Frjáls þjóð - 10.10.1968, Blaðsíða 7
smíðaiðnaðarins,
6. Brýnt er, að gefnar
verði út íslenzkar reglur
um smíði stálskipa — 1000
brl. og minni, til þess að
tryggja eðlilega þróun
þessa veigamikla iðnaðar.
Þá þarf og að endurskoða
reglur um smíði tréskipa
með tilliti til þróunar og
nýrra byggingarefna.
Ráðstefnan væntir þess,
að ríkisstjórnin hlutist til
um að reglur þessar verði
settar og síðan lögfestar.
Vilja fá verkfallsrétt
Framh. af bls. 1.
innan vébanda BSRB 28 félög
með samtals 6784 félagsmenn
og hefur félagsmönnum fjölg-
að um eitt þúsund frá sein-
asta þingi 1966.
• Annríki hjá Kjaradómi
Á þingi BSRB í síðustu viku
var m. a. fjallað um launamál,
efnahagsmálin, skipulagsmál
samtakanna og orlofsheimili.
Þar kom fram, að opinberir
starfsmenn eru afar óánægðir
með þann gang mála, að þró-
unin gengur sífellt í þá átt
í sambandi við framkvæmd
kjarasamningalagana, af hálfu
ríkisins og ýmissa bæjarfélaga
að hafnað er samkomulagi og
málum vísað til Kjaradóms, en
Kjaradómur hefur þráfaldlega
sniðgengið grundvallaratriði
laganna; að hliðsjón skuli
hafa af kjörum launþega, sem
vinni sambærileg störf hjá öðr
um -en því opinbera. Ljóst er,
að ætlunin með- Kjaradómi
var áreiðanlega sú að til hans
kasta þyrfti því aðeins að
koma að samkomulag væri
þrautreynt, og yrði því til hans
leitað í fáum tilfellum. Hins-
vegar virðast ráðamenn ríkis-
ins og sumra bæjarfélaga hafa
talið þá stefnu heppilegasta að
láta dæma á sig greiðslur. Má
vera að þeir verði vinsælir hjá
ýmsum. En hvað um rúmlega
20 þúsund manns opinberra
starfsmanna og fjölskyldur
þeirra. Ekki kann það fólk
að meta þessi vinnubrögð. Og
þetta er sterkt afl ef það vill.
9 Verkfallsréttur
Þessi slæma reynsla fyrir
opinbera starfsmenn, sem
fengizt hefur, herðir menn
upp í því að krefjast fastar
fulls og óskorins samningsrétt
ar, þar með talinn verkfalls-
réttur. Tillaga í þessu efni var
samþykkt á þinginu. Þar er
stjórn bandalagsins falið að
hefja undirbúning að samn-
ingu lagafrumvarps er feli í
sér fullan samningsrétt. Opin-
berir starfsmenn gera sér fulla
grein fyrir því, hve mikil á-
byrgð fylgir verkfallsrétti m.
a. gagnvart öryggisþjónústu
hins opinbera. —- e.h.
Spilin á borðið!
Framh. af bls. 1.
legum samræmdum aSgercSum
þarf að einbeita fjármagninu
acS arSbærum atvinnuvegum,
til aS tryggja atvinnu og auka
útflutningsverðmæti. Jafnframt
er óhjákvæmilegt ac5 skera nið
ur margvíslega eySslu og hætta
að sóa takmörkuðum gjaldeyri
í hvers kyns óþarfa. Fátt bend
ir til þess, að forustumenn
stjórnmálaflokkanna hafi gert
sér Ijóst acS slíkar stefnubreyt-
ingar er brýn þörf. Enn sícSur
liggur neitt fyrir um, acS þeir
vilji framkvæma slíka stefnu-
breytingu meS þaS meginsjón-
armiS í huga, aS þjóðfélags-
legs réttlætis verSi gætt eftir
föngum og láglaunafólki forS-
acS frá stórfelldari lífskjara-
skerðingu en orSin er. MeSan
svo horfir virSist enginn grund
völlur fyrir því aS stjórnarand
staSan taki að sér það hlutverk
aS lengja h'fdaga þeirra stjórn-
arherra og stjórnarhátta, sem
nú standa viS þrotabú viðreisn
arinnar, en neita aS viSur-
kenna gjaldþrotiS.
ÞjóSinni er sagt aS margvís
legra gagna um efnahagsástand
iS hafi verið aflað undanfarna
vikur, og má því ætla aS heild
arinyndin fari aS verða nokk-
urn veginn skýr.
NiSurstöSur þessara kann-
ana á é þjóSfélagsvandanum í
heild, ber aS birta opinberlega
og leggja undanbragSalaust á
borSið. Þær niðui-stöSur eru
ekkert einkamál þeirra átta
manna, sem skipa viSræðu-
nefndina í stjórnarráSshúsinu.
ÞjóSin öll á heimtingu á aS fá
aS vita í öllum veigamiklum
atriSum hvernig komiS er.
MeS því einu móti geta farið
fram eðlilegar og nauSsynleg-
ar umræður um þær leiSir og
úrræði, sem tiltækileg eru. Því
aSeins sættir almenningur sig
viS þær ráSstafanir ,sem gerS-
ar verSa, að hann sannfærist
um nauSsyn þeirra og telji þær
eftir atvikum skynsamlegar og
öSrum líklegri til að leysa vand
ann á bærilegan og réttlátan
hátt.
RAZNOIMPORT, MOSKVA
Hafa enzt 70.000 km akstup samkvæmt
vottorðl atvlnnubllstjðra
Faest h(á flestum hjölbarðasölum á landinu
Hvergl lægra verð
VEGIR
EÐA
ÞQTIIFtöe
FiRÐAMAI
NUTIM
Þott flest hækki
lækka fargjöldin. Notið hin
hagstæðu haustfargjöld milli
landa, sem gilda til 31. október
Fjölskyldufargjöld allt árið
á innanlandsleiðum og á
millilandaleiðum 1. nóv.
til 31. marz.
INNAN LANDS
MILLI LANDA
FLUCFELAC ÍSLAJVDS
TILKYNNING
til síldveiðiskipa
sumarið 1968
Síldarútvegsnefnd hefir ákveðið, í samræmi við
2. gr. reglugerðar um flutning sjósaltaðrar síldar
frá 2. ágúst 1968, að höfðu samráði við Sjávarút-
vegsmálaráðuneytið, að fella niður greiðslu flutn-
ingastyrks á alla sjósaltaða síld, sem á land berst
eftir 30. september n.k., þar, sem forsendur fyrir
greiðslu styrksins munu þá brott fallnar.
Athygli er vakin á að skv. 3. málsgrein 2. greinar
sömu reglugerðar ber því aðeins að greiða flutn-
ingastyrk á ísvarða síld og síld, sem varin er á ann-
\
an hátt og berst söltunarhæf á land, að hún sé
veidd fjær næstu söltunarhöfn en 300 sjómílur.
Síld sem nær veiðist er því ekki styrkhæf.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
\
Síldarútvegsnefnd.
Friáls bióð — Fimmtudagur 10. október 1968
7