sem blaðið hóf göngu sína
var heimsmálum svo háttað,
að tvær heimsblokkir deildu
og drottnuðu. Margir töldu
heimalningshátt og þröng-
sýni að ætla nokkurri þjóð
stað utan þeirra vébanda.
FRJÁLS ÞJÓÐ hóf þó upp
merki sitt í trássi við skoðan-
ir þessara manna. Blaðið
benti á hættu þess að skipta
heiminum í tvær fjandsam-
legar helftir og barðist fyrir
því, að íslenzk þjóð sæti hjá
og bæri klæði á vopn í stað
þess að gerast lítil eind í
stríðstafli stórveldanna.
Nú liefur svo skipazt, að
lilutlausum þjóðum er vax-
inn fiskur um hrygg og hlut-
leysisstefnunni eykst sí og æ
fylgi í heiminum. Fleiri og
fleiri sjá missmíð á því að
reisa varanlegan heimsfrið á
grundvelli atómvopna. Það
hefur sýnt sig, að auknar
vopnabirgðir valda aðeins
vaxandi ótta og tortryggni,
svo að enginn er þess um-
kominn að segja um, hvenær
kviknar í sprengjuköstum
herveldanna.
Flestir hugsandi menn sjá,
hvert horfir. Sumir viður-
kenna það og velja sér stefnu
samkvæmt því. Öðrum finnst
ljúfara að reyna að ganga á
svig við beiginn og hvílast á
flossvæfli stórvelda > austri
og vestri, þeirra hinna sömu
sem telja sig þess umkomin
að kasta á milli sín fjöreggi
mannkyns, senda njósnar-
flugvélar sínar um i ögrun-
arskyni eða berja í borð og
rjúka heim eins og reiður
krakki af ráðstefnum, þar
sem gera á út um örlög
heimsins.
Frjáls þjóð telur sér skylt
Framh. á 6. síðu.
KAUP LÆKKAR
Kópavogsbúar eru reiðir bæj-
arstjóra sínum um þessar
mundir. Frú Hulda, sem þar
ræður ríkjum, hefur fyrirskip-
að að lækka skuli kaupið í ung-
lingavinnu bæjarins um helm-
ing.
Hjá Reykjavíkurbæ fengust
þær upplýsingar, að kaup ung-J
linga í Reykjavík væri um 6,
—7 kr. og virðist þvi sem kaup-
lækkunin í Kópavogi sé gerð til
samræmis við unglingakaup í;
höfuðborginni.
1 unglingavinnu er starfað
að mörgum gagnlegum hlutum
og þykir 6—7 króna kaup á
tímann vera heJdur nánasar-j
legt. Er vissulega furðulegt að
bæjarstýran á ráðstjórnarlýð-
veldinu skuli herma eftir^
Reykjavíkuríhaldinu í þessu
máli. 1
Eigandinn keypti
eigið hús!
Fyrir nokkrum árum reisti
ungur verkfræðingur sér stórt
og glæsilegt hús í Laugarásnum
í Reykjavík. Það var Stein-
grímur Hermannsson, sonur þá-
verandi forsætisráðherra. Hon-
um gekk að sjálfsögðu mjög vel
að útvega sér lán í flestum lána
stofnunum og til dæmis fékk
hann óvenjulega fjárfúlgu í
Búnaðarbankanum, enda veitti
ekki af, því að byggingin var
skrauthýsi og alldýr. Nokkra
athygli vakti á næstu árum, að
eigandi þessa stórhýsis var laus
við að greiða útsvar og skatta
að mestu leyti, eins og hver ann-
ar fátæklingur. Skýringin
reyndist vera sú, að vaxta-
greiðslurnar af lánunum voru
svo háar og um leið frádráttar-
bærar á skattaframtali, að ekk-
ert varð eftir af uppgefnum
tekjum.
Síðastliðinn þriðjudag var
haldið nauðungaruppboð á húsi
Steingríms til þess að greiða
vexti og aíborganir af þeim lán-
um, sem skyldmenni hans út-
veguðu honum, þegar Fram-
sóknarflokkurinn réði einhverju
í landinu. Húsið dýra var sleg-
ið á eina milljón og 475 þúsund
plús 25 þúsund í uppboðsgjöld.
Kaupandi var Steingrimur Her-
mannsson!