Frjáls þjóð - 15.08.1968, Page 6
/
luiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiitituiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiMiiiiiiiitiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiriiiiiiiiimiimmmiiimtr
I
=
:
E
=
Gísli Gunnarsson:
Þetta var samið fyrir tæpum 7 árum, eða í desember 1961. Þá var 22. þing Komm-
únistaflokks Ráðstjórnarríkjanna nýafstaðið, en þar var rækilegt talað um glæpi, sem
framdir voru á Stalínstímabilinu, og eftir það þing var hætt að láta Stalín vera múmíu
í glerkistu og nafni Stalíngrad var breytt í Volgugrad. Á þinginu var m. a. rætt um
að reisa sérstakt minnismerki fyrir fórnarlömb Stalínstímabilsins, — af því varð
ekki fremur en mörgum öðrum fyrirheitum.
Þessir atburðir ollu mörgum íslenzkum sósíalistum miklu hugarangri og deildu þeir
mikið á sovézka kommúnista fyrir uppljóstranirnar um glæpi Stalínstímabilsins. Eft-
ir að hafa staðið í deilum í margar vikur við flesta pólitíska félaga mína, samdi ég
þetta. Hins vegar taldi ég, sennilega með réttu, vonlaust að reyna að fá þetta birt í
einhverju blaði eða tímariti, sem ég gat sætt mig við þá.
Mér finnst þessar hugleiðingar ekki síður tímabærar í dag og ákvað því loksins
núna að fá þær birtar.
SÖGULEG
Ég heyri hróp þín,
kæri vinur.
Ég heyri hróp þín
þar sem þú liggur
þjáður
í pyntingarklefum skriffinnskuvaldsins.
Ég heyri hróp þín,
kæri vinur.
Hróp þín á hjálp.
Hví skyldir þú
sextán ára í fangelsi
seytján ára í útlegð
átján ára landflótta
hættir lífi þínu þúsund sinnum
1905 og 1917
og þúsund sinnum aftur
fyrir sósíalisma
fyrir fólkið
fyrir framtíðina
verða að sæta pyntingum
og játa á þig verstu glæpi
gegn sósíalisma
gegn fólkinu
gegn framtíðinni?
Ég heyri hróp þín,
kæri vinur.
Ég skil hróp þín,
kæri vinur.
Hróp þín á hjálp.
Ég veit
að þú vildir ekki
að Ivan Lozovsky hyrfi
fyrk að gagnrýna héraðsstjórnina í
Stavropol
og að Igor Setanof hyrfi
fyrir að gagnrýna ekki héraðsstjórnina
í Stavropol;
en þú sagðir ekki neitt
því að þú vildir að einhverjir lifðu þetta af
lifðu af grimmdina
lifðu af brjálæðið.
En, samt, vinur, samt,
értu hér
og hrópar á hjálp.
Hver er sök þín, v*nur?
Hver er sök þín?
Hví þarft þú að hrópa á hjálp?
Hrópa á hjálp vegna þúsundanna
sem eru saklausir pyntaðir
hrópa á hjálp vegna hundruð þúsundanna
sem eru saklausir myrtir.
NAUÐSYN
Hver er sök þín, vinur?
Hver er sök ÞEIRRA, viiHir?
Penir sagnfræðingar
austur frá og vestur frá
gæddir kaldri skynsemi
og fallegum alhæfingum
geta gefið þér svar:
Þú skilur:
Sovétríkjasambandið er umlykt óvinum
sem vilja tortíma því.
Það er engin furða þótt menn séu dálítið
tortryggnir
Sovétríkjasambandið er umlukt óvinum
stóriðnað
byggja upp mikinn mikinn stóriðnað úr
engu.
Til þess þarf hörku og dugnað.
Það er engin furða þótt menn séu dálítið
harðir.
Þú skilur, vinur.
Þetta er allt saman nauðsynlegt
fyrir sósíalisma
fyrir fólkið
fyrir framtíðina.
Þetta er allt saman söguleg nauðsyn.
Þú hrópar á hjálp.
Það er söguleg nauðsyn.
Þú ert pyntaður.
Það er söguleg nauðsyn.
Þú ert drepinn saklaus.
Það er söguleg nauðsyn.
Söguleg nauðsyn.
Þess vegna er meir en hálfur Bolsévíka-
flokkurinn svikarar.
Þess vegna eru flestir byltingarforingjarnir
svikarar.
Þess vegna skulu þeir ofsóttir.
Þess vegna skulu þeir eltir og
launmorðingjar drepa þá.
Byssu er miðað í Leningrad.
Exi er sveiflað í Mexíkó.
Þess vegna skulu þeir dæmdir til dauða
fyrir lognar sakir.
Þess vegna skulu þeir hverfá hægt og
hljóðlaust.
Bukharin, Pyatkov, Kameniev,
Preabosanski;
Rykov, Tústjaevski, Rakovsky, Muralov,
og margir fleiri, æ, svo margir margir
fleiri.
Alls staðar sveima hræfuglar
skriffinnskuvaldsins.
|
Hvers virði er hatrið til kúgarans
þegar ekki er hægt að skipuleggja það
ofan frá?
Hvers virði er aflvaki vopnanna um betra líf |
þegar aflvaki byssustingsins er fyrir hendi? j
Þess vegna eru þægir embættismenn sarsins I
betri en gamlir byltingarmenn.
Þess vegna skulu flóttamenn frá
fasismanum drepnir
eða afhentir Hitler vegna vináttu og í
skiptum.
Þess vegna skal frjáls hugsun kæfð.
Þess vegna skal marxisminn troðinn í
svaðið.
Þess vegna skal sósíalisminn svívirtur.
Þess vegna skal innleiða
ofstæki og blindni
persónudýrkun og þjóðernisrembing.
Sögulega nauðsyn.
En, vinur,
ég heyri hróp þin
ég skil hróp þín
en hrópaðu ekki of hátt.
Það er kannske maður á glugga.
Það væri i meira lagi óhentugt
ef heimurinn vissi að þú ert saklaus.
Gerðu það fyrir mig hrópaðu ekki of hátt.
Gerðu það fyrir hann bróður minn.
Truflaðu ekki drauminn hans.
Leyfðu honum að halda
að þú sért svikari j
að þú Sért glæpamaður
að þú sért fasisti.
Leyfðu honum að halda
að meir en hálfur Bolsévíkaflokkurinn
hafi svikið
og að flestir byltingarforingjarnir háfi
svíkið.
Truflaðu ekki drauminn hans.
Þvi að hann er líka að vinna
fyrir sósíalisma
fyrir fólkið
fyrir framtíðina.
Gerðu þaft, vinur.
Truflaftu ekki drauminn hans.
Leyíðu honum aft Sofa í r6.
Heyrirðu það, vinur.
Hrópaðu ekki of hátt.
Og nú eru þeir að segja
aft þú sért saklaus
að þú sért ekki svikari
aft þú sért ekki glæpamaftur
aft þú sért ekki fasisti
og aft þú hafir ætift unnið cinlægur
fyrir sósíalisma
fýrir fólkift
fyrir framtíftina
árift 1905
hg árift 1917
og árið 1937
og alltáf, alltaf
Og nú segjast þeir ætla áft reisa þér
minnismerki.
Vei, þeir hafa truflað ró bróður míns.
Vei, þeir hafa truflaft svefnfrið bróftur mins.
Vei, þeir hafa truflað draum bróður míns.
Og ég sem hef aldrei gagnrýnt
Gagnrýni í fyrsta sinn:
Hvers vegna gátu þeir ekki þagað?
6
Frjáis þjóft — Fimmtudagur 15. ágúst 196«
' ttlltlkV'^HIMIIIIIIIMIMIIMIIIMMIMtllllllllllflMIIIIIMIIIIIMIIIIIIItlllllltllllllllllllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllHIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIMIIIIIIIIIIIIIIIIMI'MIHHIIIMVIftllMIHMII